Ský - 01.10.2001, Page 14
FYRST & FREM5T = BJORN BRYNJULFUR
HVAÐ ER LANGT SIÐAN ...
Kvikmyndagerðarmaðurinn Björn
Brynjúlfur Björnsson er nátengdur
tryggasta fjölskylduvini heimilanna,
sjónvarpsskjánum. Auk þess að
framleiða framúrskarandi sjónvarps-
auglýsingar og sjónvarpsþætti muna
margir eftir Birni brillera í fréttaget-
raunaþætti Sjónvarpsins „Þetta
helst". Hann svarar hér af trú-
mennsku nokkrum álitaspurningum.
E
... þú söngst í baði?
Sennilega er nokkuð langt síðan því ég hef alveg látið það vera í þessu lífi.
... þú skarst þig síðast við rakstur?
Nákvæmlega 28 tímar.
... þú tókst upp puttaling?
Ég er nokkuð iðinn við að taka upp puttalinga vegna þess að ég ferðaðist
sjálfur töluvert á puttanum um Evrópu á mínum ungdómsárum. Hins vegar
er mitt barnalán svo mikið að ég hef ekki alltaf pláss fyrir gesti.
... þér hlotnaðist ástarbréf?
Ég fæ öðru hverju ástarbréf frá minni góðu konu - þökk sé tölvupóstinum.
... þú fékkst synjun á debet/kreditkortið?
Þessi spenna er því miður horfin úr mínu lífi, aðallega vegna tilkomu netbanka
sem gera manni kleift að fylgjast með eigin fjáraustri af óhugnanlegri nákvæmni.
... þú fékkst ósk þína uppfyllta?
Á hverjum morgni þegar ég vakna og geri mér grein fyrir að ég er enn í liðinu.
Það er mín heitasta ósk að fá að spila meö enn um sinn. Mér finnst leikurinn
skemmtilegur og þótt maður tapi einum og einum þá vinnast miklu fleiri. Og
ekki skemmir fyrir þegar manni tekst að skora.
... þú píndir ofan í þig vondan mat af kurteisisástæðum?
Ekki man ég það svo gjörla.
... þú áttir samskipti við lögregluna?
Sannast sagna á ég töluverð samskipti við lögregluna þessa dagana vegna
ýmissa alvarlegra glæpa. Ég hugsa að ég sé kominn í hóp góðkunningja þar
á bæ. Þessi samskipti snúast um sjónvarpsþættina Sönn íslensk sakamál
sem við á Hugsjón erum að framleiða fyrir Sjónvarpið og sýndir verða eftir
áramótin.
... þú komst illa fram við aðra manneskju?
Þaö er ekki langt siðan ég skammaði yngri son minn heldur rausnarlega fýrir
smávægilega yfirsjón. Ég hef síðan reynt að bæta fyrir brot mitt með afsökun-
arbeiðni og bíóferð og ég held að við séum nú sáttir.
... þú steigst á vigtina?
i Þaö er svona vika síðan.
... þú grést fyrir framan aðra manneskju?
Það væri nú synd að segja að þessar spurningar snúist um lífsins gleðistundir.
Nú. Grátmaður er ég ekki góður og mætti sjálfsagt taka mig á á því sviði.
... þú horfðir í aðra átt til að losna við að hitta á gamlan kunningja?
Það eru helst gamlir skólabræður í rónastétt sem maður horfir i gegnum á
götunum í Reykjavík. Það er lítið gaman að tala við karlagreyin, þeir eru orðnir
heldur andlitlir af dugnaði sínum við drykkjuna. Raunar er staran orðin gagnkvæm
með árunum - spírinn hefur þurrkað mig út.
VEFSÍÐURNRR MÍNRR
5IUR ÚLFflRSDÓTTIR
GULLDRDTTNING í 5PRETTHLRUPI KVENNR FYRIR FH
www.tilveran.is
Hin fullkomna afþreying ef
manni leiðist eða rólegt er í
vinnunni. Fullt af slúðri og
skemmtilegheitum.
www.eonline.com
Ekta stelpuslúður um heitustu
stjörnurnar. Mér finnst æði að
skoða myndirnar af fræga
fólkinu, sjá hverjir eru best og
verst klæddir, og hverjir eru
byrjaðir með hverjum eða þá
að skilja.
www.torg.is
Ég leik mér oft á torginu,
enda hálfgert völundarhús
með spennandi leiðum yfir á
aðrar frábærar vefslður eins
og reykjavik.com og
nulleinn.is.
www.cnn.com
Ég er haldin miklum frétta-
þorsta og legg mig fram um
að sjá hvernig horfurnar eru
með heimsfriðinn og annað
um víða veröld. Bestu og nýj-
ustu fréttirnar finnur maður
hjá CNN, en maður er heldur
aldrei svikinn af þv! að fara
inn á mbl.is.
www.frjalsar.is
Frjálsíþróttadeild FH heldur
þessari síðu úti. Þangað fer
ég oft til að ná mér í nýjustu
fréttir, tékka á úrslitum, at-
huga með æfingar og skoða
myndir af FH-ingum og fleiri
góðum.
12 SKÝ Ljósm. PÁLL STEFÁNSSON