Ský - 01.10.2001, Blaðsíða 34
FYRST & FREMST = LEIKMENN
Að leika sér á Netinu er vinsæl dægradvöl margra tæknióðra Islendinga. Fyrir nokkrum árum
skutu upp kollinum „Massively multiplayer” leikir, þ.e. leikir þar sem margir notendur leika
samtímis. I dag spila milljónir manna innbyrðis í þessari veröld og um leikina hefur skapast
sérstakt samfélag. Jennifer McCormack átti stefnumót við nokkra helstu leiksnillinga íslands.
HÚNI HINRICHSEN (21)
prófar leiki og vinnur aö þróunarverkefn-
um fyrir Crowd Control Productions.
Samband Húna viö veröld „mass-
ively multiplayers” leikjanna hófst
sumarið 1997, þegar hann tók
alpha-próf fyrir Ultima Online. Hann
varö fljótt háöur leiknum og því að
vera meölimurí samfélagi leiksins.,,
„Ultima var fyrsti leikurinn sem skapaði svona samfélags-
munstur í kringum sig og hver einasti leikmaöur þráir að veröa
frægur I sínu leikjasamfélagi.” Húni náöi ekki einungis aö veröa
frægur, hann varö einnig fjöldamorðingi og illræmdur ræningi. „Ég
spilaöi einu sinni í heilt ár án þess aö drepast og stútaöi fjörutíu,
fimmtíu manns á því tímabili.,,
Persóna Húna í Ultima-leiknum, Tom Bombadil (eftir nafna sín-
um í Hringadrottinssögu) var andstæöa hinnar torræðu persónu
Tolkiens. Það kallast cyber-kaldhæðni. Húni lýsir árásargirni per-
sónunnar sem „skemmtilegri” ogfarsælli tækni sem hann notaði
í leiknum sem er án allra takmarka.
„Ég spilaöi í fjögur ár og þaö voru fjögur bestu ár lífs míns.” En
á þessum fjórum bestu árum Húna flosnaði hann upp úr námi í
menntaskóla. Til aö útskýra fyrir mér hversu knýjandi leikirnir eru
útskýrir hann aö eitt skiptiö hafi hann vakað í þrjá daga og þrjár
nætur viö aö stjórna rmiklu blóðbaði um gjörvalla veröld Ultima. „Á
endanum var ég kominn meö ofskynjanir.”
Leikjaffkn Húna hafði þó þýðingarmiklar afleiöingar þegar upp
var staðið. í gegnum vinskap sinn viö eigendur Ultima var Húni hið
fullkomna og augljósa val CCP til aö finna veikleika við prófun
leikjanna. Ogjafnvel þótt hann væri fíkinn í leikina lítur Húni þájá-
kvæðum augum. „Svona læra feimnir nördar samskipti viö annaö
fólk.” Er Húni þá nörd? „Ég var þaö en ekki lengur... ég var nörd
fyrir fimm árum en núna ... er ég kannski kjáni en alls ekki nörd,”
segir hann brosandi.
Húni hefur nú að atvinnu aö prófa leikina, en spilar ekki lengur
utan vinnutlma. Hinn fyrrum Ultima-fjöldmoröingi stefnir aftur á
skólabekk þar sem tölvum verður haldið í öruggri fjarlægö.
Til aö komast í heim Massviely Muitiplayers leikja er hægt að fara
inn á www.eve-online.com og skrá sig í opna beta-prófið í desember
Tom Bombadil, loksins dauöur.
Tom Bombadil, einn í drápsferð.
KARI GUNNARSSON(18)
nemandi í Verzlunarskóla íslands
Hinn sjálfjátaöi nörd Kári
Gunnarsson fann EVE þegar
hann uppgötvaöi heimaslöu
þess leiks. Hann sótti um aö taka pre-alpha próf leiksins og varð
himinlifandi þegar hann var valinn til þess. Þess má geta aö þaö
þykir gríðarlegur heiður aö vera valinn I leikina. Núna er Kári hel-
tekinn. „Ég spilaöi til fimm síðasta laugardagsmorgun,” tjáir hann
mér og bætir viö: „sem var reyndar nokkuð skondiö þar sem eng-
inn annar var aö spila á þeim tíma nema ég."
Auk þess að vera I skóla og vinna hlutastarf sem tæknilegur
ráögjafi hjá Símanum Interneti, eyöir Kári fimm til sex tímum á
dag á Netinu viö aö spila EVE, Quake, Counterstrike og ræða
heimsmálin á spjallrásunum. Þrjár persónur Kára eru kvenkyns til
að rugla prófunarsamfélagiö og skjámyndin er af Mentu, þeirri far-
sælustu sem fáanleg er. „Mér finnst gott aö spila einn því ef ég
væri I liöi myndi ég örugglega skemma fýrir öllum hinum eða þeir
skemma fyrir mér.”
Áöur en Kári fékk ADSL-tengingu voru slmreikningarnir allt að
tuttugu þúsund krónur á mánuði. „En þvl aö vera góður I tölvum
fýlgja líka grlöarlegir atvinnumöguleikar,” segir hann hróöugur.
JÓN PÉTUR MAGNASON(24)
nemandi í tölvunarfræði við Hf
Jón Pétur hefur einnig prófaö
EVE frá alpha-stigi. Persónu
hans, Arthur Dent, var gefið
nafn aðalsöguhetjunnar I bók Douglas Adams, The Hitchhiker’s
Guide to the Galaxy. Meöfram erfiðu námi I Háskólanum, hluta-
starfi sem annars stigs tækniráögjafi hjá tæknideild Flugleiða og
unnustu, tekst Jóni Pétri að spila á Netinu I þrjá til fjóra tíma á dag.
„Kærastan hefur mikinn skilning á áhugamálinu," segir hann.
„Sumir strákar sitja heima, glápa á fótbolta og drekka bjór ... en
þetta er mitt áhugamál.” Jón Pétur varð háður Netinu þegar hann
fékk slna fyrstu tölvu fyrir þremur árum síðum. Núna er hann kom-
inn með ASDL-háhraðanet. „Þaö er sparnaður ef maður er á Net-
inu meira en tvo tlma á dag, hvern einasta dag. Einfalt reiknings-
dæmi,” útskýrir hann.
Jón Pétur er ekki búinn að gera það upp við sig hvort Arthur
verði góöi gæinn, vondi gæinn, eða líkur sjálfum sér, en Arthur er
afkastamesti morðinginn og mesti dópsalinn af öllum persónun-
um I alpha-prófunum. „Þaö ergeggjað að spila hlutverk hinnarfull-
komnu skepnu,” segir hann. Og það er líka gaman að vera nörd
vegna þess að „Nördarverða aldrei alveg fullorönir.”
32 SKÝ Ljósm. PÁLL STEFÁNSSON