Ský - 01.10.2001, Qupperneq 76

Ský - 01.10.2001, Qupperneq 76
BFEKUR = NYJRR RRDDIR MYRKRINU FYLGJA BÆKUR Það er haust og ein óveðurshelgi hefurstolið appelsínugulu laufunum af trjánum. Krakkar feta gráa stíga klyfjuð skólatöskum sem geyma epli, pennaveski og stílabók. í stílabækur skrásetjast ritgerðir. Um ömmu í sveitinni, pabba þegar hann skaut stóra fuglinn og gull- fiskinn sem drukknaði. Sögur barn- anna eru skemmtiefni haustsins. Svo líður að jólum. Desember. Þá marrar í frosnum skrefum, angan af vanilluhringjum stelst út um gluggana og músastigamannvirki taka við í skólastarfinu. Þá koma líka ritgerðir fullorðna fólksins. Þykkar, margslungnar og óræðar. Jólabækurnar. Þessi fyrstu jól ald- arinnar koma út hátt í fimmtíu ný íslensk skáldverk. Spennandi draugasögur eftir börn. Lokkandi Ijóð. Dónalegar skáldsögur. Eld- heitar ástarsögur og óhugnanleg sakamál. Þetta er fyrir utan allar ævisögurnar, samtalsbækurnar og aðra bókaútgáfu. Jafnspennandi og að uppgötva hvað Skyrgámur hefur sett í skó- inn, verður gaman að sjá hvaða höfundar hafa ratað í jólapappírinn að þessu sinni. Mörg helstu skáld þjóðarinnar hafa setið önnum kafin við skrifpúlt sín og tefla fram uppskeru sinni. Þar má nefna Einar Kárason, Vigdísi Grímsdóttur, Þorvald Þorsteinsson, Hallgrím Helgason, Matthías Johannessen, Steinunni Sigurðardóttur og Arnald Indriðason: auk ýmissa annarra leyndarmála sem koma upp úr kafinu síðustu mínúturnar fyrirjól. Hér á eftir fá lesendur smjörþefinn af fjórum ólíkum þókum, þetta eru tvö skáldverk eftir nýja höfunda, ein samtalsbók og ein bók sem má kalla samtímasagnfræði. Það er hægt að telja þá á fingrum annarrar handar sem senda frá sér sín fyrstu skáldverk fyrir þessi jól. Meðal nýliða í rithöfundastétt eru þeir Jón Atli Jónasson og Magnús Guðmundsson sem eiga það líka sameiginlegt að starfa báðir á auglýsingastofu. Þeir mátuðu reynslu sína og væntingarhvor á öðrum. Jón Atli Jónasson: Skipti þetta einhverju máli við skrifin, það er að segja að þú ert að vinna á auglýsingastofu? Magnús Guðmundsson: Það hentaði vel því sem ég var að skrifa, um að vera í tengsl- um við atvinnulífið. Auglýsingabransinn er nefnilega uppfullur af alls konar kenningum sem eru í raun ekkert annað en almenn skynsemi. Markaðsfræði og stjórnun eru hugtök sem ég kem inn á í bókinni minni. Ekki síst út frá þvT að í þessum þransa erum við alltaf að spá og spekúlera hvernig við getum skorað, ef svo má segja. Hvað með þig? JAJ : Mér fannst ég aðallega ekki vera nógu þjáður. Þannig að ég píndi mig. Aug- lýsingabransinn er rotin atvinnugrein og hún var farin að eyðileggja mig innan frá. Það er í gangi einhvers konar ritskoðun hugmynda sem er falin bak við slétta grímu aukinnar sölu og hlýlegs notendaviðmóts. MG: Mér finnst samt sem áður felast ákveðin ögun í því að þurfa að vera að gera eitthvað skemmtilegt innan þessa ramma árangurs og skilaboðin eiga að vera ákveðin. En leiðin er samt oþin. Það felur T sér ákveðin forréttindi að fá að láta eins og fífl í vinnunni. JAJ: Um hvað er bókin þín? MG: Hún fjallar um tæþlega fertugan mann sem telur sig hafa fundið lausnina á því hvernig á að lifa lífinu. Og það er þara aldrei að vita nema að hann hafi eitthvað til síns máls. JAJ: Bókin mín er safn ellefu smásagna sem eru skrifaðar fyrr á þessu ári. Þetta eru samtímasögur og gerast flestar T Reykjavík. MG: Á að halda áfram að skrifa? JAJ: Það sem útgáfa þessarar þókar gaf mér að vissu leyti er hugrekkið til að halda áfram. Ég hef lært heilmikið á því að standa í þessari útgáfu og er kominn ágæt- lega af stað með næstu bók. En þú? MG: Það verður bara að ráðast. Mér finnst hreint ekkert skemmtilegt að taka höfnun og ætla að anda með nefinu og sjá hvað setur. Kannski legg ég það svo á herðar út- gefanda míns að ákveða framhaldið. JAJ: Þórbergur lét líða tíu ár á milli fyrstu og annarrar bókar. MG: Hann hefur þá lært að vanda sig. Sigurvegarinn eftir Magnús Guðmundsson og Brotinn taktur eftir Jón Atla Jónasson eru að koma út hjá Forlaginu um þessar mundir. 74 SKÝ Ljósm. PÁLL STEFÁNSSON
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Ský

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.