Jökull


Jökull - 01.01.2017, Blaðsíða 77

Jökull - 01.01.2017, Blaðsíða 77
Sé horft til verka og arfleifðar, stórs hóps gjörvi- legra afkomenda og langrar ævi við góða heilsu fram á tíræðisaldur, var Árni á fullorðinsárum lengst af sólar- megin í lífinu. Þannig leit hann einnig á málin. Hann taldi það sína mestu gæfu að kynnast eiginkonu sinni, Huldu Filippusdóttur, og eiga með henni langt og gott líf. Þau Hulda tóku þátt í vorferðinni 1955. Sú sem farin var árið eftir varð síðan þeirra brúðkaupsferð. Þá fékk Brúðarbunga sunnan Kverkfjalla nafnið. Ferðin 1956 var með allra lengstu vorferðum, gist var í tjöld- um en engir skálar voru þá á jöklinum. Æ síðan héldu þau í sameiningu við sinni góðkynjuðu jöklabakteríu. Við sem höfum farið í fótspor Árna Kjartanssonar og fleiri frumkvöðla stöndum í þakkarskuld við þetta harðduglega fólk. Árna var annt um Jöklarannsókna- félagið og vildi veg þess sem mestan. Á efri árum hvatti hann okkur áfram til góðra verka og gladdist yfir því þegar vel gekk. Þannig mun minning hans lifa sem eins hins fremsta í hópi þeirra sem ruddu brautina. Fyrir hönd Jöklarannsóknafélagsins votta ég Huldu og öðrum aðstandendum innilega samúð. Magnús Tumi Guðmundsson Morsárjökull er 4 km langur skriðjökull í sunnanverðum Vatnajökli, umgirtur allt að 1000–1400 m háum og bröttum fjöll- um, Skaftafellsheiði í austri, sem rís upp í um 1385 m við Skarðatind (til hægri á myndinni) og Skaftafellsfjöllum í vestri. Þorvaldur Thoroddsen var fyrstur til að lýsa jökulinn árið 1894, þá lá hann við ystu garða, um 2 km frá núverandi jaðri, tengdur meginjöklinum af þremur ísstraumum, vestari og austari ísfossunum (fyrir miðju) og Birkijökli (fönnin til hægri). Í dag hefur jökullinn þynnst og ísstraumarnir slitnað að mestu frá meginísnum sem fellur fram af klettabeltinu í tilkomumikl- um íshrunum. Árið 2007 féll stórt berghrunsflóð á ofanverðan jökulinn að austanverðu og huldi um 1/5 af yfirborði hans. Urðin ásamt einangraða jöklinum undir henni rísa um 50 m hærra en núverandi yfirborð jökulsins. Frá 2007 hafa jökullinn og urðin skriðið um 700–800 m. – Morsárjökull is a 4 km long outlet glacier in the southern part of the Vatnajökull ice cap, surrounded by 1000–1400 m high and steep mountains. Þorvaldur Thoroddsen was the first to study the glacier in 1894, he described three ice streams from the main ice cap. Today these ice streams are mostly separated from the ice cap and the glacier ice falls down the cliffs in spectacular ice avalanches. In 2007 a large rock avalanche fell on to the uppermost part of the glacier and covered about 1/5 of its surface. The debris mass had an insulating effect on the ice and today it rises about 50 m above the glacier surface. Texti og ljósm./Text and photo. Þorsteinn Sæmundsson, september 2017. 72 JÖKULL No. 67, 2017
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95

x

Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.