Foreldrablaðið - 15.12.1941, Blaðsíða 16

Foreldrablaðið - 15.12.1941, Blaðsíða 16
16 FORELDRABLAÐIÐ sín gegn mjög vægu gjaldi (1 kr. fyrir 3 mánuði). Nú líta ef til vill einhverjir svo á, að skólabörnum nægi lexíunámið eitt. En hve mörg börn mundu að loknu skóla- námi hafa lestrarlöngun, ef þau hefðu engum bókum kynnst nema námsbókum sínum? Og alltakmarkað hygg ég, að hugmyndaflug þeirra væri, ef þau fengju aldrei að kynnast æfintýrum og sögum við sitt hæfi. Auk þess er það fullvíst, að lestrarnám fer fyrst að verða létt og ljúft, er börnin fara að kynnast þeim heimi, sem birtist þeim í æfintýrunum. Ef þau sjálf fá áhuga fyrir að lesa sér til skemmtunar, þarf varla að kvíða því, að þau verði ekki furðu fljótt læs. En svo dýrar sem bækur eru nú, ætti það að hafa allmikla þýðingu, að minnsta kosti fyrir hin efnaminni heimili, að börn þeirra geti án stórra fjárútláta, haft nægilegt lesefni við sitt hæfi. Að endingu vil ég geta þess, að ég vil gjarnan kaupa fyrir bókasafnið eftir- taldar bækur: Bláskjá, Gosa og Önnu- Fíu, öll bundin. Væri mér þökk á, ef einhver vildi selja bækur þessar, að hann gerði mér viðvart. Fegins hendi mundi því og verða tekið, ef einhver sýndi safninu þann velvilja, að gefa því notaðar barna- og unglinga-bækur. Svava Þórleifsdóttir. -----„Það verður á bók þess svo varlega að skrifa, sem veikur er fæddur og skammt á að lifa.“ (Þorsteinn Erlingsson.) ýA.olar —- — „En nú eru fleiri barnakennarar en þeir, sem í skóla ganga og ráðnir eru til þess að lögum. Allir, sem umgangast börn, taka þátt í uppeldi þeirra með orðum sínum og eftirdæmi, hvort sem þeir ætlast til þess eða ekki, hvort sem þeir eru samvistum við þau lengur eða skemur“. „ Aldrei verður þú að manni, drengur minn“, sagði gestur við sjö vetra svein, er var að bisa við að velta steini í hús- vegg handa sér. Sveinninn man þau orð enn á áttræðisaldri. Þau hafa fylgt hon- um síðan. Fyrir fleiri orð en blót og róg eigum vér reikning að standa á dómsdegi. í þessu efni er því hverjum manni ærinn vandi á hendi og þörfin al-/ menn á fræðslu og hollum ráðum“. (Sr. Magnús Helgason. Uppeldismál). * -----„Það er mesti misskilningur að halda, að öll leikföng þurfi að kaupa dýrum dómum, Á hverju heimili fellur margt það til og komast má yfir með hægu móti ýmislegt, sem er ágæt leik- föng, ef höfð er hugsun á að halda þessu til haga handa börnunum.----------Ef hinir fullorðnu sýna barninu hugulsemi í þessu efni, mun það ekki þurfa á ýkja- mörgum aðkeyptum leikföngum að halda, ef það að öðru leyti hefir góð leikskilyrði.“ (Dr. Símon Jóh. Ágústsson. Leikföng). Prontsmiðjan Edda, li.f. Iloylijavík 1941

x

Foreldrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/1825

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.