Frá þingi Sambands ungra sjálfstæðismanna - 11.02.1932, Page 64
58
Ungu blysberar! Berið því blysin
djarft! Látið þau loga hátt! Látið þau
lýsa vítt! Þá munu afturhaldsdraug-
arnir hrynja niður í sínar grafir, og
þá mun fólkið sjá, að þar sem þeir
voru, og fóru, var ekki framsókn,
heldur argasta afturhald.
Ungir Sjálfstæðismenn! Oss er elds
þörf í þessu landi.
Vér þurfum eld sólar til þess að
bræða ís og hjarn og breyta hölkni og
hrjóstri þessa víðáttumikla og ónumda
lands í gróðurlönd.
Og vér þurfum eld sálar, blóðugan
eldmóð æskunnar, sem aldrei deyr.
Ungir Sjálfstæðismenn!
Yður treysti eg til þess að varðveita
þann eld.
Ungir Sjálfstæðismenn lifi! Þeir lifi
um allar aldir!“
Tók þingheimur allur undir orð for-
seta með ferföldu húrra.
Lýsti forseti þá yfir því, að 2. þingi
Sambands ungra Sjálfstæðismanna
væri slitið.
Sungu þingmenn að skilnaði hið
þróttmikla kvæði: ,,Táp og fjör og
frískir menn“.