Ský - 01.10.2001, Síða 48
feitum börnum og þau beðin um að velja sér leikfélaga. Nær öll
börnin kusu fatlaðan leikfélaga fram yfir þann feita. Þeim fannst feit-
ir jafnaldrar sínir einfaldlega ógeðfelldir. Feit börn fá afar neikvæð
viðbrögð frá umhverfinu og lenda í einelti vegna holdafars síns sem
svo aftur ýtir undir félagslega einangrun. Þeim er einnig strítt ef for-
eldrarnir eru feitir. I kanadískri rannsókn var óbeitur barna á offitu
félaga sinna mældur. Yfir hundrað börn á aldrinum þriggja til níu ára
tóku þátt í rannsókninni og sýndar voru skuggamyndir af börnum
sem voru annars vegar í kjörþyngd og hins vegar of þung. Börnin
áttu að tengja tiltekna skapgerðareiginleika við skuggamyndirnar.
Telpur á aldrinum þriggja til fimm ára töldu börnin sem voru í
kjörþyngd örlát, kurteis og greind, en álitu feitu börnin vera stríðin,
löt og óþekk. Drengir í sama aldursflokki gerðu ekki þennan mun,
en börnin í eldri aldursflokkunum höfðu öll sömu skoðun og yngri
stúlkurnar. Niðurstaðan er afar ógnvekjandi fyrir þung börn, hafi hún
mikið alhæfingargildi, því engin rökrétt tengsl eru sjáanleg.
Offita hefur geysileg áhrif á lífsstíl og samskipti við aðra á fullorð-
insárum. Feitt fólk á erfiðara með að eignast vini og kunningja.
Feitar konur fá mjög skýr skilaboð um að þær séu afbrigðilegar og
ógeðfelldar, mun verri útreið en karlar í sama þyngdarflokki, og eru
álitnar óhamingjusamar, gráðugar, óaðlaðandi og viljalausar. Þær
eiga síður í ástarsamböndum og eru fremur í hlutverki vinar. í
annarri bandariskri rannsókn var hópi nemenda, sem voru að
útskrifast úr háskólanámi sem ráðgjafar í endurhæfingu, sýndar
myndir af grönnu, feitu og ofurfeitu fólki af báðum kynjum. Nemend-
urnir höfðu nær einróma mjög neikvæð viðhorf til hinna ofurfeitu og
þá sérstaklega kvennanna. Af útlitinu að dæma voru þær álitnar
félagsiega óaðlaðandi, þurfandi fyrir meðferð og líklegar til að vera
haldnar geðrænum vandamálum.
Dæmd til einlífis
„Feitir upplifa sig sjaldan sem kynverur því þeir eru auðvitað ósáttir
við sjálfa sig. En þótt feitir þyki ekki gjaldgengir ákveða þeir líka oft
sjálfir fýrirfram að eiga ekki nokkurn séns i hitt kynið," segir Gaui
litli.
Rannsóknir hafa reyndar sýnt fram á að fólk í kjörþyngd forðast
feita í daglegu lífi og stendur til dæmis fjær þeim en öðru fólki á
mannamótum og opinberum stöðum. Mælingar á hjartslætti þátt-
takenda sýndu að ef bilið á milli þeirra og þess feita varð of lítið fór
þeim í kjörþyngdinni að líða illa.
Flugrún Jóhannesdóttir útskrifaðist úr uppeldis-og menntunar-
fræði frá Fláskóla íslands 1995 og skrifaði lokaritgerð um konur og
offitu. í ritgerðinni eru viðtöl við konur á aldrinum 24 til 60 ára sem
voru 30 til 60 kílóum of þungar. í rannsókn Flugrúnar kom fram að
feitar konur gera sér engar vonir um að karlmenn hafi áhuga á að
stofna til ástarsambands við þær og að þær afneiti og útiloki slíkar
tilfinningar hjá sjálfum sér. Reynsla sumra þeirra af ástarsambandi
var eingöngu frá tímabilum í lífi þeirra þegar þær höfðu lagt af, en
um leið og þær fitnuðu aftur, hurfu karlmennirnir óðara á brott.
„Einkennilegt með þessa karla,“ sagði ein þeirra. „Það var svo
skritið að þegar ég grenntist hópuðust þeir í kringum mann, en eft-
ir að ég fitnaði, ég breyttist ekkert sjálf, skilurðu ... manneskjan, en
þá hættu þeir alveg að hugsa um mann. Mér finnst þetta lélegir
karakterar."
Aðeins ein kvennanna var gift. Það lýsir sjálfsmyndinni hvernig
hún horfir á viðhorf eiginmannsins til sín. „Flann skammast sín ekki
fyrir mig í dag en það var frekar hér áður sem hann vildi ekki hafa
mig með, eins og hann skammaðist sín fyrir mig. En það er svo skrít-
ið að það er allt í lagi með kynlífið, það hefur ekkert breyst.“
Útskúfun tískuheimsins
Á sama tíma og sífellt fleiri þjást af offitu forherðist viðhorf þjóðfé-
lagsins sífellt meira til þessa hóps. í fjölmiðlaþjóðfélagi nútímans
eiga allir að vera steyptir í sama mótið, eða stærð 38. Illa feitt fólk
fær jafnvel fjandsamlega afgreiðslu í verslunum og bíði margir eftir
afgreiðslu er feita manneskjan gjarnan afgreidd síðast. Þannig nær
persónan ekki að skína í gegn, fólk sér eingöngu fituna. Þegar feit-
ar konur koma inn í fataverslun fá þær stundum strax framan í sig
að ekkert fáist á þær í versluninni, jafnvel áður en þær ná að bera
upp erindið. Og eru þó kannski bara í þeim erindagjörðum að versla
á tággranna dóttur sína.
Gaui litli lét sérhanna og sauma íþróttafatnað fyrir feita undir
nafninu „Splitt” sem hann stillti fram í þremur sportvöruverslunum.
Að sögn Gauja hentu eigendur verslananna hins vegar merkinu út
eftir skamman tíma á þeim forsendum að það skerti ímynd verslan-
anna að hafa vörur fyrir feita á boðstólum.
En íslendingar þurfa ekki að vera orðnir ofurfeitirtil að eiga í vand-
ræðum með að fá á sig fatnað. Ósk Magnúsdóttir, verslunarstjóri
hjá Stórum stelpum, sem er sérverslun með kvenfatnað í stærðun-
um 42-64, segir að algengasta kvenfatastærð á íslandi sé á bilinu
44-50. Stærstu kvenfatastærðir flestra tískuverslana landsins eru
þó ekki stærðin 44. Flollywood-stjarnan Reneé Zellweger fór úr stærð
34 í stærð 40 fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni um Bridget Jones og
átti að vera sannfærandi sem piparmey í þykkari kantinum. Og kraf-
an um grannan og barnslegan líkama kvenna verður sífellt háværari.
Fjölmiðlar sýna bara eina mynd og hún er af grannri konu. Samkvæmt
könnun Manneldisráðs frá 1990 voru 34 prósent kvenna á aldrinum
15 til 80 ára of þungar eða of feitar og 39 prósent karla. Síðan
hefur þjóðin þyngst og til að gefa raunhæfa mynd af samfélaginu
ætti þvf þriðja hver manneskja á skjánum að vera feit.
„Skilaboðin sem tískuhönnuðir og auglýsingar senda konum eru
vond,” segir Ósk. „Konur í stærð 40 koma til okkar og hafa þá
slæmu sögu að segja að þær fái ekki á sig boli aðra en þá sem ná
rétt niður fyrir nafla. Flestar konur yfir þrítugt hafa hins vegar lítinn
áhuga á að geta ekki teygt sig upp í hillu án þess að það skíni í bert
eða brjóstin á rnilli." Ósk segir telpur allt niður í tólf ára, sem ekk-
ert fá á sig í tískuverslunum unga fólksins, komi í Stórar stelpur og
ástandið versni árfrá ári. „Þegar tímabil ferminga nálgast fýllist hér
allt af fermingarbörnum sem eru í stórvandræðum og koma alls
staðar að lokuðum dyrum."
Vinnufatabúðin býður ein alhliða lausnir fyrir stóra stráka í stærð-
unum frá ÍXL til 7XL.
„Það er miklu dýrara fyrir feita að kaupa sér föt, enda alltaf um
sérsaum að ræða og meiri efniskostnað. Þannig kostar um þúsund
krónum meira að kaupa buxur með mittismálið 170 cm en 110 cm,“
segir F-lildur Símonardóttir, eigandi Vinnufatabúðarinnar. Flún segir
mikla sálfræðilega vanlíðan fyigja offitu, feitir séu feimnir og líði illa
við að fara í búðir og trassi því að endurnýja fataskápinn. Flún
segir og stefnu hjá tískuhönnuðum merkjavöru að hanna eingöngu
flíkur á þá sem eru grannir og í góðu formi, að hönnuðir hafi sagt
blákalt að feitir krakkar og unglingar hafi ekki rétt á því að nota sinn
stTI erða merki. „Auðvitað heitir þetta að troða á mannréttindum. Því
fylgir geysileg vanlíðan fyrir sextán ára ungling að vera til fara eins
og lúði og alveg ferlegt að neyðast til að ganga um í köflóttum karla-
fötum og gulrótarbuxum af því að annað er ekki til. Það er einfald-
lega ekki sanngjarnt og þvT svörum við með því að láta sauma og
hanna fýrir okkur tískufatnað fyrir yngstu aldurshópana sem fer í
sölu nú í haust og vetur.”
Skert ferðafrelsi
Feitir einstaklingar líta gjarnan á sjálfa sig sem hálfgerð fýrirbæri
sem varla eiga sér tilverurétt. Þeir missa því oft af lífinu. Flestir
hinna feitu fara aldrei í sund, aldrei í útilegur þar sem göngutúra er
krafist og aldrei á bari eða aðra félagslega viðburði. Félagsleg ein-
angrun þeirra er næstum algjör. Niðurstöður rannsókna hafa sýnt að
félagslega og andlega eru tvenns konar aðstæður erfiðastar feitu
46 SKÝ ÓSÝNILEGA FÓLKIÐ