Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2018, Síða 6

Skinfaxi - 01.02.2018, Síða 6
6 SKINFAXI Skinfaxi 2. tbl. 2018 Skinfaxi er tímarit Ungmennafélags Íslands. Það hefur komið út samfleytt síðan árið 1909. Blaðið kemur út árs- fjórðungslega. Tímaritið dregur nafn sitt af hestinum fljúgandi sem dró vagn- goðsagnaverunnar Dags er ók um himinhvolfin í norrænum sagnaheimi. RITSTJÓRI Jón Aðalsteinn Bergsveinsson ÁBYRGÐARMAÐUR Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ RITNEFND Gunnar Gunnarsson formaður, Örn Guðnason, Eiður Andri Guðlaugsson, Elísabet Ásdís Kristjánsdóttir og Guð- munda Ólafsdóttir. LJÓSMYNDIR Haraldur Jónasson, Jón Aðalsteinn Berg- sveinsson, Gunnar Gunnarsson, Hafsteinn Snær Þorsteinsson, Sabína Steinunn Hall- dórsdóttir, Lars Holm, Lars Horn, Søren Malmose o.fl. UMBROT OG HÖNNUN Indígó PRÓFARKARLESTUR Helgi Magnússon AUGLÝSINGAR Miðlun ehf. o.fl. PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja. FORSÍÐUMYND Róbert Khorchai, frjálsíþróttamaður úr Umf. Þór Þorlákshöfn. STJÓRN UMFÍ Haukur Valtýsson, formaður Örn Guðnason, varaformaður Hrönn Jónsdóttir, ritari Guðmundur Sigurbergsson, gjaldkeri Ragnheiður Högnadóttir, meðstjórnandi Gunnar Gunnarsson, meðstjórnandi Jóhann Steinar Ingimundarson, meðstjórnandi VARASTJÓRN UMFÍ: Sigurður Óskar Jónsson, Gunnar Þór Gestsson, Lárus B. Lárusson og Helga Jóhannesdóttir. SKRIFSTOFA UMFÍ/SKINFAXA Þjónustumiðstöð UMFÍ, Sigtúni 42, 105 Reykjavík, sími: 568-2929 umfi@umfi.is – www.umfi.is STARFSFÓLK UMFÍ: Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmda- stjóri, Helgi Gunnarsson, fjármálastjóri, Jón Aðalsteinn Bergsveinsson, kynningar- fulltrúi og ritstjóri Skinfaxa, Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi og framkvæmda- stjóri Landsmóta (með aðsetur á Sauðár- króki), Sabína Steinunn Halldórsdóttir, landsfulltrúi og verkefnastjóri, Ragnheið- ur Sigurðardóttir, landsfulltrúi og verk- efnastjóri, og Guðbirna Kristín Þórðar- dóttir, ritari. UMFÍ Ungmennafélag Íslands, skammstafað UMFÍ, er landssamband ungmenna- félaga á Íslandi. UMFÍ var stofnað á Þingvöllum 2. ágúst 1907. Sambands- aðilar UMFÍ eru 29 talsins. Í hreyfing- unni eru í dag um 160.000 félagar í rúmlega 300 ungmenna- og íþrótta- félögum um land allt. Fjárveitingar háðar því að félögin vinni eftir siðareglum og viðbragðsáætlunum „Stóru félögin, á borð við Völs- ung, taka vel í að skilyrða sig til að fara eftir siðareglunum og kvitta upp á að óska eftir saka- vottorðum fyrir þjálfara og ann- að starfsfólk. En þetta ferli get- ur verið erfiðara fyrir minni félög. Viðbragðsáætlun og siða- reglur Æskulýðsvettvangsins duga þeim þess vegna mjög vel,“ segir Kjartan Páll Þórarins- son, íþrótta- og tómstundafull- trúi Norðurþings á Húsavík. Sveitarfélagið endurnýjaði ný- verið samstarfssamning sinn við nokkur félög á svæðinu. Um ný- breytni er að ræða í Norður- þingi því að sveitarfélagið hóf nú í sumar að greiða frístunda- styrki fyrir skipulagt íþrótta- og tómstundastarf barna og ung- menna. Til viðbótar tók sveitar- stjórnin undir með Sambandi íslenskra sveitarfélaga og setur nú það skilyrði að íþrótta- félög setji sér siðareglur til að fá fjárstuðning sveitarfélagsins. Kjartan bendir á að mörg sveitarfélög hafi gripið til álíka aðgerða í kjölfar þess að fjöldi íþróttakvenna steig fram í janú- ar undir myllumerkinu #MeToo og greindi frá kynferðislegu ofbeldi og áreiti gagnvart sér. Samband íslenskra sveitar- félaga mælti fyrir því að sveit- arstjórnir myndu setja skilyrði fyrir fjárstuðningi við íþrótta- félög til að vinna gegn kyn- bundnu ofbeldi og áreitni inn- an raða þeirra. Hafnfirðingar og Skagfirðingar og sveitar- stjórnir í fleiri byggðarlögum svöruðu kallinu. Fjárveitingar til aðildarfélaga Ungmennasam- bands Skagafjarðar (UMSS) eru til dæmis nú háðar því að félögin vinni eftir þeim siðaregl- um og viðbragðsáætlunum gegn ofbeldi, kynferðislegu ofbeldi og áreitni sem sam- bandið setur sér. Auk þess á UMSS að standa reglulega fyrir fræðslu um þessi mál fyrir félagsmenn sína. Kjartan segir Norðurþing hafa byrjað á því að setja þessa fyrirvara inn í samstarfs- samninga sem var verið að end- urnýja. Eins og áður sagði hafi það gengið vel fyrir stóru félög- in enda byggi þau á því að hafa sett sér siðareglur og búið til handbók um starfsemi sína og verkferla. Öðru máli gegni um minni félögin með fáa félags- menn. „Við erum mjög vakandi fyrir því að fólk má ekki hleypa hverjum sem er í að bjóða upp á starf fyrir börn og ungmenni og taka við frístundastyrkjum. Fólk þarf að halda úti viður- kenndu starfi. Þess vegna þurfa allir að skila inn sakavottorði fyrir þjálfara og starfsfólk sitt. Ef íþróttafélög hlýða ekki skil- yrðum okkar getum við krafið þau um endurgreiðlu,“ segir Kjartan og ítrekar að Við- bragðsáætlun Æskulýðsvett- vangsins og siðareglur séu lykil- plögg fyrir minni félög ásamt því að stjórnendur félaga verði að óska eftir sakavottorðum þjálfara sinna og starfsmanna sem vinna með börnum. „Við erum mjög vakandi fyrir því að fólk má ekki hleypa hverjum sem er í að bjóða upp á starf fyrir börn og ung- menni og taka við frístundastyrkjum.“ Kjartan Páll Þórarinsson, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Norðurþings á Húsavík.

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.