Jökull


Jökull - 01.01.2017, Blaðsíða 86

Jökull - 01.01.2017, Blaðsíða 86
Society report Jarðfræðafélag Íslands Skýrsla stjórnar fyrir starfsárið 2017 Á fyrri hluta starfsársins 2017 störfuðu í stjórn félagsins Sigurlaug María Hreinsdóttir (formaður), Esther Ruth Guðmundsdóttir (varaformaður), Lúðvík Eckardt Gústafsson (gjaldkeri), Erla María Hauks- dóttir (ritari), Björn Harðarson (meðstjórnandi), Sylvía Rakel Guðjónsdóttir (meðstjórnandi) og Þor- steinn Sæmundsson (meðstjórnandi). Vorráðstefna félagsins var haldin þann 10. mars í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands. Líkt og áður var jarðfræðinemendum boðið endurgjaldslaust á ráðstefnuna, en stjórn félagsins telur mikilvægt að nemendur fjölmenni á ráðstefnur og viðburði félags- ins og kynnist störfum jarðfræðastéttanna. Á ráðstefn- unni var að vanda fjölbreytt dagskrá og mörg fróðleg erindi flutt. Ráðstefnuna sóttu yfir 100 manns, þar af fjölmargir nemendur. Alls voru 27 erindi haldin og 12 veggspjöld kynnt. Vorferð var farin á vegum félagsins þann 11. júní undir leiðsögn Snæbjörns Guðmundssonar jarðfræð- ings. Ferðin var farin að Gvendarselsgígum vestan Helgafells, 18 manns fóru í ferðina í glimrandi sól og blíðu. Aðalfundur félagsins var haldinn 28. júní í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands. Á aðalfundinum urðu nokkrar breytingar á stjórn. Úr stjórn geng- ur Esther Ruth Guðmundsdóttir sem hefur starfað í stjórn félagsins frá 2015 sem varaformaður og Björn Harðarson sem starfað hefur í félaginu frá árinu 2007 lengst af sem meðstjórnandi en varaformaður starfs- árið 2011. Þeim tveimur er kærlega þakkað fyrir góð störf í þágu félagsins. Í þeirra stað gengu í stjórn þær Ásta Rut Hjartardóttir og Þóra Björg Andrés- dóttir. Eftir aðalfund var skipan stjórnar eftirfar- andi: Þorsteinn Sæmundsson (formaður), Erla María Hauksdóttir (varaformaður), Lúðvík Eckardt Gústafs- son (gjaldkeri), Sigurlaug María Hreinsdóttir (ritari), Sylvía Rakel Guðjónsdóttir, Ásta Rut Hjartardóttir og Þóra Björg Andrésdóttir (meðstjórnendur). Að öðru leyti voru störf aðalfundar hefðbundin. Haustráðstefna félagsins var haldin 17. nóvember, í sal ÍSOR að Grensásvegi 9 í Reykjavík. Heiðursgest- ir ráðstefnunnar voru þeir Benedikt Steingrímsson eðlisfræðingur fyrrverandi aðstoðarforstjóri ÍSOR, Dr. Hjalti Franzon jarðfræðingur og Prófessor Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur. Þeir urðu allir sjötugir á árinu. Þema ráðstefnunnar var jarðhnik og tektónik. Fjöldi vísindafólks, sem á einn eða annan hátt tengd- ust heiðursgestunum, héldu erindi. Sylvía Rakel Guð- jónsdóttir, setti ráðstefnuna og þar á eftir voru flutt eftirtalin 22 erindi og eitt veggspjald kynnt: Hjalti Franzson, Íslenskum orkurannsóknum. Jarðfræði í rótum háhitakerfa. Kristján Sæmundsson, Íslenskum orkurannsóknum. Jarð- hiti og virka brotamunstrið á Snæfellsnesi. Páll Einarsson, Jarðvísindastofnun Háskólans. Short-term seismic precursors to Icelandic eruptions 1973–2014 and success rate of pre-eruption warnings. Bryndís Brandsdóttir, Jarðvísindastofnun Háskólans. How can earthquakes illuminate the tectonics of dike intrusions? Examples from the Krafla 1975–1984 and Bárðarbunga, 1996–2015 rifting events. Þóra Árnadóttir, Jarðvísindastofnun Háskólans. Crustal deformation and strain rates in Hengill and the South Iceland Seismic Zone. Daði Þorbjörnsson, Íslenskum orkurannsóknum. Suður- landsskjálfti 2008. Áhrif á jarðhitakerfi. Andri Stefánsson, Jarðvísindastofnun Háskólans. Superc- ritical fluids around magmatic intrusions. Sæunn Halldórsdóttir, Íslenskum orkurannsóknum. IMA- GE er lokið ? hver var ávinningurinn? Bergrún Arna Óladóttir, Jarðvísindastofnun Háskólans. Catalogue of Icelandic Volcanoes (CIV). Valdís Guðmundsdóttir, Íslenskum orkurannsóknum. Flow measurements with a spinner logging tool in geot- hermal wells at Þeistareykir: Processing and inter- pretation with the aim of locating feed zones in wells. JÖKULL No. 67, 2017 81
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95

x

Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.