Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.02.2018, Page 10

Skinfaxi - 01.02.2018, Page 10
10 SKINFAXI Ein af þeim breytingum sem ung ­ menni kalla eftir í starfi íþrótta­ og ungmennafélaga er starfsemi fyr­ ir ungmenni á aldrinum 17–30 ára sem hvorki hafa áhuga á afreksmennsku né því að kom­ ast langt, keppa og sigra – þau sem aðeins vilja vera með. Fram kom í umræðu partýunum að þessi hóp ur upplifir sig svolítið út undan þar sem oftar en ekki er rík áhersla lögð á keppni, afrek og mætingaskyldu. Ungmennin kalla eftir starfi þar sem áhersla er lögð á þátt­ töku og félagslegan ávinning, starf eða hóp þar sem hægt er að mæta, hafa gaman og hreyfa sig í góðra vina hópi. Einnig kom fram að mörg ungmenni sækjast frekar eftir félagslega þættinum og félagslegri virkni heldur en árangri. Mörgum ungmennum finnst hins vegar eins og dæmið hafi snúist við, það er að árangur og íþróttin sjálf sé undirstaðan en félagslegi þátturinn auka­ afurð af því. Þessi upplifun hefur fælingarmátt ef og þegar geta og áhugi á íþrótt eða árangri minnk­ ar hjá þátttakendum. Þetta leiddi af sér þá hugmynd að auka möguleika á dómara­ námskeiðum fyrir fólk sem hef ­ ur æft ákveðnar íþróttir í ein­ hvern tíma en hefur ekki áhuga á að keppa í þeim heldur vill halda utan um starfið og vera þátttakendur í félagi sínu. Fyrirmyndir á afrekssviðinu Jafnframt kom fram í um ræðu­ partýunum að mörgum ung­ mennum finnst margar fyrir­ Hvaða breytingum kallar ungt fólk eftir í starfi íþrótta- og ungmennafélaga? myndir og leiðtogar einblíni of mikið á afreksfærni. Það geti leitt til þess að ungmenni leiðist út á vafa samar brautir til að mæta aukinni pressu. Það geti svo skilað sér í ofþjálfun og notkun á fæðu ­ bótarefnum án viðunandi þekk ­ ingar á aðferðum og inni halds­ efnum. Skýr ósk kom fram í umræðu­ partýunum um mikilvægi þess að finna fyrirmyndir sem eru nær ungmennunum. Ekki eigi að horfa aðeins upp til íþróttastjarna í fremstu röð, á borð við knatt ­ spyrnukappann Gylfa Sigurðs­ son, heldur líka til leikmanna í meistaraflokki eða eldri flokk­ um sem ungmenni þekkja og hafa tækifæri til þess að hitta í íþróttahúsum félaga sinna. UMFÍ hefur á undanförnum miss erum staðið fyrir þremur svokölluðum umræðupartýum. Mark mið viðburðanna var að koma fólki saman, bæði þeim sem stýra og stjórna innan ung menna félags - hreyf ng arinnar og ungu fólki sem starfð er hugsað fyrir. Viðburðirnir fóru fram í þjónustumiðstöð UMFÍ í Reykja vík og í félagsheimilunum Hvoli á Hvolsvelli og Logalandi í Reykholtsdal í Borgar- frði. Samtals mættu um 300 þátttakendur í umræðupartýin, bæði stjórn end ur og ungt fólk á aldr- inum 13–30 ára. UMFÍ þakkar Evrópu unga fólksins (EUF) fyrir veittan stuðning við viðburðina. „Við viljum fá að vera með.“

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.