Ský - 01.10.2001, Page 69
Ljósm. MARKELL (Mynd úr myndbandi).
13: ÓMUR FLJÚGANDI DISKA
Umsjón: INGI FREYR VILHJÁLMSSON Og JÓN KALDAL
Á þessu ári varð til ný og öflug útungunarstöð fyrir íslenska tónlistarmenn þegar tónlistarútgáfa
Eddu - miðlunar og útgáfu var sett á laggirnar. Útgáfan hefur það markmið að gefa út fjölbreytta
og vandaða íslenska tónlist, jafnt rokk sem klassík, djass og fönk, raftónlist og popp. Strax á
þessu fyrsta starfsári hafa litið dagsins Ijós fjölmargir nýir titlar sem spanna vítt svið. Meðal þeirra
listamanna sem gengið hafa til liðs við Eddu - miðlun og útgáfu eru þeir sem hér er fjallað um
í máli og myndum.
Þegar ég foeyrði í þeipn fyrst varö ég fitoftíjgöíj
ÞEIR UPPRISNU: HAM
SKERT FLOG ... upptökur frá eftirminnilegum tónleikum á Gauknum í sumar.
„Þaö er nú oft þannig meö þær hljómsveitir sem hafa haft hvaö mest áhrif í heimínum, aö þær hafa
ekki oröið neitt sérstaklega vinsælar, aö minnsta kosti ekki á meðan þær voru I gangi. Til dæmis seldi
Velvet Underground aldrei mikið af plötum, en það hefur verið sagt aö allir þeir sem eignuöust plötu
með hljómsveitinni á sínum tíma hafi svo seinna stofnaö hljómsveit. Ég held aö Ham sé kannski
dálítið svoleiöis band.” ólafur páll gunnarsson, útvarpsmaður.