Jólaklukkur - 01.12.1943, Page 25

Jólaklukkur - 01.12.1943, Page 25
JÓLAKLUKKUR 23 að sælda, sem lifði í allsnægtum, naut lífsins og lét það ekkert á sig fá, þó milj- ónir heiðingja færust árlega í synd og neyð austur í Kína. Hann sneri sér til Guðs með hugarstríð sitt: „Þú hefir kallað mig. Ég vil fara!“ Og jafnframt bað hann Guð um 24 samverkamenn, 2 fyrir hvert hinna 11 héraða upplandanna og 2 fyrir Mansjúríu. Það var engu líkara en þar með væri sigur fenginn. Hann eignaðist sína fyrri gleði og djörfung. Hudson Taylor átti nú erindi við trúað fólk í Bretlandi. Þar höfðu orðið miklar trúarvakningar, eins og t. d. í London, eftir að C. H. Spurgeon hóf þar prédikunarstarf árið 1845. Fyrstu opinberu ræðuna, eftir reynslu sína í Brighton, hélt Hudson Taylor á kristilegu móti í Perth á Skotlandi. Aðal- stjórnandi mótsins þekkti lítið til kristni- boðs og hafði engan áhuga fyrir því. „Þér skiljið ekki tilgang þessara móta,“ sagði hann við Hudson Taylor; „þau eru haldin trúuðu fólki til uppbyggingar.“Honum var svarað því, að ekkert væri betur fallið trúarlífinu til uppbyggingar, en fræðsla um útbreiðslu Guðs ríkis. — Þó var Hudson Taylor óstyrkur og kvíðinn, þegar hann steig í ræðustólinn. Eftirvænting áheyr- endanna var ekki mikil og óx heldur ekki við það, að sjá þenna granna óþekkta mann í stólnum. En þegar hann fór að tala, náði hann þegar valdi yfir áheyrendunum. Hann sagði frá kínverskum manni, sem féll fyr- ir borð eitt sinn, þegar hann var með hon- um á ferðalagi niður eftir fljóti einu í Kína. Hudson Taylor kallaði á fiskveiðimenn, sem voru þar nærstaddir, og bað þá bregða skjótt við og bjarga manninum. En þeir vildu fá útgert um það fyrst, hve há björg- unarlaun þeim yrðu greidd, og urðu þess vegna of seinir á sér. Maðurinn drukknaði. Fólk sat sem steini lostið og þótti þessi saga nær því ótrúleg. Þá sneri Hudson Taylor máli sínu til þess sjálfs og sagði: „Ykkur ofbýður miskunnarleysi heið- ingjanna í Kína. En hvað um ykkur sjálf? Er líkaminn meira virði en sálin? Þúsund- ir Kínverja glatast daglega, af því að við viljum engu til þess fórna, að fagnað- arerindið verði þeim boðað. Á Skotlandi eru 4 miljónir íbúa, og meðal þeirra starfa margar þúsundir presta og prédikara. í Kína eru 400 miljónir manna, en meðal þeirra starfa aðeins 90 evangeliskir kristni- boðar, flestir í hafnarborgunum. í upp- landahéruðunum er enginn kristniboði meðal 200 miljóna manna.“ Þessi óvænta prédikun hreif. Upp frá þessu tók að vakna áhugi fyrir kristniboði í Kína, alls staðar þar sem Hudson Taylor ferðaðist. Árið 1866 fór Hudson Taylor með fjöl- skyldu sinni aftur til Kína. Með þeim fóru 15 nýir kristniboðar, en 9 voru farnir nokkru áður. Félagið, sem sendi þá, hafði verið stofn- að árið áður, og nefndi það sig „Upplanda- trúboðið í Kína,“ (China Inland Mission), enda var tilgangur þess sá, að vinna að kristniboði í upplöndum Kína. Hudson Taylor varð að sjálfsögðu fyrsti forseti þess. Félagið lét sig það litlu skipta, til hvaða kirkjufélags starfsmenn þess töld- ust, væru þeir aðeins gæddir lifandi og heilbrigðri trú. Fyrstu 10 árin urðu þessum nýja félags- skap afar erfið. Margir kristniboðanna dóu; meðal þeirra var kona Hudson Taylors. Ferðalög til upplandanna voru ekki að- eins erfiðleikum bundin, heldur og stór- hættuleg. En á öllum þessum erfiðleikum sigraðist trúarþolgæði brautryðj endanna, og hófu þeir starf á mörgum nýjum stöðum.

x

Jólaklukkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jólaklukkur
https://timarit.is/publication/1831

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.