Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 26.11.1984, Page 80
Jafnfram því sem þingið hvetur verkalýðsfélög til að halda áfram þeim
stuðningi sem hafinn er við starf verkalýðsfélaga í Mið-Ameríku, skorar
þingið á ríkisstjórn íslands að beita sér með fjölmörgum öðrum þjóðum fyrir
stuðningi við baráttu fyrir réttlæti og friði í Mið-Ameríku.
Tillaga um frystingu kjarnorkuvopna
Flutt af Heiðari Guðbrandssyni o. fl.
35. þing ASI skorar á ríkisstjórnina að greiða atkvæði með frystingu á
kjarnorkuvopnaframleiðslu, þegar tillaga þess efnis frá Svíþjóð og Mexíco
kemur fyrir Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna.
Ályktun gegn vigbúnaðarkapphlaupi
Flutningsmaður Gylfi Már Guðjónsson o. fl.
35. þing ASÍ, haldið að Hótel Sögu dagana 26.-30. nóvember 1984, lýsir
andúð sinni á öllu vígbúnaðarkapphlaupi, hvort heldur á jörðu niðri eða úti
í geimnum.
Jafnframt lýsir þingið samstöðu með þeim hreyfingum, sem vinna að friði
og mannréttindum í heiminum og styður hugmyndina um kjarnorkuvopna-
laus Norðurlönd.
Þá leggur þingið áherslu á sjálfsákvörðunarrétt þjóða og fordæmir allar
tilraunir til kúgunar á þjóðum og þjóðabrotum.
Þingið æskir þess að ASÍ leggi bæði fjármagn og vinnu í að fylgjast betur
með þróun þessara mála, annað hvort eitt sér eða í samvinnu við erlend sam-
bönd og hreyfingar og sýni stuðning sinn í verki eftir því sem það hefur bol-
magn til.
Samþykkt um lágmarksfélagsgjald
Þingið samþykkir að lágmarksfélagsgjald skuli á næsta ári vera 1500 kr.
og síðan hækka sem nemur hlutfallslegri hækkun meðalkauptaxta verka-
manna frá 1. janúar til 1. janúar ár hvert.
78