Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 26.11.1984, Blaðsíða 62
— Að MFA efli sérstaklega fræðslu ætlaða eldra fólki um réttindi þess og
hagsmunamál.
— Að MFA gefi heimavinnandi húsmæðrum kost á fræðslu um atvinnu-
lífið, kaup og kjör, með tilliti til kvenna sem haida út á vinnumarkaðinn,
eftir lengri eða skemmri fjarveru.
— Að MFA beiti sér áfram fyrir lista- og skemmtidagskrám í orlofsbyggð-
um verkalýðsfélaganna í samvinnu við stjórnir byggðanna.
— Að MFA efli enn frekar samvinnu sína við fræðslusamtök verkalýðs-
hreyfingarinnar í öðrum löndum. í þessu sambandi ber að leggja áherslu
á þátttöku félagsmanna verkalýðsfélaganna í norrænum námskeiðum og
erlendum verkalýðsmálaskólum. Má þar nefna Norræna MFA-skólann
og Genfar-skólann.
— Að MFA leiti eftir samstarfi við norrænu fræðslusamtökin um sameigin-
lega útgáfu á hvers kyns fræðslu- og upplýsingaefni fyrir almenning um
tölvutæknina og félagsleg og heilsufarsleg áhrif hennar auk annars efnis
á sviði vinnuverndar. Skal miðstjórn ASÍ og MFA tryggja nægilegt fé til
að gera þetta mögulegt.
— Að MFA gefi félagsmönnum verkalýðsfélaganna kost á kynnisferðum til
annarra landa undir heitinu „Að ferðast og fræðast" í samvinnu við
ferðskrifstofuna Samvinnuferðir-Landsýn.
— Að MFA, sem einn eignaraðili Bréfaskólans, endurnýi og auki það náms-
efni er varðar verkalýðshreyfinguna og efli kynningu skólans meðal fé-
lagsmanna verkalýðshreyfingarinnar og hvetji þá til að nýta sér það
kennsluefni, sem skólinn býður.
Tillaga um skipan nefndar um launað námsfrí fyrir verkafólk
35. þing Alþýðusambands íslands samþykkir að fela miðstjórn að kjósa
þriggja manna nefnd, sem geri tillögu um stefnu ASI varðandi rétt verka-
fólks til að sækja námskeið og aðra fræðslu án skerðingar launa. Nefndin
skal skila áliti til miðstjórnar eigi síðar en 1. október 1985.
Greinargerð
Á liðnum árum hefur þörf verkafólks fyrir fræðslu af ýmsu tagi aukist.
Á það ekki síst við um fræðslu er snertir störf þess, auk fræðslu um réttindi
sín, skyldur og félagsmál verkalýðssamtakanna. Ein hindrun þess að fræðsla
af þessu tagi geti verið jafn öflug og nauðsyn krefur, er að verkafólk á ekki
60