Ský - 01.10.2001, Page 20

Ský - 01.10.2001, Page 20
FYRST a FREMST = SKYNJUN ILMURINN Flestir eigum við karlmenn okkur einhverja lykt í glasi sem við skvettum á okkurtil þess að ilma betur en venjulega. En tegundirn- ar eru fjölmargar og misgóðar eftir því. Þess vegna fengum við til liðs við okkur þrjár konur, þær Sigríði Arnardóttur, Mörtu Maríu og Chloe Opheliu Gorbulew til þess að segja okkur álit sitt á þremur mest seldu rakspírum landsins. ifv ROCHAS-AGUA MAN ALFRED DUNHILL-DESIRE EMPORIO ARMANI-WHITE Chloe - Dauö lykt. Sigríöur - Hvað er nú þetta! Marta María - Of kryddaður. Chloe - Góður kvöldilmur við fín tilefni. Sigríöur - Frábær, ferskur. Marta María - Of þungur, yfirþyrmandi. Chloe - Mjög friskandi og góð lykt. Sigríöur - Kvöld, frábær. Marta María - Seiðandi. SNOÐAÐ Á NEÐRI HÆÐINNI 1 mjúkri kvos við ávalar lendar mannslíkam- ans rís villtur og ótaminn náttúruskógur. Fer sínar eigin leiðir og þykir fagur. Eða þótti. Tímarnir og tískan gera sífellt strangari kröf- ur. Hver kannast ekki við tígul- og smára- klippta runna? Eiffelturninn. Empire State. Hrútsmerkið. Dollaratáknið eða íslenska skjaldarmerkið? Þessi rakarasnið hafa und- anfarin ár verið að sækja geyst á neðri hár- vaxtarsvæði líkamans. Allt frá New York til Kaupmannahafnar eru reknar af miklum myndugleik rakara- og vaxstofur sem bjóða heitustu línurnar fyrir skapa- ogtyppahár. Ég veit ekki með mömmu eða ömmu, en ungt fólk í dag vill hárin burt eða svo gott sem. Eftir að kynlífsbylgja hins vestræna heims tók völdin hafa skilaboðin í gegnum djúpblá- ar hreyfimyndir og tímarit verið skýr: hárin tamin eða burt! Á öllum betri snyrtistofum Islands er boðið upp á litun og vax á nára og börmum. „Karlarnir raka sig reyndar ennþá sjálfir, en straumur kvenna í vax á nára er stöðugur og vaxandi,” segir Hanna Kristín Didriksen, eig- andi Snyrtistofu Hönnu Kristínar í Reykjavík. Hún segir herratískuna vera einskonar Brad Pitt skegg rétt fyrir ofan liminn, þar sem rak- að er frá nafla og niður að lífbeini, auk auðvit- að punghára og bringuhára sem í dag þykja í hæsta máta ógeðfelld. „Flestar konur af yngri kynslóðinni kjósa að vera snoðaðar að neðan eða í mesta lagi með örmjóa móhíkanarönd. Það er gríðarstórt skref frá því fyrir fimm árum þegar þótti dónalegt að taka meira en sem svaraði sundbolsfari.” En þótt naumhyggjan ráði ríkjum á neðri hæðinni nú eru skilaboð morgundagsins farin að berast hratt yfir hafið. Haft er fyrir satt að fyrirsætur í nektartökum séu nú sendar rak- leiðis heim hafi þær ekki í hávegum villtan hárvöxtinn eins og Guð vildi hafa hann. þlg Fyrir hvern? Chloe - Vonandi engan. Sigríöur - Lummó týpu. Marta María - Smekklausan lúða. Fyrir hvern? Chloe - Hvern sem er. Sigríöur - Svört jakkaföt, þroskaðan en ekki gamlan. Marta María - Ferskan gaur. Fyrir hvern? Chloe - Jakkafataklædda súkkulaðistrákinn. Sigríöur - Útivistartýpuna, ekki of feita þó. Marta María - Jakkafata- manninn með stffa bindið í Chesterfield sófasettinu

x

Ský

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.