Ský - 01.10.2001, Page 25

Ský - 01.10.2001, Page 25
FYRST & FREMST = KYNNING SKÖPUNARGLEÐIN FER í 1000 GRÁÐUR! Guðrún Kristín býður fólk velkomiö í Keramik. Rúmt ár er nú síðan „Keramik fyrir alla” var opnað í hjarta miðbæjarins. Reykjavík var þar með tryggður sess meðal heimsborga því keramikstaðir hafa slegið i gegn í Bandaríkjunum og breiðst út til Evrópu. Fólk getur komið inn og málað gripi að eigin vali og fengiö allt til þess: muni, liti og pensla. Brennsla er innifalin i verði og ofn á staðnum. Nú þarf fólk ekki að fara á sérstök námskeið í mótun og málningu. ,,Þú þarft ekkert að kunna,” segir Guðrún Kristín Sigurðardóttir sem rekur Keramik fyrir alla. ,,Það eina sem fólk þarf að hafa með sér er sköpunargleðin.” Þeir hlutir sem koma úr ofninum hjá Guðrúnu sýna að margir gesta eru listrænir, aðrir frjálslegir í forminu, en allir ánægðir með árangurinn. Það er eitthvað sem gerist þegar sköpunargleðin fer í 1000° á Celsius! Auðvelt og ódýrt Keramik fyrir alla er á snoturri baklóð á Laugavegi, í nágrenni við fatabúðir, gullsmiði og kaffihúsin sem gera miðbæinn notalegan. Inni blasir við úrval af munum sem biða viöskiptavina: kaffikrúsir, bollar, matardiskar, stór og vegleg föt, salatskálar og margt fleira. Allt falleg ítölsk hönnun. Að auki getur að líta skrautmuni og jólaföndur. Keramik fyrir alla er þægileg vinnustofa með hlýlegum blæ, hægt er að kaupa sér kaffi og köku, velja sér hlut og byrja að mála strax. Litirnir eru T úrvali á borðum og fjöldi af bókum og mynstrum til skoðunar. Eftir örfáar mínútur er gestur tekinn til við að mála og Guðrún veitir persónulega ráðgjöf. Verðið ætti ekki að standa í neinum: Hægt er að kaupa muni sem kosta innan við þúsund krónur, og glæsilegir gripir fást fyrir 2-3000 krónur. í verði er allt innifalið: aðstaða, litir, penslar og brennsla. Hópar á kvöldin Hópakvöld eru vinsæl. Saumaklúbbar, starfsmannafélög og vinahópar panta eigin kvöld. Óvissuferðir hafa endað í Keramik, jafnvel gæsateiti. Á miðvikudagskvöldum er ,,opið hús” kl. 20 og þá geta hópar og einstaklingar komið án bókunar. Fjölskylduvæn skemmtun Keramik býður fjölskylduvæna skemmtun, það er ekki oft sem fjöskyldur gefa sér tíma og gera eitthvað skapandi saman. Þeir sem veröa alveg forfallnir í keramikinu fara á námskeið á þriðjudagskvöldum. Jólaösin aö hefjast Jólatré með Ijósum, kertastjakar, vitringar, jötur og skreytingar eru nú til taks því í hönd fara annatímar við jólaundirbúning heimil- anna. Keramik fyrir alla: Opið mánud.-föstud. frá kl.ll- 18, laugardaga frá 13-17. Opið hús á miðvikudags- kvöldum. Höpapantanir eftir samkomulagi. Sími: 552 2882, vefslóð: keramik.is Laugavegur 48b. Góður kostur Útvegum bíla um allan heim Hringdu og pantaðu núna! Frábær kjör á bílaleigubílum Sími: 533 1090 Dugguvogur10 BILALEIGA AKUREYRAR AVALLT FREMSTIR! Bjóðum til leigu lúxusbíla, AUDIA6 og MERCEDES BENZ E 240. Hagstætt kynningarverð! REYKJAVÍK, sími 568 6915 KEFLAVÍK, sími 425 0300 AKUREYRI, sími 461 3000 europcar@europcar.is - www.europcar.is Fax: 533 1091 - E-mail: avis@avis.is ÚTIBÚ UM LAND ALLT

x

Ský

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.