Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 26.11.1984, Síða 79
við ýmsar framkvæmdir í þágu fatlaðra. Ennfremur er sjóðnum ætlað að
kosta framkvæmdir vegna sérkennslu fatlaðra barna. Samkvæmt lögum, sem
gilda um sjóðinn, á ráðstöfunarfé hans að vera 120 millj. króna á næsta ári.
í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar er hins vegar aðeins gert ráð fyrir tæp-
um 60 milljónum. Af þessu má sjá, að því fer víðs fjarri, að sjóðurinn geti
staðið við skyldur sínar og sinnt þeim mörgu knýjandi verkefnum, sem sjóðn-
um er ætlað að gera.
35. þing Alþýðusambands íslands krefst þess að við afgreiðslu fjárlaga
verði staðið við lög og framkvæmdasjóði fatlaðra tryggt nægilegt fé.
Alyktun um samstarf við Norðurlöndin varðandi fræðslumál
Flutningsmaður Gylfi Már Guðjónsson o. fl.
35. þing ASÍ, haldið á Hótel Sögu dagana 26.-30. nóvember 1984, felur
stjórn MFA að leita eftir samstarfi við hin norrænu samböndin um sameigin-
lega útgáfu á hvers kyns fræðslu- og upplýsingaefni fyrir almenning um
tölvutæknina og félagsleg áhrif hennar.
Þingið lýsir þeirri skoðun sinni að auk þess sem slík útgáfa væri fjárhag-
lega hagkvæm myndi hún auðvelda fólki mjög að taka þátt í norrænum nám-
skeiðum og ráðstefnum. Þetta myndi gera norrænt verkalýðssamstarf mikið
markvissara, þar sem allir hefðu aðgang að sömu upplýsingum og námsefni
á sínu eigin máli.
Það er álit þingsins að ef reynslan af þessari útgáfu verður góð, beri að
auka norrænt samstarf um útgáfu upplýsingaefnis á sem flestum sviðum.
Ályktun um málefni Mið-Ameríku
Flutningsmaður Guðm. J. Guðmundsson o. fl.
35. þing Alþýðusambands íslands lýsir yfir fullri samstöðu með verkafólki
í Mið-Ameríku í baráttu þess fyrir sjálfsögðum mannréttindum og réttlátara
þjóðfélagi.
Jafnframt fordæmir þingið harðlega sívaxandi hernaðaríhlutun Bandaríkja-
stjórnar í Mið-Ameríku og krefst þess, að hún virði sjálfstæði nicaragönsku
þjóðarinnar og þá lýðræðisþróun, sem þar á sér stað.
Þingið krefst þess einnig, að Bandaríkjastjórn láti nú þegar af öllum hern-
aðarstuðningi við stjórnvöld í E1 Salvador, en þau eru ábyrg fyrir einliverjum
grófustu mannréttindabrotum og mestu fjöldamorðum í allri sögu latnesku
Ameríku.
77