Jólaklukkur - 01.12.1943, Blaðsíða 30

Jólaklukkur - 01.12.1943, Blaðsíða 30
anáð (Samtöl) Systkinin í Skarði komu bæði heim í jólaleyfinu. Þau höfðu stundað nám í Reykjavík. Þetta var fyrsti 'veturinn þeirra utan heimilis, og Björn átti marga eftir, ef allt færi svo, sem ætlað var; hann átti að verða prestur. Bæði hafði langað heim um jólin, en einkum Björn. Sigríður virt- ist þó ekkert hlakka til jólanna og var sem henni væri um og ó að vera heima um hátíðina. Hjónin í Skarði, Sigurður ng Guðrún, fögnuðu börnunum. Þau höfðu bæði sakn- að þeirra, þótt ekki væri tíminn langur. Nú sátu þau öll saman við borðið. „Vilt þú ekki biðja, Bjössi minn?“ sagði húsfreyjan, áður en þau tækju til matar síns. „Nei, hún Sigga gerir það,“ svaraði Bjössi. Þau litu öll á Bjössa. Þau áttu ekki von á þessu svari. Sigríður bað, og var nú tekið að matast. „Hvers vegna vildir þú ekki biðja, Bjössi?“ spurði systir hans. „Ég er hættur að biðja,“ svaraði bróðir hennar hikandi. Hann horfði á þau öll til skiptis vandræðalegur á svip. Öllum varð þeim illt við. Móðir hans bar höndina upp að brjóstinu. Faðir hans horfði fast á hann. Sigríður leit á foreldra sína og sagði: „Þetta grunaði mig. Ég hef nú ekki haft mikið saman við hann að sælda í vetur. En alltaf hef ég reynt að fá hann með mér á samkomur og aldrei tekizt.“ Björn beið þess, að pabbi eða mamma segðu eitthvað. En það varð ekki. Þau horfðu á bæði börnin sín með þeim svip, er lýsti bæði vonbrigðum og djúpri hryggð. Birni fannst hann yrði að segja eitthvað sér til málsbóta. „Ég skal segja ykkur nokkuð. Það er ekki einn einasti í mínum bekk í skólan- um, sem trúir því, að Guð sé til.“ „Og þar er ert þú einn með“, sagði syst- ir hans. „Já, og Óli prests líka,“ svaraði Björn. eins og til að styrkja sinn málstað. „Svona eiga þá jólin okkar að verða í þetta sinn,“ sagði móðir hans. „Svona hvernig? Það er nú hægt að halda jól og gleðjast með fleiru en bæna- haldi og kirkjuferðum,“ sagði Björn. „Þeir héldu líka jól, forfeður vorir, þótt heiðnir væru. Ég skal segja ykkur það. Jólin eru miklu eldri en kristnin. Það eru kristnir menn, sem hafa breytt jólahaldinu í trú- arhátíð." „Já, þetta er alveg rétt, sem Björn seg- ir. Ég er enginn guðleysingi, en það er mér ljóst, að jólin eru heiðin hátíð, og hvergi er það fyrirskipað í Biblíunni að halda jól,“ sagði Sigríður. Hún talaði mjög á- kveðið og horfði fast á foreldra sína. „Satt er það, dóttir góð,“ sagði faðir hennar, „en margt er það fleira hjá okk- ur en jólahaldið, sem ekki er boðið i Biblí-

x

Jólaklukkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jólaklukkur
https://timarit.is/publication/1831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.