Ský - 01.10.2001, Qupperneq 24
FYR5T & FREM5T = LÍTIÐ EITT
HASSELBLAD ÁN ARSENIKS
í byrjun september kom á markaðinn ný og
endurbætt gerð af Hasselblad 903SWC
myndavélinni, 905SWC. Reyndar hefur
þessi vél verið nær óbreytt frá 1954 og jafn-
vel þótt verkfræðingar hjá Carl Zeiss linsu-
framleiðandanum hafi reynt með tölvu-
útreikningum að bæta gæði 38mm Biogon
linsunnar hefur það ekki tekist. En hvað er
þá öðruvísi? Jú, nýja linsan hefur léttari
fókus og slitsterkari lokara, en mesta
muninn finnur þó starfsfólkið hjá Carl Zeiss,
sem framleiðir linsurnar fyrir Hasselblad, en
glerin á nýju linsunni eru án blýs og
eiturefnisins arseniks. Arsenik er bráð-
drepandi og þarf aðeins 0,006% af efninu í
litlu magni af vökva til þess að drepa mann
og annan. Hasselblad 905SWC er með fastri
víðri linsu og er mest notuð í arkitektúr-
myndatökur, landslag og portrettmyndir þar
sem fólk og staður fara saman. Hasselblad
905SWC kostar tæplega 600.000, með
axlaról, en myndavélin er með mekanískum
lokara og án Ijósmælis svo að hún notar
ekki rafhlöður. ps
HIMNESK TÓNLIST
Þótt leikritið Englabörn eigi tæplega eftir að
marka djúp spor í sögu Islenskrar leikritunar
er uppfærsla Hafnarfjarðarleikhússins af-
bragðsgóð, hversu undarlegt sem það kann
að hljóma. Leikritið er svo brútalt á köflum
að það fer langt yfir strikið en frammistaða
leikstjóra og annarra sem að sýningunni
koma er til fyrirmyndar. Hæst risa einstak-
lega fallegar tónsmíðar Jóhanns Jóhanns-
sonar. Auk höfundarins ber strengjakvartett-
inn Eþos hitann og þungann af flutningi tón-
listarinnar sem má lýsa með orðunum ang-
urvær og viðkvæmnisleg en það er ekki
endilega eitthvað sem var að vænta frá
hljómborðsleikara í rokksveitinni Ham sál-
ugu. Jóhann hefur hins vegar verið víðförull
á tónlistarsviðinu allt frá því að hann vakti
fýrst athygli með hljómsveitinni Daisy Hill
Puppy Farm á níunda áratugnum. Hann var
meðal annars prímus mótor í Lhooq, sem
David Bowie valdi til að hita upp fyrir sig á
tónleikum í Laugardalshöll á sínum tíma, og
einnig hefur hann samið tónlist fyrir heimild-
armyndir og kvikmyndir, þar á meðal Corpus
Camera, Óskabörn þjóðarinnar og Islenska
drauminn. jk
Tónlistin úr Englabörnum er fáanleg á samnefndum
geisladiski i helstu hljómplötuverslunum landsins.
SKOLLALEIKUR
Þeir sem eiga leið um Zúrich ættu að nota tækifærið og koma við á hinum
á nýstárlega veitingastað Blindekuh (Skollaleikur). Staöurinn er svo dimmur að
maður sér ekki fram fyrir hendurnar á sér og ef maður þarf á salerniö þá er maður
leiddur þangað af starfsmanni. Og hvernig rata þeir? Jú, allir starfsmenn staðarins
eru blindir. Blindekuh, 148 Muhlebachstrasse, Ziirich, s.: +41 4215050
ORÐSKÝRINGAR BÍLASALANS
Fáar stéttir eiga sér skrautlegra tungutak en
bílasalar. Hér eru útskýrö fáein orð og setn-
ingar sem gjarnan heyrast á bílasölum
landsins en aðrir en innvígðir skilja tæpast. JK
Kúla: Ein milljón króna. Tvær kúlur = tvær
milljónir, o.s.fr.v..
Taka í braskus: Þegar bílasalinn sjálfur eign-
ast bíl til að selja aftur og hagnast á.
Þetta er blöðruskapur: Sagt um þá sem
koma að prófa og skoða bíla sem þeir hafa
ekki í hyggju að kaupa. Einhver sem á til
dæmis alveg eins bíl og vill máta sinn viö
þann sem er til sölu.
Gjaldþrotagallinn: Kúnninn situr milli vonar
og ótta með bilasalanum og bíður eftir svari
frá einhverju bílalánafyrirtækinu. Þegar nei-
kvætt svar berst og í Ijós kemur að viðkom-
andi er á bleksvörtum lista allra lánastofn-
ana, segja salarnir sín á milli: „Það er gall-
inn,” og eiga þá við svokallaðan gjaldþrota-
galla en fyrirmynd hans er appelsínugulur
vinnufatnaður starfsmanna hreinsunardeild-
ar Reykjavíkurborgar.
Það er blakkari: Haft um nótulaus eða svört
viðskipti.
Er hann með smísser? Eða: Er hann með
glussabraketti?: Sagt við forhertustu jeppa-
karlana sem eru komnir með mjög svo upp-
hækkaða og breytta bíla sína í sölu. Hvorugt
fyrirbrigði ertil í alvörunni, en undantekning-
arlaust vilja jeppamennirnir ekki viðurkenna
vanþekkingu sína og svara: „Hann er með
öllu.”
22 skv
I