Jólaklukkur - 01.12.1943, Blaðsíða 34

Jólaklukkur - 01.12.1943, Blaðsíða 34
32 JÓLAKLUKKUR Itr mtnntsbóf fristinboóa Og svo að lokum frásaga um skínandi stjörnu. Heimurinn fékk ekki að sjá mik- ið af henni. Guð þurfti hennar víst til þess að prýða himin sinn. Hann var sonur eins af fyrverandi prest- um mínum, Trabóndsi, sem lét af störf- um fyrir nokkrum árum, af því að hann var orðinn þreyttur og slitinn. Það var góður og greindur drengur, sem var kominn í efsta bekk lærða skólans. Hann var heima í fríi, þegar hann veikt- ist, líklegast af malaríu. Sjúkdómurinn versnaði mjög fljótt, og læknirinn sagði sorgbitnum foreldrunum, að öll von væri úti. Hann gæti ef til vill lifað einn dag ennþá, og svo væri öllu lokið Daginn eftir sagði sjúklingurinn allt í einu: ,,Nú er ég frískur, alveg frískur. Mig verkjar hvergi.“ Hann lá alveg kyrr og andaði rólega. Allir héldu, að hann væri sloppinn úr hættu. Þá fer hann allt í einu að einblína upp í loftið. Hann starði og var eins og gersamlega heillaður. Andlitið ljómaði af gleði og sælu. Augu hans ljóm- uðu, eins og þau horfðu inn í sjálfa sólina. „Hvað sérðu?“ spurði faðir hans. Hann sat við rúmið hans og rak flugurnar burtu. — „Ó, ég sé Jesúm. Það er Jesús, sem stendur þarna og segir mér að koma. Hann brosir við mér. — Já, nú kem ég“, segir hann skömmu síðar. „Ég ætla bara að syngja svolítið fyrir pabba og mömmu fyrst.“ Svo byrjaði hann að syngja. Hann, sem hafði legið þarna og barizt við að reyna að ná andanum og hafði ekki getað sagt nokkurt orð, hann söng nú af svo miklum krafti og hljóm, að það heyrðist í næstu hús og fólk þyrptist saman. Það var lof- söngur til Jesú, þakklæti og lofgjörð synd- arans til frelsarans. Heilsið öllum vinum mínum, öllum í unglingadeildinni. Segið þeim, að enginn megi yf'rgefa Jesúm, því að þá yfirgefa þeir hamingju sína. Og pabbi, þú mátt til með að verða prest- ur aftur. Ég átti að taka við starfinu eftir þig. En ég fæ ekki tækifæri til þess. Þú verður að fara í minn stað. Og mamma, þú mátt ekki hryggjast. Nú fæ ég þá hammgju, sem þú hefur alltaí talað um, að væri mest af öllu. Síðan þakkaði hann foreldrum sinum og systkynum og öllum fyrir það, hvað þau hefðu verið honum góð. Þau hefðu alltaf gefið honum svo margt til þess að gleðjast yfir. Hann lá þarna og taiaði við þau, rólega og án nokkurrar áreynslu, með fullu ráði og rænu og ljómandi af sælu. Ó, ég er svo innilega glaður, svo glaður, endurtók hann í sífellu. Og nú verðið þið öll að vera glöð og syngja eingöngu gleði- söngva við jarðarför mína. Svo varð hann aftur þögull, lá og horfði upp í loftið og brosti af ólýsanlegri sælu og gleði. Rétt á eftir lokaði hann augunum Það var eins og hann sofnaði, og allir sátu kyrrir til þess að vekja hann ekki. En þess var ekki þörf. Hann svaf of vel til þess. Hann lá þarna ennþá með ljóma á andliti sínu. — Það var eins og endur- skin frá því dýrðlega ríki, sem hann var horfinn inn í, sagði faðir hans. RITSTJÓRAR: Séra Sigurbjörn Einarsson og Magnús Runólfsson, cand. theol. Prentsmiðjan EDDA h.f. — 1943. k

x

Jólaklukkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jólaklukkur
https://timarit.is/publication/1831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.