Foreldrablaðið - 15.12.1941, Page 6
6
FORELDRABLAÐIÐ
er stýrir gjörðum móðurinnar í upp-
eldisstarfinu, megnar eigi ætíð að blása
henni í brjóst hinu rétta.
„Menn erum vér sem þér,“ kvað post-
ulinn Páll forðum. Með þeim mæli-
kvarða ætti og heimili og skóli að meta
hvort annað.
Þetta litla blað, sem nú í fyrsta sinn
berst ykkur Akurnesingum í hendur, á
að vera boðberi frá skólanum til heim-
ilanna. Blaðið á að verða hin útrétta
hönd skólans til heimilanna. Hönd,
sem er fús til samvinnu. Hönd, sem
vill leiðbeina, sé hún þess megnug.
Hönd, sem fyrst og fremst telur hlut-
verk sitt vera að mæta heimilunum með
hlýju taki samúðar og skilnings, svo að
hin nýja kynslóð fái sem staðbeztan og
ríkulegastan arf. Arf, er hún á þroska-
árum fái þakkað og metið.
Þá er hinn kunni þýzki biskup, Mar-
tin Niemúller, sér allar borgir brotnar
að lokinni síðustu heimsstyrjöld, þá
verður niðurstaða heilabrota hans
þessi:
„Mér var orðið ljóst, að endurfæðing
þjóðarinnar hlaut að verða fyrir atbeina
algjörs afturhvarfs til siðgæðis og sið-
ferðisþroska. Örlög þjóðarinnar í fram-
tíðinni voru algjörlega komin undir
fjölskyldunni, skólanum og kirkjunni,
sem eru gróandstaðir skapandi lífsafla
með hverri þjóð.“
Munu ekki þessi orð eiga erindi til
mannkynsins og hverrar einstakrar
þjóðar einmitt í dag? Þarf hin íslenzka
þjóð eigi nú fremur en nokkru sinni
fyr að gjöra sér ljóst, hvar „gróand-
staðir skapandi lífsafla“ hverrar
mannssálar liggja? Er nokkur annar
vegur til að varðveita hin sönnu verð-
mæti lífsins en einmitt sá, að þessir
Yngstu
nemendurnir
Ein merkasta nýung fræðslulaganna
nýju, sem samþykkt voru 1936, var nið-
urfærsla skólaskyldunnar. Tveimur ár-
um áður en lögin gengu í gildi, hafði
skólaskyldan hér á Akranesi verið færð
niður úr 10 ára aldri í 7 ára aldur. Einn-
ig hafði námstími barnanna verið lengd-
ur úr 6 starfsmánuðum árlega í 7 mán-
uði. En með áðurnefndum lögum eru
skólaskyldur bundnar við 1. maí árið
sem -börnin verða 7 ára. Síðan byrjar
skólinn aftur 1. september og lýkur síð-
asta maí, til 10 ára aldurs. Niðurfærslan
nemur því tveimur starfsmánuðum ár-
lega frá því, sem orðið var hér. Það má
því segja, að hinir ráðanadi menn þessa
skólahéraðs hafi verið nokkuð á veg
komnir, að starfrækja hin nýju lög, að
þessu leyti, áður en þau voru staðfest.
Áður en þessar breytingar hófust komu
börnin í skólann 10 ára gömul, og áttu
þá að hefja alhliða nám. Ætlast var til,
að heimilin hefðu þá séð þeim fyrir und-
irbúningsnámi í lestri, skrift og reikn-
ingi, Þessi kennsla heimilanna var jafn
„gróandstaðir“ leitist við að bæta
hver annan upp með lifandi samstarfi.
samúð og skilningi?
Foreldrablaðinu er ætlað að verða
einn hlekkur, örsmár að vísu, í þeirri
keðju, sem þarf og á að verða svo
sterk, að takast megi að forða hinni ís-
lenzku þjóð frá að hníga í djúp lasta,
siðleysis og hvers konar úrkynjunar.
Svafa Þórleifsdóttir.