Jólaklukkur - 01.12.1943, Qupperneq 26

Jólaklukkur - 01.12.1943, Qupperneq 26
24 JÓLAKLUKKUR Yertn orðvar rrr®=LZ=0^=l -----ffi. 3$E Það var misjafn sauður í mörgu fé í barnaskólanum. Ríkir og fátækir, hraustir og veikbyggðir, skynsamir krakkar og heimskir eins og gerist og gengur. í þessum stóra hóp sjáum við meðal ann- ars tvo drengi, sem vekja ósjálfrátt athygli okkar. Annar er Þorsteinn sonur Sigurð- ar læknis, skynsamur og fjörmikill strák- ur, en dálitið kærulaus og fljóthuga. Hinn heitir Einar, ég veit ekki hver faðir hans er; hann er einkasonur fátækrar ekkju. Einar er prýðilega vel greindur og hefur alltaf verið efstur í sínum bekk. Hann er mjög fálátur að eðlisfari og dró sig alltaf út úr í leikjum og glensi skólabræðra sinna; þeim var því mörgum í nöp við hann fyrir bragðið og hæddust mjög að honum. Þeim fannst hann hjárænulegur og skrítinn. Þeir hafa líklega ekki athugað það, að hann gat haft glöggt auga fyrir því, hversu föt hans voru stagbætt, göm- ul og slitin, borið saman við fatnað hinna drengjanna; hann mátti jafnvel þakka fyrir, meðan tærnar ekki læddust út úr skónum. Var nokkuð undarlegt, þótt hann væri óframfærinn og skrítinn? Það var Þorláksmessa; síðasti dagurinn í skólanum fyrir jól, og síðustu prófin í miðsvetrarprófunum þennan dag. Tvö erf- iðustu prófin voru eftir, og var því ekki nema eðlilegt, að margur væri kvíðafull- ur þennan morgun, þegar skólinn var að byrja. Heill og heiður var í veði; hvað myndi þessi dagur bera í skauti sínu fyrir hvern og einn? Vonandi þyrfti enginn að yfirgefa skólann vegna tornæmis. Steini var einn af þeim fáu, sem ekki kviðu fyrir komandi stundu, enda þurfti Og þegar erfiðleikarnir virtust hvað mestir, réðust þeir í ný stórræði. Hudson Taylor varð að fara heim vegna heilsu- bilunar. Þá lá og við, að stríð brytist út milli Englands og Kína. Á Englandi voru miklir krepputímar. En á sjúkrabeðnum bað Hudson Taylor Guð um 18 nýja kristniboða. Þegar hann gat farið aftur til Kína 1876, voru flestir þeirra farnir á undan honum. Tvö árin næstu á eftir var starf hafið í 9 upplanda- héruðum . Árið 1881 bað Hudson Taylor enn um 70 kristniboða, en 76 buðu sig fram og voru sendir. Fimm árum síðar bættist félaginu 102 nýir kristniboðar. í þeim hóp voru 7 ungir menntamenn, sem í sögu kristniboðsins eru kallaðir „Sjö- stirnið frá Cambridge.“ Þessi mikla aukning kristniboða stend- ur í sambandi við trúarvakningar bæði á Englandi, í Ameríku og á Norðurlöndum. En víða í þeim löndum starfa enn styrkt- arfélög í sambandi við „Upplandatrúboð- ið í Kína.“ Kristniboðar þess voru alls nokkuð á 8. hundrað, þegar Hudson Taylor dó í Kína 3. júní 1905; stöðvar um 200 og kristnir safnaðarmeðlimir um 14 þúsundir. (Þýtt og endursagt hefir Ó. Ó).

x

Jólaklukkur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólaklukkur
https://timarit.is/publication/1831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.