Ský - 01.10.2001, Blaðsíða 10

Ský - 01.10.2001, Blaðsíða 10
FYRST £ FREMST SHALimAF^ c INDVERSKT 'EITINGAHÚS HVERSDAGSKARRÍ í Bretlandi ríkir sterk karrímenning. Sönn karlmennska er oft sannreynd meö því aö hópast inn á indverskan stað þegar pöþbarnir loka, panta sterkasta vindaloo réttinn og slökkva eldinn með nokkrum ámum af volg- um bjór. Bretar eru líka góöu vanir og gæöa sér á góðu, ódýru og vel krydduðu karríi einu sinni eða tvisvar í viku. í Austurstrætinu er nú hægt að nálgast sama hlut- inn á hinum pínulitla en notalega Shalimar. Hjón frá Pakistan reka staðinn og bjóða upp á úrval af réttum dagsins eða sérréttum af matseðlinum. Hér er eldað af innlifun og hráefni og krydd mætast af mikilli snilld. Af klassískum réttum má nefna Tikka Masala-kjúkling, Jhalfrezi-lambakjöt, Karahi-rækjur og Korma-kjúkling. Eldhugar geta tekist á við Vindaloo-réttina sem koma fullorðnum karlmönnum til að gráta. Allir réttir eru born- irfram með pilau -hrísgrjónum, salati og raita (jógúrt og gúrkusósu), og gómsætu, ekta, nýbökuöu naan brauði. Að indverskum sið er kjörið að drekka heitt, svart kardi- mommute með matnum, eða lassi sem er kælandi jógúrtdrykkur, en gerið annars eins og Bretarnir og fáið ykkur stóran og svalandi bjór. Þrátt fyrir smæðina er Shalimar alltaf þétt settinn fólki að snæðingi undir indverskum tónum við kertaljós. „Glæsilegur" er kannski ekki rétta orðið til að lýsa Shalimar, en kósý stemmningin klikkar aldrei. Og svo er auðvitað alltaf hægt að taka matinn með heim. AMB Shalimar, Austurstæti 4, 101 Reykjavík, sími 551 0292. Opinn mánud. - fimmtud. 11:30- 22:00, föstud.-laugard. 11:30-23 og sunnud. 17-22. THE OTHERS Myndin gerist í lok seinni heimsstyrjald- arinnar og segir frá Grace (Nicole Kidman) sem býr ásamt tveimur sjúkum börnum sínum á afskekktum herragar&i og bíður heimkomu eiginmannsins úr bardaga. Vegna sjúkleikans er börnunum lífshættulegt að verða fyrir sólargeislum og búa því við mjög strangar húsreglur, þangað til Grace ræður þjóna inn á heimilið. Þeir byrja stðan óvart að brjóta reglurnar með óvæntum afleiðingum. Leikstjóri: Chile-búinn og heitasti leikstjóri Spánverja, Alejandro Amenábar, sem á m.a. að baki Abre los Ojos sem er væntanleg sem endurggerðin Vanilla Sky með Cruise og Cruz. Orbsporib: Kalt vatn milli skinns og hörunds. Óbærilega taugatrekkjandi draugasaga fyrir hugsandi fólk. Setur bæði hjartað og heilabúið t gang. Nicole Kidman sýnir stórleik og er orðuð við Óskarstilnefningu eða Golden Globe-verðlaunin. AMERICA'S SWEETHEARTS Rómanttsk gaman- mynd um kvikmyndastjörnuhjón (Catherine Zeta-Jones og John Cusack) sem eru skilin að skiptum en þurfa samt sem áður að sjást saman til að kynna nýju myndina sem þau léku t saman á meðan þau voru enn ástfangin. Kynningarfulltrúi myndarinnar (Billy Crystal) reynir örvæntingarfullur að láta sem þau eigi í blússandi rómanttk, en bæði hafa fundið sér nýja elskhuga (Julia Roberts og Hank Azaria). Leikstjóri: Joe Roth sem gerði m.a. spennumyndina While You Were Sleeping og hina frábæru gamanmynd Bachelor Party, eina af fyrstu myndum Tom Hanks. Orbsporib: Enn ein Öskubuskumyndin þar sem Julia Roberts verður fegurst allra og eignast prinsinn í lokin. Fyndin á köflum, en laus við allan neista. Forvitnilegast er að sjá Roberts leika feitabollu. THE TRAINING DAY Myndin gerist á sólarhring og segir af löggunni Jake Hoyt (Ethan Hawke) sem reynir allt til að komast t álit hjá hinum svala lögregluforingia Alonzo Harris (Denzel Washington). Harris er lífsreyndur maður, kallar ekki allt ömmu stna og er meira en viljugur að láta lærisveininn hafa fyrir hlutunum. Jake fær því t hendur æ geggjaðri hluti til að sanna sig. Leikstjóri: Antoine Fuqua sem gerði Hong Kong slagsmálamyndina The Replacement Killers. Orbsporib: Þokkalegasta löggumynd um annað en bara löggu og bófa. Boðskapurinn snýst meira um úr hverju manneskjan er sköpuð, hversu mikið hún þolir. Denzel sýnir afbragðsleik t óvenjulegu hlutverki sínu sem skúrkurinn. HARRY POTTER Ævintýramynd sem börn á öllum aldri hafa beðið eftir. Munaðarleysinginn Harry Potter (Daniel Radcliffe) hefur búið fyrstu ttu ár ævi sinnar undir stiganum hjá vondu frænku og frænda. Dag einn kemur til hans risi og býður Harry að ganga f Hogwarts- galdraskólann, sem og hann þiggur. Þar kemst hann að þvt að veröldin er full af töfrum og fantasíum og finnur þar með tilgang Iffs stns. Leikstjóri: Kaninn Chris Columbus sem gerði báðar Home Alone-myndirnar, Nine Months og Mrs. Doubtfire. Orbsporib: Myndin hefur yfir sér gotneskt yfirbragð með skuggalegum skúma- skotum og læstum dyrum sem geyma hrekki og óvæntar uppákomur. Sannkallað ævintýri og spenna sem grfpur alla. 8 SKÝ Ljósmynd: Páll Stefánsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Ský

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.