Jólaklukkur - 01.12.1943, Síða 27

Jólaklukkur - 01.12.1943, Síða 27
JÓLAKLUKKUR 25 hann þess ekki. Hann kom skálmandi eftir götunni, léttur á fæti og blístraði einhverja lagleysu fyrir munni sér. Stuttu seinna kom Einar drattandi eftir götunni, já hann drattaðist aðeins áfram. „Nei, sjáið þið nú farlama gamalmenn- ið,“ hrópaði Steini upp yfir sig og hló við. Strákarnir tóku undir. Steini þreif í öxl- ina á Einari. „Svona, piltur minn, það er meir en tími kominn til fyrir þig að vakna,“ hann hækkaði röddina. „Halló, Einar, þú ert kominn upp í skóla.“ Það kvað við almennur hlátur, og margir hópuðust í kringum þá. „Láttu mig vera, Steini,“ sagði Einar um leið og hann snéri sér hægt úr höndum hans og læddist þegjandi inn í bekk. Prófin gengu frekar vel hjá öllum, nema þá helzt Einari; hann sagði hverja vit- leysuna á fætur annarri, aldrei slíku van- ur. Til dæmis í landafræði hélt hann því fram, að Liverpool væri verzlunarborg í Þýzkalandi, og þrátt fyrir margítrekaðar tilraunir kennarans, þá áttaði Einar sig ekki fyrr en seint og síðarmeir. Það var því ekki nema eðlilegt, að Steini væri ánægður að skólanum loknum, því nú var það víst, að hann hafði komizt upp fyrir Einar, en það var óþekkt fyrirbrigði áður. Þegar hópurinn kom út á götuna, gekk Steini til Einars og sagði honum frá því, a® nýjustu fregnir hermdu, að Liverpool væri komin til Grænlands. Þetta þótti hin- um drengjunum sniðuglega sagt og hentu gaman að. En Einar leit snöggt á Steina, °g þá sá Steini að tár blikuðu í augum hans. Þá fann Steini til nístandi samvizku- bits yfir því, sem hann hafði sagt í gá- leysi sínu. Hvenær myndi hann læra að venja sig af fljótfærni sinni? Þennan þorp- araskap varð hann að bæta fyrir. Steini fékk ekki lengri tíma til umhugs- unar um að bæta framkomu sína, því hann fékk bylmingshögg á vangann með flötum lófa Einars. Þá blossaði reiðin upp í Steina og þeir ruku saman í ofsareiði. Gamli jakkinn hans Einars þoldi ekki svona fjör- ugar sviptingar og rifnaði allur í hengla. Loksins voru þeir skildir. Þá hljóp Einar í burtu og byrgði höndunum fyrir and- litið. „Ertu skælandi, dóninn, fjórtán ára gamall, hvílíkur aumingi,“ hrópuðu pilt- arnir á eftir honum. Klukkan var að verða átta á aðfanga- dagskvöld og fyrir löngu búið að kveikja á jólatrénu á læknisheimilinu. Læknir- inn var enn ekki kominn heim frá störf- um sínum. Læknisfrúin beið með kvöld- verðinn, og Steini og tvær yngri systur hans biðu líka, því að aldrei var jólaböggl- unum útbýtt, fyrr en faðir þeirra var kom- inn heim, búinn að hafa fataskipti og fjölskyldan hafði matazt.. Nú var hver mínúta talin með óþreyju. Það var bara eitt, sem skyggði á jólagleði Steina, og það var endurminningin um viðskipti hans við Einar daginn áður. Loksins kom sú langþráða stund, að hurðin opnaðist og læknirinn kom inn. Krakkarnir hlupu upp um hálsinn á hon- um og óskuðu honum gleðilegra jóla. Læknirinn bað konu sina að koma fram og tala við sig. Eftir langan tíma kom hann aftur og sagði Steina að koma með sér inn á skrifstofu. Hann sagði systrunum að bíða í stofunni á meðan og fara ekki fram. Steini sá, að pabbi hans var þungur á brúnina og varð hálf smeikur. „Fáðu þér sæti, drengur,“ sagði læknir- inn snöggt. Sjálfur settist hann andspæn- is Steina og horfði hvasst í augu hans. „Jæja, drengur, þú veizt víst, hvaða kvöld er í kvöld?“ Jú, Steini vissi það.

x

Jólaklukkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólaklukkur
https://timarit.is/publication/1831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.