Jólaklukkur - 01.12.1943, Blaðsíða 23

Jólaklukkur - 01.12.1943, Blaðsíða 23
21 _____________JÓLAKLUKKUR / t Olafur Olafsson, krístniboðí ^iudson cr i aylor Eitt mesta afrekið, sem unnið hefir ver- ið á sviði frjálsrar kristilegrar starfsvið- leitni, stendur í sambandi við stofnun „Upplandatrúboðsins í Kína.“ Helztu töl- urnar í ársskýrslu þess 1940, gefa nokkra hugmynd um það, en þær eru þessar: Kristniboðar 1314. Kínverskir samverkamenn 4412. Kristniboðsstöðvar 371; útstöðvar 2491. Skólar 277 með 7887 nemendum. Sunnudagaskólar 429 með 18347 nemendum. Sjúkrahús 15; lækningastofur 81. Safnaðarmeðlimir 108610. Skírðir á því eina ári 9364. Hudson Taylor, stofnandi „Upplanda- trúboðsins í Kína“, fæddist árið 1832 í iðnaðarborginni Barnsley á N.-Englandi. Foreldrar hans helguðu hann Guði og báðu þess þá þegar, að hann mætti verða kristniboði í Kína. Því meira hryggðarefni var þeim það, hve heilsuveill hann var öll uppvaxtarárin og að hann þegar á ung- lingsaldri lenti í veraldlegum félagsskap °g glataði barnatrú sinni. Dag einn í júnímánuði 1849 var Hudson Taylor einn heima. Hann leitaði eftir ein- bverju að lesa í bókahillum föður síns, en fann ekkert, sem honum gazt að. Á saumaborði móður hans lá smárit. Hann tók það og las. En í sama mund var móðir hans 1 heim- sókn hjá ættingja sínum í 10 mílna fjar- Isegð og lá þar á hjánum í bæn fyrir drengnum sínum. Það kom að henni ó- hiótstæðilega, að hún yrði að biðja fyrir honum. Og hún stóð ekki upp frá bæninni fyrr en vissa var fengin fyrir því, að hún var heyrð. Heima sat drengurinn hennar og las um „Fullkomnað verk Krists.“ „Hvað var full- komnað?“ — fór Hudson Taylor að hugsa. „Hjálpræði mitt er fullkomnað. Hvað á ég þá að gera? Viðurkenna það og þakka.“ — Þetta allt vissi hann áður. En nú með- tók hann það í trú. Sú nýja reynsla fyllti hann gleði og gerbreytti viðhorfi hans til lífsins. Þrem árum síðar, er Hudson Taylor kom- inn til Hull, verzlunar- og siglingaborg- arinnar miklu við Norðursjó. Hann gekk þar í skóla hjá trúuðum lækni og bjó sig undir að fara til Kína sem lækningatrú- boði. Hann vildi fara að dæmi Jesú, lækna bæði líkama manna og sál. „Maður verður ekki kristniboði fyrir það eitt, að sigla til Kína,“ var hann vanur að segja. Þess vegna gekk hann í þennan skóla og notaði jafnvel hvert tækifæri til að gera gott og vitna um náð Drottins. Hann tamdi sér sjálfsafneitun, hélt til í fátæklegasta hverfi borgarinnar og var afar sparneytinn. Hann hefði getað feng- ið nóga peninga frá föður sínum. En hann þurfti að venjast nægjusemi, sem kristni- boði átti að vera. Hann tamdi sér að treysta Guði. Einu sinni gaf hann fátækri fjölskyldu sinn síðasta eyri og átti þá ekkert sjálfur til að kaupa mat fyrir. Daginn eftir barst honum sending. í henni voru einir hanzk- ar og dálítil peningaupphæð. „400% fyr-

x

Jólaklukkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jólaklukkur
https://timarit.is/publication/1831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.