Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 26.11.1984, Page 73
við fullnægjandi lífeyrisréttindi og að jöfnuður ríki milli þegna þjóðfélags-
ins í lífeyrismálum.
35. þing Alþýðusambands íslands telur að á undanförnum árum hafi náðst
mikilvægir áfangar í þessum málum en telur að nú þegar þurfi ASÍ að ná
samningum um löggjöf, sem tryggi eftirfarandi atriði:
1. Löggjöf um starfsemi lífeyrissjóða
— Ellilífeyrisgreiðslur miðað við 67 ára aldur. Heimildarákvæði um greiðsl-
ur frá 60 ára aldri af heilsufars- eða félagslegum ástæðum.
A síðasta þingi ASÍ var mótuð sú stefna að almennur ellilífeyrisaldur frá
lífeyrissjóðum og almannatryggingum skuli miðast við 65 ár. 35. þing
ASÍ telur að í ljósi þess kostnaðar sem af því hlýst sé rökrétt að líta á 67
ára ellilífeyrisaldur sem eðlilegt skref í fyrstu umferð.
— Réttindaávinnsla miðist við öll áunnin stig en ekki lokalaun, né stig
bestu ára. Miðað verði við það að samanlögð réttindi frá lífeyrissjóði og
almannatryggingum veiti ellilífeyrisþegum allt að 90% af atvinnutekj-
um.
— Iðgjaldagreiðslur séu af öllum launum.
— Lífeyrisgreiðslur fylgi launabreytingum.
— Ororkulífeyrir miðist við framreiknuð réttindi.
— Löggjöf um starfsemi lífeyrissjóða nái undanbragðalaust til allra lífeyris-
sjóða, þar með taldir lífeyrissjóðir, sem starfa samkvæmt sérstökum lög-
um.
— Eftirlit með framkvæmd löggjafarinnar verði í höndum sérstakrar stofn-
unar, sem verkalýðshreyfingin eigi aðild að.
Eftirfarandl þrernur málsgreinum úr tillögu nefndarinnar var vísað til mið-
stjórnar:
— Makalífeyrir í núverandi myndi verði lagður niður í áföngum. Þó skal
tekið sérstakt tillit til félagslegra aðstæðna. Áunnin ellilífeyrisréttindi
skiptast jafnt á milli hjóna við slit hjónabands, hvort heldur er af völd-
um skilnaðar eða dauða. Við skilnað sé ellilífeyrisréttindum, sem áunnust
meðan hjónaband stóð, skipt jafnt á milli hjóna. Við dauða annars hjóna
haldi eftirlifandi maki þeim réttindum sem hærri eru.
— Tekinn verði upp tvenns konar fjölskyldulífeyrir. Annars vegar barnalíf-
eyrir, sem greiðist til framfæranda barna látins sjóðfélaga til 18 ára ald-
urs barna og hins vegar makabætur, sem greiðist eftirlifandi maka sjóð-
félaga í 24 mánuði eftir andlát sjóðfélagans. Barnalífeyrir verði stór-
71