Ský - 01.10.2001, Blaðsíða 60

Ský - 01.10.2001, Blaðsíða 60
leiksýningunni af annarri, Hilmar Jónsson leikstjóri sem er orðinn einn „heitasti" leik- húsmaður landsins - og það ekki að ástæðu- lausu; myndlistarmenn sem virðast geta selt allt sem þeir gera, jafnvel áður en þeir gera það, fyrir morð fjár, einstakir söngvarar eins og Diddú eða Olafur Kjartan og svo framveg- is. Og ekki má gleyma Sveini Einarssyni, sem að sögn kunnugra virðist enn hafa mikil ítök á sumum sviðum. í öðru lagi eru það stórfiskarnir, fólkið með peningaráðin og völdin til að velja og hafna í listaheiminum. Þar er Þórunn Sigurðardóttir (Listahátíð) auðvitað fremst á meðal jafn- ingja og í raun sú eina sem hefur eitthvað að segja í öllum geirum menningarinnar. Löng- um hefur verið talað um klíkuskap og bak- tjaldamakk í kringum fyrirbæri eins og Lista- hátíðina og Menningarárið, sem hún stjórn- aði einnig, en flestir sem rætt var við voru á því að menn kæmust að minnsta kosti jafn- langt á eigin verðleikum hjá Þórunni og ein- hverjum kunningsskap. „Það liggur held ég í augum uppi að það hjálpar upp á sakirnar að þekkja hana eða hennar fólk, en ég held að það sé tómt mál að tala um einhverslags mafíu eða einkavinavæðingu í kringum það apparat allt,“ sagði einn þeirra sem rætt var við, og aðrir tóku í svipaðan streng. í þriðja og síðasta lagi er það nafnlausa fólk- ið á bak við tjöldin, fólkið í öllum nefndunum og stjórnunum. „Þú sérð þetta fólk kannski á opnunum og frumsýningum, á tónleikum og við verðlaunaafhendingar, en þú veist sjaldan hvaða hlutverki það gegnir og enn sjaldnar hvað það heitir," sagði tónlistarmaður sem hefur aldrei skilið af hverju hann fær stund- um styrk og stundum ekki og aldrei áttað sig á ástæðunum að baki ákvörðunarinnar hverju sinni. Þetta er fólkið sem ákveður hver fær listamannalaun, hver fær styrki til kvik- myndagerðar, til þýðinga og kynninga á bók- menntum, til sýningarhalds á erlendri grundu o.s.frv. Ákvarðanir þessa fólks geta oftar en ekki skipt sköpum fyrir fjárhagslega afkomu og faglegan frama listamanna. „Þótt þetta sé í sjálfu sér tiltölulega lítill hópur, sjálfsagt ekki mikið fleiri en hundrað manns í það heila, sem tekur örlagaríkar ákvarðanir, þá er það bara eðlilegt í þessu litla landi. Það er fráleitt að tala um einhverja mafíu eða klíku í því sambandi, svona í heildina tekið. Fæstir eru í fleiri en einni nefnd eða stjórn, þótt þess séu auðvitað dæmi, og þetta er afar sundur- leitur hópur fólks með lítil innbyrðis tengsl." Ævar Öm Jósepsson er lausapenni og útvarpsmaður. HINIR ÁSMUNDUR JÓNSSON útgefandi hjá Smekkleysu (Ási í Gramminu). „Ennþá meö puttann á púls- inum og með góö sambönd I allar áttir. Mun frjórri en Skífuliðið og kaldari llka, oft eina von þeirra sem músísera utan alfaraleiða." BALTASAR KORMÁKUR leikari, leikstjóri og fram- leiðandi. „Var að brenna út á ofnotk- un sem leikari, en fór svo að gera góða hluti sem leik- stjóri, bæði í leikhúsunum og kvikmyndunum. Eiltfðar- töffari og kemst líklega upp með það.“ BENEDIKT ERLINGSSON leikari og leikstjóri. „Benedikt er sá eini sem manni dettur í hug svona einn tveir og þrír sem hugs- anlegur eftirmaður kóngsins í Þjóðleikhúsinu." „Mikill snillingur, framtíðar- maðurinn í íslensku leikhúsi. Þegar orðinn virtur leikhús- maður bæði hér heima og á Norðurlöndunum." BJARNI DANÍELSSON framkvæmdastjóri íslensku óperunnar „Bjarni er feikilega duglegur og hefur tekist að stórauka fjárframlög rtkisins til óper- unnar, sem meðal annars leiddi til fastráðningar fyrsta söngvarans. Þeir gætu átt eftir að verða fleiri." „Það er ekki síst fyrir til- komu Bjarna að alræmdur klíkuskaþurinn í kringum óperuna hefur vikið fyrir til- raunum og því að gefa ung- um og upprennandi söngvur- um og tónlistarmönnum tækifæri, sem er afar já- kvætt.“ EDDA JÓNSDÓTTIR Gallerí i8 „Gallert i8 er eina alvöru galleríið hér þar sem alvöru samtímamyndlist er seld og Edda er fyrsta manneskjan sem hefur búið til gallerí sem rekið er á svipaðan hátt og erlendis, þar sem hún prómóterar íslenska listmenn með ærinni vinnu og kostnaði. Hetjan t ts- lensku myndlistarlífi.“ GUÐJÓN PEDERSEN leikhússtjóri í Borgarleikhúsinu „Guðjón hefur ekki endilega svo mikil völd, enda sækist hann ekki eftir þeim. Hann er draumóramaður og snill- ingur á stnu sviði. Gjöróltkur kollega sínum í Þjóðleikhús- inu, hann hefur ákveðna sýn á leikhúsið og vill hafa gam- an að þessu, frekar en að eltast við að ráða alltaf öllu sem gerist í kringum hann.“ HANNES SIGURÐSSON safnstjóri Listasafns Akureyrar og framkvæmdastjóri art.is. „Er að gera gríðarlega skemmtilega og spennandi hluti í myndlistinni ásamt Jóni Proppé og fleirum. Samttmalistamenn fá mun meiri stuðning frá þeim en nokkurn tímann stóru söfn- unum tveimur, sem eru meira í gömlum meisturum og viðurkenndum nöfnum." HILMAR JÓNSSON leikstjóri hjá Hafnarfjarðarleik- húsinu Hermóði og Háðvöru. „Einn albesti og skemmti- legasti leikhúsmaðurinn sem við eigum t dag, frum- legur, vogaður, en samt óhræddur við að setja upp „kassastykki" og góður t því Itka - „a man for all seasons" og ásamt Benedikt Erlings- syni líklegasti arftaki annars hvors stóru leikhúsanna - þótt hann virðist dafna vel t Firðinum." JÓHANN PÁLL VALDIMARSSON framkvæmdastjóri JPV forlags. „Ætlaði að verða kóngur t rtki sínu eftir áralanga dvöl við hirðina hjá Halldóri [Guðmundssyni, Máli og Menningu] en varð fljótlega landlaus. Er risinn upp við dogg á ný með góða sveit sér við hlið. Gæti svo sem dafnað, en nær aldrei þeim status sem hann hafði þegar hann var héraðsstjóri hans hátignar t Forlaginu." MAGNÚS GEIR ÞÓRÐARSON leikstjóri og leikhússtjóri Leikfélags íslands „Magnús er búinn að vera efnilegur svo lengi að það hlýtur bara eitthvað að fara að gerast. Það hlýtur að vera. Góður strákur, en vant- ar kannski aðeins dirfskuna - á listræna sviðinu frekar en þvt viðskiptalega." SNÆBJÖRN ARNGRÍMSSON útgefandi í bókaútgáfunni Bjarti „Snæbjörn er náttúrlega snillingur og hefur verið að gera alveg ótrúlega hluti stðustu árin. Er kominn til að vera og vonandi vaxa mjög og eflast. Fyllilega treystandi til þess að vera riddari réttlætisins og smælingjanna í baráttunni gegn hinu illa stórveldi 58 SKÝ ÍSLENSKUR MENNINGAR AÐALL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Ský

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.