Jólaklukkur - 01.12.1943, Síða 14

Jólaklukkur - 01.12.1943, Síða 14
12 JÓLAKLUKKUR (Sinat Otgutfinnsfon: ^.ftanööuöur Tárhrein mjöllin þekur alla jörð. Hvergi sér dökkan díl, aðeins í klettum og fellum sér í nokkurn sorta, enda þótt þar sé líka víðast gráði yfir. Sumstaðar hefur vindur- inn feykt snjónum saman í stórar eða smá- ar fannir eða dyngjur, og svo er fast þjapp- að saman, að varla markar spor. Tjarnir og lækir eru keyrðir í traust klakabönd, svo að varla þarf að óttast, að maður blotni, þótt farið sé fótgangandi sveitina á enda. Það er tekið að húma og rökkrið í nánd. Dálítill hópur manna og kvenna er á ferð á hjarnbreiðunni, og smátt og smátt koma fleiri og bætast í hópinn. Frostblærinn af norðri raskar ekki kyrrðinni. þrásinnis einn úti í kirkju, að Drottinn birtist mér í sýn. Það er ekki auðvelt að lýsa því. Dýrð Drottins skelfdi mig. Ég sá hann á krossinum og fann jafnframt meir til syndugleiks míns en nokkru sinni áð- ur. Ég varpaði mér flötum á gólfið og gat einu sinni ekki beðið. Aðeins gat ég hróp- að: „Drottinn, frelsaðu mig! Drottinn, frelsaðu mig!“ En jafnskjótt var mér gef- ið að trúa, og hjarta mitt fylltist lofgerð. Þegar ég fór heim daginn eftir, var ég óumræðilega glaður. Allt var orðið nýtt. Sjálfur vissi ég ekki, að ég hafði frelsast. En hjálpræðið hlotnaðist mér, án þess að ég gæti sjálfur gert mér grein fyrir því. Ný gleði fyllti hjartað, svo að ég gat ekki þagað um það. Mér fannst ég þurfa að segja öllum frá því, sem Drottinn hafði gert fyrir mig. Um vorið, nokkrum tíma síðar, var ég skírður. Fólkið ræðir saman hljóðlega, og það marrar í snjónum undir fótum þess. Stjörnur himinsins blika skært og fagurt, og norðurijósadrög sjást öðru hvoru. Hálfur máninn skín hátt á austurlofti. Það er aðfangadagskvöld. Á sóknarkirkj- unni á að vera aftansöngur. Þangað er fólkið að fara. Sumir eiga alllanga leið þangað, aðrir skemmra. En það er mikið til þess vinnandi að fá að byrja hátíðar- haldið í húsi Drottins. Leiðin sækist greiðlega, því að gangfær- ið er gott og mátulega svalt í veðri til þess að engum hitni um of. Óðum styttist að kirkjunni. Nú heyrist allt í einu hljómur klukknanna óma út yfir hjarnbreiðuna. Hópurinn nemur stað- ar, karlmennirnir taka ofan, konur hneigja höfuð sín. í sama bili verður næstum albjart og undrafögrum ljóma slær á sléttan snjóinn. Dásamlega fögur norðurljós leiftra í mörgum litum um himinhvolfið, svo björt, að mánaskinið dofnar og allar hinar dauf- ari stjörnur missa birtu sína. Fólkið nem- ur staðar og horfir hugfangið til himins og dáist að þeirri óviðjafnanlegu fegurð, sem ljómar um loft og láð. Ungur drengur var í förinni. Hann var ekki síður hugfanginn af fegurðinni en þeir, sem eldri voru. Ekki getur hann lengi orða bundizt, heldur spyr: „Var hún ekki svona birtan, sem ljómaði kringum hirð- ana hjá Betlehem, þegar Jesús fæddist?“. Þessu var litlu svarað. Norðurljósin dofn- uðu aftur og áfram var haldið. Nú sáust

x

Jólaklukkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólaklukkur
https://timarit.is/publication/1831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.