Ský - 01.10.2001, Page 32
FYRST & FREM5T = HEIMURINN
SÚ FJÖLMENNASTA
I meira en fimm hundruö ár hefur Tókýó
verið fjölmennasta borg veraldar, nú með
tæplega 30 milljón íbúa. Tókýó hefur ekki
einn miðbæ, heldur hefur hvert hverfi sinn
kjarna og sln sérkenni. Ef maður ætlar sér
að kaupa rafmagnshitað teppi, fartölvu,
kaloríumæli, sem festur er á bumbuna, eða
fjarstýrðan hrísgrjónasuðupott, fer maður I
Akihabara-hverfið, eða „rafmagnsbæinn”
þar sem eru saman komnar yfir 1.000
verslanir sem selja rafmagnsvörur. Og að
viðskiptum loknum er fátt skemmtilegra en
að setjast niður og horfa á skemmtilegt og
fjölbreytt mannlífið sem þessi risastóra borg
býður upp á. Það er hvergi skrautlegra en
við Harajuku-lestarstöðina, þar sem ungling-
ar borgarinnar hanga til að sýna sig og sjá
aðra. Þar sér maður geishur, hjúkkur og
Japani með afróhár, sem er vlst heitasta
trendið I þessari frábæru borg. ps
BEINN OG BREIÐUR VEGUR
Lengsti óslitni vegur veraldar er Pan American
Highway sem hlykkjast 24.140 kílómetra frá
Fairbanks I Alaska suður til höfuðborgar
Brasllíu, Braslllu. Bygging vegarins var ákveð-
in I Buenos Aires árið 1896, en ekki var
hafist handa fyrr en tæpum þrjátíu árum
síðar, eða 1924, og hefur vegurinn verið I
smíðum allt frá þvl. Vegagerðinni er nú loks
að Ijúka I frumskógum Norður-Kólumbíu,
eftir 77 ára streð. Pan American Highway
liggur um þrettán þjóðlönd. Hann er stystur
I Hondúras, liggur hæst I Ekvador og lengsti
spottinn er í Brasilíu, I gegnum laufþykkni
suðurhluta Amasón-frumskógarins. PS
HÁTT UPPI
Skilgreiningin á skýjakljúfi er bygging sem
nær upp I 90 metra hæð eða meira. í New
York eru nú 584 byggingar sem ná þeirri
hæð, Hong Kong er I öðru sæti með 493
stykki, Chicago I því þriðja með 226 skýja-
klúfa og I fjórða sæti er Shanghai með 198
turna, þar á meðal er hæsti skýjakljúfur jarð-
arinnar, Shanghai World, sem verður opnað-
ur á næsta ári og ris 460 metra upp I him-
ingrámann. Næsthæsta bygging heims er
Petronas-turnarnir tveir I Kuala Lumpur, 8
metrum lægri. í fimmta sæti voru tvíbura-
turnarnir World Trade Center I New York sem
náðu 412 metra til himins fram til dagsins
örlagarika 11. september. ps
30 SKÝ Ljösm. PÁLL STEFÁNSSON