Foreldrablaðið - 15.12.1941, Blaðsíða 9

Foreldrablaðið - 15.12.1941, Blaðsíða 9
FORELDRABLAÐIÐ 9 Eins og fyr er getið hefir frjáls teikn- ing sérlega mikla þýðingu, sem undir- búningum fyrir skriftarkennslu. Einnig eykur hún hugmyndaauðgi og sjálfstarf barnanna. Þegar á tveggja til fjögra ára aldri, hafa þau yndi af og þörf fyrir að teikna. Sjálfsagt er að leyfa þeim það. Til þess þurfa þau að fá nægan pappír, mjúkan blýant og helzt liti. Til sparn- aðarauka má nota hverskyns ljósleitan umbúða- eða blaðapappír, sem til fellur, til þessara fyrstu listaverka.. En varast ber að gagnrýna um of teikningar barn- anna eða gera gys að þeim. Til að glæða reglusemi barnanna í starfi og leik, verður ekki of oft brýnt fyrir börnunum að hverfa ekki frá áhöldum sínum, blýöntum, litum, bókum o. s. frv. á ringulreið, til annara leikja, þegar þau eru að hætta að vinna, heldur láti þau hvað eina á sinn stað, t. d. í töskuna, svo að allt sé með, þegar lagt er: „Af stað í skólann“. Ég get ekki stillt mig um að minna á það hér, hvílík nauðsyn það er börnun- um að hátta snemma á kvöldin, og fá þannig nægilegan svefn. 7—8 ára börn þurfa að sofa minnst 11 tíma. Sé því framfylgt er lítil hætta á að börnin komi of seint í skólann og þrótturinn og fjörið er nægilegt til starfs og leikja daginn eftir. Að síðustu vil ég segja þetta um heim- ilin og skólann, almennt. Það er mikið rætt, hér sem annars- staðar, um lítinn árangur af langri skólavist barnanna. Eru þá oft kveðnir upp þungir dómar, en léttir skilnings. En engum er það ljósara en kennurun- um sjálfum, að oft er árangurinn furðu lítill eftir langan tíma og mikið erfiði. Astæður þessa eru margar og æði víð- tækar. Er því miður ekki rúm til að ræða þær frekar nú, en aðeins skal fullyrt, að engu einu er þar um að kenna, heldur öllum aðiljum, sem uppeldi barnanna annast: skóla, heimilum og stjórn fræðslumálanna. Eins og nú hagar til eru skóli og heim-' ili tveir heimar, sem lítið samband er á milli. Það er því brýnt verkefni til bráðrar úrlausnar að tengja þessa tvo ólíku dvalarstaði barnanna saman til nánari skilnings og samstarfs á þeirra sameiginlega verkefni, uppeldi og fræðslu æskunnar. Enginn getur efast um, að áhugamál foreldra og kennara séu ein og hin sömu, með tilliti til skóla- vistar barnsins. Báðir aðiljar vilja hjálpa barninu til að ná sem fyllstum þroska, líkamlegum og siðferðilegum, á- samt nokkurri almennri fræðslu og leikni í undirstöðuatriðum menntunar, er verða megi barninu tækni í lífsbar- áttunni. Það er því aðkallandi þörf fyrir vinsamlegt samstarf þessara að- ilja, sem svo vandasamt og örlagaríkt hlutverk hafa sameiginlega með hönd- um. Það er ósk kennaranna, að þetta blað megi verða upphaf gagnkvæmari skiln- ings og þeirrar vinsamlegu samvinnu. Hálfdán Sveinsson. Til niiimis Skólastjóri er til viðtals hvern virkan dag kl. 5—6 síðdegis, í barnaskólanum alla daga nema þriðjudaga og fimmtu- daga, en þá tvo daga vikunnar heima á Vesturgötu 35. Símanúmer barnaskólans er 38, en heimasími skólastjóra er 23 B.

x

Foreldrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/1825

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.