Ský - 01.10.2001, Síða 67
Hvar liggja línurnar núna að þínu mati? Ég held að við höfum ekki
svo einfaldar skýrar línur. Áður fyrr var skiptingin tengd stjórnmála-
flokkunum. Það er ekki þannig í dag. Nú eru menn að takast á á allt
öðrum forsendum en áður. Nú snýst þetta um persónuleg samskipti
manna, gagnkvæma hagsmuni fyrirtækja og þess háttar. Það getur
líka verið hættulegt.
Þannig að stjórnmálaflokkar eru ekki lengur með puttana í
atvinnulífinu? Ekki á sama hátt. í stjórnunarstöðum í atvinnulífinu
eru sjálfstæðismenn t miklum meirihluta. Þeir eru hins vegar ekki í
sömu samskiptum við flokksforustuna og fylgja ekki óskum hennar
á sama hátt og áður. Almennt má segja að stjórnmálaflokkarnir hafi
orðið hálf viðskila við atvinnulífið og einangrast frá þjóðltfinu.
FÁTT MEÐ OKKUR ÓLAFI RAGNARI
Á sinum tíma varst þú kominn með annan fótinn í stjórnmál, og þú
varst flokksbundinn í Alþýðubandalaginu. Ætlaðir þú út í
stjórnmál? Ég get hvorki sagt já eða nei við því. Það er rétt að ég
var aldrei með nema annan fótinn t stjórnmálunum og kannski haltr-
aði ég á þeim fætinum alla tíð. Ég vafðist inn í þetta meira vegna
þeirra tengsla sem ég átti við menn I mínum daglegu störfum. Þarna
voru margir félagar mtnir virkir. Mér fannst að það gæti verið æski-
legt að fylgja ýmsu eftir sem ég var að vinna að með þvt að fara inn
á þing, ef sá möguleiki væri fyrir hendi. En hins vegar var Ijóst alla
ttð bæði gagnvart sjálfum mér og öðrum, að það sem skipti mig
mestu máli var að vinna sem best fyrir ASÍ. Ég lenti því t pólitíkinni,
innan flokksins, í barningi við ýmsa sem höfðu ýmislegt upp á Al-
þýðusambandið að klaga. Ég lagaði mig lítið að þeim umkvörtunum.
Þannig reyndi ég aldrei að spila mig sem pólittkus til þess að koma
sjálfum mér áfram. Enda gekk mér ekki vel að koma mér áfram.
Er það ekki rétt munað hjá mér að þér hafi sinnast talsvert við Ólaf
Ragnar Grímsson, samflokksmann þinn og flokksformann á þess-
um tíma? Jú, það var reyndar fátt með okkur Ólafi áður en hann varð
flokksformaður. Það átti sér langan aðdraganda.
Af hverju var fátt með ykkur? Ég ætla ekki að hafa uppi neina palla-
dóma um forseta lýðveldisins. Ég held ég láti það alveg liggja.
Var þetta málefnaágreiningur eða varðaði þetta persónuieg sam-
skipti ykkar? Það er t raun óhætt að segja að það hafi verið blanda
af þessu öllu saman.
Ákvaðst þú að hætta afskiptum af stjórnmálum út af samskiptum
þínum við Óiaf? Ég vil ekki persónugera það t Ólafi, en það er alveg
rétt að ég var hættur öllum afskiptum mtnum af Alþýðubandalaginu
töluvert áður en ég hætti sem forseti Alþýðusambandsins. Það var
almennt mikið ósætti innan flokksins og væntanlega er það þannig
að fyrr eða seinna verða flestir þreyttir á þvt að þrasa við þá sem
eiga að teljast samherjar. Þá er tímanum betur varið annars staðar.
Það var mín niðurstaða á þeim tíma.
MISHEPPNUÐ SAMFYLKING
Hvar stendur þú í pólitík núna? Ég get orðað það í fullri hreinskilni
þannig að ég ætla að neyta leynilegs kosningaréttar.
Þú vilt ekki segja neitt meira um það? Ég ætla ekki að segja meira
um það. Ég held að vtsu að það þyrfti eitthvað mikið að koma fyrir
mig til þess að ég færi að kjósa Sjálfstæðisflokkinn.
Af hverju kýstu hann ekki? Af því að Sjálfstæðisflokkurinn gengur
þannig gegn minni grundvallar- félagslegu lífssýn að ég á erfitt með
að gera það. Það er bara eitthvað sem setur hurðina framan í mig,
ef ég má orða það þannig. Félagsleg viðhorf skipta mig mjög miklu
máli. Ég á hins vegar erfitt með að finna mér fastar rætur í þeim
flokkum sem í boði eru.
Hvaö finnst þér um sameiningu vinstri flokkanna í Samfylkingunni?
Sameiningin tókst ekki. Það liggur á borðinu t dag. Eftir standa tveir
flokkar af svipaðri stærð og flokkurinn sem liggur lengra til vinstri er
reyndar orðinn stærri en þessi sameinaði. Maður getur velt því fyr-
ir sér af hverju það gerðist. Það tókst ekki að ná vinstri mönnum
saman. Var það vegna þess að viljann skorti? Var það vegna þess
að það var fólk í flokkunum sem taldi að það væri einfaldlega mjög
gott að hafa einhvern til þess að taka fyrir sig kommagrýluna vinstra
megin við sig? Ég sit eftir með þá tilfinningu að menn hafi ekki lagt
það á sig sem þurfti til þess að mynda samstæðan hóp í upphafi og
sameiningin hafi aldrei orðið raunveruleg. Þeir sem voru virkir í flokk-
unum gengu flestir saman í flokk, en fylgið elti þá ekki, allavega ekki
varanlega. Ef við horfum til Samfylkingarinnar, þá höfum við í mtn-
um huga fengið nýjan Framsóknarflokk, sem veit ekki í hvorn fótinn
hann á að stíga og tiplar þannig á tánum t kringum sjálfan sig án
þess að vita hvar hann á að stansa.
En ertu hliðhollur Vinstri grænum? Ég er um margt hliðhollur þeim.
Steingrímur er ótrúlega öflugur talsmaður. Þó finnst mér margt í
þeirra málflutningi ganga mjög sterkt í afturhaldsátt. Mér finnst mik-
ið skorta á að Vinstri grænir hafi skýra þjóðfélagssýn.
Þú deilir ekki skoðunum með fyrrverandi koilega þínum í verka-
lýðsbaráttunni, Ógmundi Jónassyní? Að sumu leyti geri ég það.
Ögmundur er að mtnu viti ærlegur félagssinni. Jöfnuður og réttlæti
skipta Ögmund miklu máli. Ögmundur er hins vegar um leið ærið
íhaldssamur.
Séröu eftir því að hafa ekki farið útí stjórnmál? Nei, ég sé ekki eft-
ir þvt. Ég held að ég hafi ekki verið efni í stjórnmálamann.
Af hverju ekki? Það eru margar ástæður fyrir því. Það má að mtnu
mati skipta stjórnmálamönnum í tvo hópa. Annars vegar eru þeir
sem eru senusjúkir og gera allt til að baða sig t sviðsljósinu og hins
vegar eru þeir sem eru valdasjúkir og vilja öllu ráða. í stjórnmálun-
um t dag eru þeir senusjúku að mestu ráðandi og fáir sem halda
fast við sömu viðhorf frá degi til dags. Ég fell í valdasjúku deildina
og hefði því fallið illa í hópinn. Ég hefði ekki verið góður maður í
stjórnmálum. Stjórnmálin mega vera fegin að losna við mig og ég er
feginn að vera laus við þau.
Aö lokum, Ásmundur, fyrst þú fórst ekkl í stjórnmál þá hlýtur þú að
hafa meiri tíma en ella. Hvað gerir þú í þínum frístundum? Ég les
mjög mikið. Um allt milli himins og jarðar. Skáldsögur, hagfræði,
pólittk, trúmál, sagnfræði, svo eitthvað sé nefnt. Ég er alæta á
bækur.
Þú hlýtur þá að vera fullur af fróðleik um alla skapaöa hluti? Nei,
það er allt annað mál. Ef ég bara gæti munað allt sem ég les. Ég
gleymi öllu jafnóðum.
Guömundur Steingrímsson er lausapenni í Reykjavík.
LÍFIÐ ER HARÐUR LEIKUR SKÝ 65