Árbók Reykjavíkurborgar - 01.12.1990, Blaðsíða 175
159
skipulagi breytt að ósk lóðarhafa. Innan mánaðar frá úthlutun skal
greiða ákveðinn hluta gatnagerðargjalds, skv. ákvörðun borgarráðs, ella
fellur úthlutun sjálfkrafa úr gildi. Borgarráð ákveður gjalddaga og
greiðsluskilmála á eftirstöðvum. Gatnagerðargjald af rúmmáli, sem er
umfram það sem lágmarksgatnagerðargjald er miðað við skv. framansögðu,
fellur i gjalddaga, þegar byggingarnefndarteikning er samþykkt og skal
greiða það eigi siðar en innan mánaðar. Verði breytingar á
byggingarkostnaði visitöluhússins á þeim tima, sem liður frá
lóðarúthlutun og til þess dags, sem teikning er samþykkt, skal umfram-
gatnagerðargjald greiðast skv. þvi rúmmetragjaldi, sem gildir þá. Hafi
skipulagi lóðar verið breytt samkvæmt framansögðu áður en byggingar-
nefndarteikning er samþykkt, skal umframgatnagerðargjald geiðast
samkvæmt þvi rúmmetragjaldi, sem við á samkvæmt hinu nýja skipulagi.
Þegar byggt er á eignarlóð, áður úthlutaðri lóð eða eldra hús er
stækkað, skal greiða allt gjaldið við útgáfu byggingarleyfis.
5. gr.
Hafi byggingarleyfi fallið úr gildi eða verið fellt úr gildi skal við
endurnýjun leyfisins greiða skv. þágildandi gjaldskrá af þeim hluta
byggingarinnar, sem byggingarleyfi er endurnýjað fyrir, að frádregnu
þvi gatnagerðargjaldi, sem áður hefur verið greitt af sama áfanga.
6. gr.
Nú er lóð endurúthlutað og skal þá greiða gatnagerðargjald á grundvelli
þeirrar gjaldskrár, sem i gildi er, þegar úthlutunin fer fram. Nú
hefur gj aldskrá hækkað frá frumúthlutun og er þá heimilt að veita
undanþágu frá ofangreindum skilmálum, þegar eftirfarandi skilyrðum er
fullnægt:
1. Fyrri lóðarhafi hefur byrjað framkvæmdir innan árs frá þvi að lóð
varð byggingarhæf.
2. Framkvæmdir eru komnar það langt, að botnplata hafi verið steypt
og gengið frá lögnum og fyllt að sökkli.
3. Fyrri lóðarhafi leggur fram reikninga fyrir kostnaði hans
vegna lóðarinnar.
Gatnagerðargjald skal þó aldrei vera lægra en gatnagerðargjald eins og
það var við frumúthlutun, að viðbættum 30 af hundraði þeirrar hækkunar,
sem orðið hefur á gjaldskránni.
7. gr.
Ef lóðarhafi ætlar að byggja á lóð i áföngum getur borgarráð heimilað
áfangaskiptingu, en þá skal endanlegt gatnagerðargjald vera rúmmetra-
gjald, sem i gildi er, þegar byggingarleyfi hvers áfanga er útgefið.
Umsækjandi skal taka það sérstaklega fram i umsókn um úthlutun lóðar,
að hann ætli að reisa fyrirhugað mannvirki í áföngum.