Ský - 01.10.2001, Síða 12

Ský - 01.10.2001, Síða 12
FYRST 6. FREM5T = MENNING ÞÚ YNDISLEGA BORG Sautján Ijósmyndarar. Sautján ólíkar Reykjavíkurborgir. Sjötíu svipmyndir úr lífi stórborgar. Það sem einum þykir fallegt þykir öðrum Ijótt. Og svo öfugt. Allir unna þeir henni litlu, stóru Reykjavík með sínu iðandi llfi og Esjunni sem vaktar höfuðstaðinn eins og umhyggjusöm móðir. Borgin hefur löngum verið Ijóðskáldum, rithöfundum og listmálurum hugleikin en á samsýningunni Reykjavík samtímans er borgin viðfangsefni margra af fremstu Ijós- myndurum Tslensks samtíma. Hvaða augum líta Ijósmyndararnir borgina á nýju árþús- undi? Hvaða einkenni borgarinnar má greina í myndum þeirra? Og hvað segja myndirnar um hug þeirra til Reykjavíkur? Allt mjög spennandi. Frumleg sjónarhorn, borgarbúar á hlaupum í dagsins amstri, litadýrð og gráar götur í töfraljóma. Reykjavíkurmyndirnar munu án efa opna augu sýningargesta og minna þá á að ganga teinréttir með augun opin næst þegar þeir etja kappi við íslenskt veðurfar og hversdagsleikann. Að uppgötva borgina upp á nýtt, þá sömu og þeir töldu sig þekkja til hlítar. Ekki síst opnar sýningin augu almennings fyrir þeirri grósku sem er í Ijósmyndun á íslandi um þessar mundir og þeim fjölda góðra Ijósmyndara sem landið á. Hægt er að fullyrða að það er langt síðan jafnbreiður hópur Ijósmyndara hefur komið saman til að sýna verk sín og hugðarefni, myndefni sem þeir fá sjaldan tækifæri til að kynna fyrir almenningi. Þessa Reykjavíkurmynd á Sigríður Kr. Birnudóttir, en meðal annarra Ijósmyndara sem eiga myndir af Reykjavík eru Bára Kristinsdóttir, Einar Falur, Brian Sweeney, Ragnar Axetsson, llmur Stefánsdóttir, Páll Stefánsson og Spessi. Reykjavík samtímans opnar 3. nóvember í Grófarsal Grófarhússins, Tryggvagötu 15 í Reykjavík. LEIKHÚ5 HVER ER HRÆDDUR VIÐ VIRGINÍU WOOLF? Talið eitt af bestu leikverkum siðustu aldar og var frumflutt á Broadway í New York 1962. Kvikmynd eftir verkinu, með Elizabeth Taylor og Richard Burton í aðalhlutverkum, var frumsýnd árið 1966 og varð gifurlega vinsæl. Verkið er eftir Edward Albee og segir frá Mörthu og George sem bjóða ungum hjónum i „eftirpartý" við upphaf háskólaárs. Eftir því sem líður á nóttina verður Ijóst að hér er ekki um neitt venjulegt heimboð að ræða. Magnþrungið verk um grimmileg átök. Leikendur: Pálmi Gestsson, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Rúnar Freyr Gíslason og Inga Maria Valdimarsdóttir. Leikstjóri: Kjartan Ragnarsson. Sýnt á Stóra sviði Þjóðleikhússins. FJANDMAÐUR FÓLKSINS Kraftmikið, áleitið og hápólitlskt verk eftir Henrik Ibsen. Læknirinn Tómas Stockmann stendur einn gegn samfélaginu þegar hann gerir uppgötvun sem setur væntanlegar stórframkvæmdir bæjarins I uppnám. Hvers virði er sannleikurinn gegn auðsóttum gróða? Hversu langt erum við tilbúin til að ganga I baráttunni fyrir réttlæti? Hvenær eru hagsmunir samfélagsins mikil- vægari en tjáningafrelsið? Leikendur: Ingvar E. Sigurðsson, Halldóra Geirharðsdóttir, Sóley Ellasdóttir og Björn Ingi Hilmarsson. Leikstjóri: María Kristjánsdóttir. Sýnt á Stóra sviði Borgarleikhússins. BEÐIÐ EFTIR GODOT Eitt merkasta leikverk síðustu aldar, eftir Nóbelsskáldið Samuel Beckett. Leikritið lýsir biðinni eftir frelsun, björgun og leiðsögn á tímum guðleysis og trúarþarfar. Vladimir og Estragon bíða eftir Godot. Þeir myndu gera sér tákn eða skilaboð að góðu. Þeir hafa orð á þvl að hengja sig en hafa ekkert reipi viö höndina. Þeir ákveða að skilja en einmanaleikinn er þeim um megn. Svo þeir bíða. Og rífast, gráta og syngja. Og bfða. Það gerist ekkert. Og svo gerist ekkert aftur. Leikendur: Benedikt Erlingsson, Hilmir Snær Guðnason, Björn Ingi Hilmarsson og Halldór Gylfason. Leikstjóri: Peter Engkvist. Sýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins. DAUÐADANSINN Dauðadansinn er einn frægasti hjónabandsharmleikur allra tlma. Hann lýsir lífi hjóna sem eru löngu hætt að elskast, halda slfellt áfram að kvelja hvort annað en geta þó ekki skilið. T leiknum gera þau hvort um sig örvæntingar- fulla tilraun til að brjótast út úr þeim vítahring sem llf þeirra er komið I, en slíkar tilraunir eru dæmdar til að mistakast; eitthvert afl þeim sterkara bindur þau saman. Leikfélag Reykjavíkur og Strindberghópurinn vinna saman að þessu verki August Strindbergs. Leikendur: Erlingur Gíslason, Helga Jónsdóttir og Sigurður Karlsson. Leikstjórl: Inga Bjarnason. Sýnt á Litla sviði Borgarleikhússins. 10 SKÝ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Ský

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.