Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 26.11.1984, Page 75
manna í samningunum að ríkisvaldið tæki að sér að fjármagna þann mikla
kostnað sem lífeyrissjóðirnir yrðu fyrir við þessa réttarbót sjómanna.
Viðræður hafa farið fram við fulltrúa ríkisins um þessi málefni, en af
þeirra hálfu hefur ábyrgð ríkisins á þessum kostnaðarauka verið hafnað.
35. þing ASÍ krefst þess að ríkisvaldið standi við fyrirheit þáverandi ríkis-
stjórnar um fjármagn til þess að standa undir kostnaði lífeyrissjóða sem sjó-
menn eru í, vegna þess að sjómenn hefji töku lífeyris 60 ára að aldri.
Þingið telur að mismunandi réttur sjómanna til lífeyris vegna ákvarðana
og vanefnda löggjafans sé með öllu óviðunandi.
Lífeyrismál heimavinnandi fólks
35. þing ASÍ samþykkir að láta fara fram könnun á stöðu heimavinnandi
fólks og annarra þeirra sem eru með skertan lífeyrisrétt.
í því sambandi er rétt að heimilisstörf séu metin jafn rétthá og störf á
almennum vinnumarkaði. Þingið telur óhjákvæmilegt að til komi opinbert
fjármagn til leiðréttinga á skertum lífeyrisréttindum þessa fólks. Ljóst er að
lífeyrissjóðirnir geta ekki tekið á sig auknar skyldur, nema að til komi aukið
fjármagn.
Ályktun um íhlutun ríkisvaldsins í fjármagn lífeyrissjóðanna
35. þing Alþýðusambands íslands mótmælir óæskilegri íhlutun ríkisvalds-
ins um ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna, og telur að það eigi að vera á valdi
stjórna lífeyrissjóðanna sjálfra og heildarsamtaka launafólks, hvernig sjóð-
irnir ávaxta fjármagn sitt hverju sinni.
Ályktun um innheimtu iðgjalda samkv. lögum um starfskjör
launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda
35. þing ASÍ vill að gefnu tilefni beina því til lífeyrissjóða aðildarsamtak-
anna, að þeir fylgi betur eftir innheimtu iðgjalda skv. 2. gr. laga nr. 55/1980
um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda. Ennfremur
hvetur þingið lífeyrissjóðina til að senda sjóðsfélögum upplýsingar um skil
atvinnurekenda á lífeyrissjóðsiðgjöldum í það minnsta einu sinni á ári.
Ennfremur hvetur þingið launafólk til að fylgjast betur með skilum at-
vinnurekenda á iðgjöldum til lífeyrissjóða.
73