Jökull


Jökull - 01.01.2017, Page 82

Jökull - 01.01.2017, Page 82
Society report Eldgos sunnan Gjástykkisbungu í mars 1980 Halldór Ólafsson Suðurbraut 2, 220 Hafnarfjörður, hallo@hi.is Þessi frásögn er byggð á vinnudagbók sem ég skráði þegar ég var starfsmaður Norrænu eldfjallastöðvar- innar. Meðan á eldgosahrinunni stóð sem kennd var við Kröflu og hófst í desember 1975, fóru fram margvís- legar mælingar á jarðskorpu umbrotasvæðisins. Einn þáttur þeirra mælinga, sem starfsmenn Norrænu eld- fjallastöðvarinnar framkvæmdu, voru fjarlægðarmæl- ingar með svokölluðum „geodimeter“ en það var öfl- ugt „laser“ mælitæki sem gat varpað geisla allt að 25 km í þar til gerðan spegil. Spegillinn endurvarpaði svo geislanum til tækisins og mældi tækið tímann sem tók geislann að fara til spegilsins og aftur til baka. Með þessu móti mátti fá mjög nákvæma vegalengd mælda milli tækis og spegils. Mælingarnar fóru þannig fram að tækinu var stillt upp kórrétt yfir fastmerki og á sama hátt var spegli komið fyrir yfir því merki sem mæla átti til. Rúmu ári eftir upphaf Kröfluelda var okkur Sigur- jóni Sindrasyni falið að setja út mælinganet yfir gliðn- unarbeltið norðan Kröfluvirkjunar sem myndast hafði vegna umbrotanna. Svæðið sem mest hreyfðist var frá Leirhnjúk í suðri og að Hrútafjöllum í norðri og varð því að ráði að við kæmum fastmerkjum fyrir á 5 til 7 km breiðu belti milli þessara staða. Í upphafi voru merkin 42 sem við settum niður en þeim var fljótlega fjölgað eftir því sem umbrotin urðu víðfeðmari. Um miðjan mars 1980 var ég við mælingar sem oftar í Gjástykki ásamt Eysteini Tryggvasyni jarðeðl- isfræðingi. Fyrrihluta þessarar mælingaferðar höfðum við fengið rysjótt veður og þess vegna orðið heldur lít- ið úr verki því mælitækin voru viðkvæm fyrir úrkomu og vindi. En þann 16. mars snéri til hins betra og gerði afar gott veður, hægviðri og heiðríkju með vægu frosti. Við Eysteinn vorum komnir á stjá í rauðabíti til að nýta daginn sem best og drifum okkur upp að Kröfluvirkjun þar sem við geymdum vélsleða stofn- unarinnar en þeir voru ómissandi tæki vegna fannferg- is á svæðinu. Útlit var fyrir að góðviðri héldist allan daginn svo við ákváðum að byrja mælingarnar á þeim merkjum sem lengst voru í burtu frá Leirhnjúk. Fljótlegt var að bruna á vélsleðum eftir slétt- um fannbreiðunum norður á Þeistareykjabungu en frá merkinu þar var meiningin að hefja mælingar dags- ins. Eftir að hafa aðstoðað Eystein við að stilla upp geodimeternum fór ég austur á Skuggaklett, sem var austasta og nyrsta og einnig fjarlægasta merkið í net- inu, en kletturinn sá er á heiðinni skammt vestan Vest- urdals. Þegar mælingu var lokið til Skuggakletts tók ég spegilinn niður og dreifði síðan þeim fjórum spegl- um sem tiltækir voru á austustu fastmerkin er sáust frá Þeistareykjabungu. Þannig gekk þetta fyrir sig, ég stillti speglum upp á merki en Eysteinn mældi, og að mælingu lokinni tók ég speglana niður og dreifði svo á næstu punkta. Svona var haldið áfram allan daginn við bestu skilyrði í eindæma góðviðri og þegar mælt hafði verið á öll merki sem sáust frá Þeistareykja- bungu fór ég til Eysteins og hjálpaði honum að flytja geodimeterinn á næsta stað sem var Sandfell, lágur kubbabergskambur suðaustan í bungunni. Frá Sand- felli mældum við á sömu merki og frá Þeistareykja- bungu og þeim mælingum lauk um klukkan fjögur síðdegis. Þegar við vorum að taka saman tækin upp á Sand- felli til að flytja þau á næsta mælingastað tók Eysteinn eftir miklum hvítum gufubólstra sem virtist, frá okkur séð, stíga upp frá borsvæðinu norðan Kröfluvirkjun- ar. Fyrst héldum við að þeir Kröflumenn væru að láta nýboraða holu blása en er við fórum að skoða bólstur- inn betur sáum við að staðsetningin gat ekki verið rétt. JÖKULL No. 67, 2017 77

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.