Ský - 01.10.2001, Side 9

Ský - 01.10.2001, Side 9
FYRST & FREMST FÓLK, BÍÓ, LEIKHÚS, TÓNLIST, ILMUR, UÓSMYNDIR, HRR, MRTUR, BÍLRR, NETIÐ, HÖNNUN 1 .“ TT7Z : FYRSTU SKREFIN Hún sýndi stjörnuleik í eina eftirminnilega kafla bíómyndarinnar Villiljós, hún skilar með glans afar erfiðu hlutverki í leikritinu Englabörn, sem Hafnarfjarðarleikhúsið sýnir þessa dagana, og hún leikur stórt hlutverk í kvikmyndinni Hafið, sem Baltasar Kormákur hóf tökur á nú í haust. Nína Dögg Filippusdóttir útskrifaðist frá Leik- listarskóla Islands síðastliðið vor og það er svo sannarlega óhætt að segja að leiklistarferill hennar fari glæsilega af stað. „Það er skrítið en þegar ég var t skólanum var maður aldrei að spá t hvað tæki við að honum loknum, það var meira spurning um að njóta námsins og þess að vera í skólanum. En núna líður mér eigin- lega eins og litlu lukkutrölli," segir leikkonan hógvær þegar hún er spurð hvort hún hafi búist við að fá strax nóg að gera. Eiginmaður Ntnu Daggar er Gtsli Örn Garðarsson, sem debúteraði með stæl nú á dögunum í hlutverki Umba í Kristnihaldi undir Jökli. Hvernig skyldi það vera þegar bæði hjónin eru leikarar? Flækir það ekkert tilveruna? „Nei, þvert á móti, það er eintóm hamingja og gleði. Auk þess þekkjum við ekki neitt annað. Við vorum saman í bekk í Leiklistar- skólanum og eftir útskrift voru mestu viðbrigðin að vera ekki með honum allan daginn. En við eigum örugglega eftir að vinna töluvert saman einhvers staðar aftur." Handan við hornið bíða Ntnu Daggar svo ýmis verkefni. Til dæmis mun hún leika titilhlutverkið t uppfærslu Hafnarfjarðarleikhússins á Rauðhettu seinna í vetur og fyrir lok leikársins mega leikhúsunn- endur búast við þvt að sjá hana á sviði Vesturports, en það er lítið óháð leikhús sem hún og Gísli Örn stofnuðu ásamt ellefu félögum stnum stðastliðið sumar. jk Ljósrn: PÁLL STEFÁNSSON SKÝ 7

x

Ský

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.