Ský - 01.10.2001, Side 17
En hvernig þekktirðu röddina mína aftur eftir aðeins eitt símtal
fyrir fimm árum síðan? Nú, þetta er sama röddin og þú hafðir þá og
er í eðli sínu mjög eftirminnileg. Ég gleymi ekki röddum enda eru
þær ákaflega lýsandi.
ónæði en ég ræð við. Stundum hef ég gaman af því, en það fer
auðvitað eftir ónæðinu. Og já, ég hef eignast vini í gegnum ónæðið.
Þannig að bækurnar hafa fært þér vini? Miklu frekar en óvini.
Hvernig lýsir þá þín rödd þér? Nei, nei, ekki spyrja um þetta, ég gæti
aldrei lýst sjálfri mér. Held ég færi nú alltaf flatt á því. Þótt ég þykist
þekkja sjálfa mig manna best þá held ég að ég geri það í raun einna
verst. Til hvers væri þetta þá iíka allt saman? Maður verður að koma
sjálfum sér á óvart. Því minna sem maður veit þvl meíri spenna.
En þú veist ýmislegt um draumráðningar?
Ég er alls ekki góð i þeirri speki, hreint alls ekki. En vinir minir biðja
mig stundum um ráðningu. Ég fékk einn sendan áðan; draum um að
karlar væru úr smjörlíki og konur úr smjöri. Ég efast um að ég ráði
við hann.
Þú lítur svo andskoti vel út, Vigdís. Þú lítur líka andskoti vei út.
Hvernig stendur á þessu geislandi útliti? Hvað borðarðu í morgun-
mat? Ég borða alltaf það sama í morgunmat. Ég vakna oft svolítið
þunglynd, en um leið og ég hef sett upp kaffið og ilmurinn fer að
berast um hressist ég öll. Árbíturinn samanstendur af kaffi, ristuðu
brauði og sígarettum.
Einni eða tveimur? Mörgum. Ég hef reynt að hætta, en ekki tekist það.
Það er sagt að sum skáld fái andagiftina eftir vínglas eða tvö. Er
það þá rettan sem vinnur með þér? Já, við reykjum og skrifum
saman, sígarettan og ég. Og ég hef ekki áhuga á að hætta að reykja
Um hvað skrifarðu í Frá Ijósi til Ijóss'? Um ástina og söknuðinn, en
á annan hátt en ég hef gert áður. Þó fýrst og fremst um draumana
sem við búum okkur til og ferðina sem við leggjum á okkur til að
draumarnir rætist. Ég skrifaði bókina í Nýju Mexikó, en þangað fór
ég til að elta draum ungs manns sem heillaðist af mynd af ókunnri
konu og fór að leita hennar þegar hann varð eldri. Ég gekk í fótspor
hans ef svo má segja og lærði um leið að lífið er ekkert án kær-
leikans, ekki neitt.
Sherlock Holmes? Já, kannski.
Þú hefur sagt mér að þú sért sjálf í öllum bókunum þínum. Já,
maður kemst ekki hjá því. Það er ekki endalaust hægt að fela sig
bak við það að höfundurinn sé hvergi nálægur I bókunum sínum, að
staða hans sé yfirnáttúruleg og hann hvergi. Hann er þarna alltaf á
sveimi og oftar meira en minna. Maður er í því sem maður gerir.
Annað er einfaldlega ekki satt. í nýju bókinni minni leynist ég afar viða.
Bókin er um söknuð. Hvers saknar þú alltaf mest? Ég sakna alltaf
mömmu. Það er svo einkennilegt að þótt hún fari bara burtu í viku
þá líður mér ekki eins vel og þegar hún er heima. Ég verð hálftóm-
leg og eirðarlaus og fagna því ákaft þegar hún kemur aftur. Hún er
kjölfesta mín í lífinu og minn besti kennari. Ég vil reyndar hafa mitt
fólk á sínum stað. Mitt fólk á að vera rétt hjá mér. Þetta segir kannski
mest um ihaldssemi mína og frekju.
ÞAÐ ER ALLT í EINUM DEGI
Fyrir skömmu sá ég mann skokka á Ijósastaur þegar
skáldkonunni Vigdísi Grímsdóttur. Fyrir utan augljósan
einhverja áþreifanlega dulúð. í nýjustu bók sinni, Frá
ófyrirsjáanlega. Flún veit meira en við hin. Fyrir tæpum
og Vigdís á setningum í bjarma jólasería yfir kaffi og s
han
Ijósi
tvö
m
n sneri sig úr hálsliðnum við að stara á eftir
jokka og yfirbragð hefðardömu hefur Vigdís yfir sér
i til Ijóss, ræðst hún enda á drauma og það
júsund dögum skiptust Þórdís Lilja Gunnarsdóttir
ákökum, á dögunum ræddu þær saman aftur.
í dag, ég hef bara áhuga á einum degi í einu. Að lifa daginn í dag,
Það er málið.
Hefurðu einhvern tíma lesið setningar og óskað þess að þær væru
þínar? Já, margoft, ótrúlega oft, mörgum sinnum á dag, sem beturfer.
Gefurðu þá skít í morgundaginn? Nei, nei, en ég hef bara einn dag
i einu til umráða og það er alveg nóg, alveg nógu gaman. Það er
nefnilega allt í einum degi. Allt lífið, upphaf og endir. Maður getur
bæði verið dauðfeginn og ofsaglaður þegar maður sofnar eftir sæmi-
lega vel lukkaðan dag. Kannski hefur líka þá þegar allt gerst en
möguleiki er alltaf á að nýr kafli taki við.
Mér finnst ákveðin kúnst að hugsa svona um hvern dag. Þessi
kúnst, eins og þú segir, býr í öllu lífi og er hverjum manni eðlileg.
Stundum þarf bara að opna augun fyrir ævintýrunum.
Þá hlýtur nú að vera frábært að vera rithöfundur og geta búið til
sín eigin ævintýri milli níu og fimm? Örugglega eftirsóknarvert fyrir
þá sem langar til þess. Sjálf þekki ég ekkert betra og veit heldur
ekkert skemmtilegra en að skrifa. Það er dásamlegt að ráða sínum
eigin vinnutíma, og þótt það tæki sinn tíma að venja sig af þvi að
kenna (var nefnilega einu sinni kennari), sakna ég þess ekki að
vinna frá níu til fimm. Núna hef ég nefnilega möguleika á að starfa
allan sólarhringinn. Hugsaðu þér!
Verðurðu fyrir ónæði vegna skrifa þinna? Ég verð ekki fyrir meira
Áttu önnur áhugamál fyrir utan brennandi áhuga þinn á bókum og
kvikmyndum? Ég hef mikinn áhuga á að hlusta á karaókí. Og eins
að fara á staði þar sem fólk kemur beinlínis saman til að dansa,
dansstaði, danshús. Það er svo yndislegt að sjá listamennina á
gólfinu, dansguðina sem stýra konum eins og þeir séu með
hljóðfæri í fanginu. Það er ótrúlega fallegt að horfa á fólk hverfa inn
í dansinn eða sönginn og vita að ekkert annað skiptir máli.
Karaókí. Er það ekki bara grín og glens? Nei, nei. Karaókí eru til
dæmis trúarbrögð hjá Japönum og Kínverjum. Þeir koma margir hverjir
beint af skrifstofunni af erfiðum samningafundum til að syngja frá sér
streituna, syngja til sín gleðina. Og það er mjög alvarlegt mál. Það
hefur verið sett ofan í við mig af kínverskum karaókísöngvara fyrir að
vera of glöð. Hann leit hundakæti mína alvarlegum augum. Ég truflaði
leið hans frá streitu til gleði en vissi það ekki sjálf. Enginn mun
framar saka mig um að vanvirða karaókí. Aldrei í veröldinni.
Tekurðu stundum lagið sjálf?
Já, ég hef stöku sinnum valið mér karaókílög en ég syng þau ekki,
heldur muldra bara og tuldra svona tuðandi í míkrófóninn. Og þá
helst eitthvað með Presley.
SKÝ 15