Skinfaxi - 01.02.2018, Blaðsíða 13
SKINFAXI 13
Skyndiákvörðun sem breytti lífi Tómasar
Tónlistarmaðurinn Tómas
Guðmundsson ákvað í bríaríi
að skella sér í lýðháskóla á
Sjálandi í Danmörku. Hann
segist hafa lært mest á því að
búa með öðrum sem séu í skóla
til að læra um hugðarefni sín.
„Þetta var algjör skyndiákvörð
un. Félagi minn hafði farið út í
þennan lýðháskóla ári fyrr og
félagi okkar beggja árið 2012.
Ég hafði gælt við að fara líka
út en missti af því og vissi svo
ekki hvað ég ætti að gera í vetur
og vor. Í fyrra langaði mig til
að breyta svolítið til, sótti þess
vegna um í skólanum og borg
aði staðfestingargjaldið. Síðan
bara gleymdi ég þessu. Þegar ég
fékk staðfestingu á að ég hefði
komist inn í skólann áttaði ég
mig á því að ég þyrfti að fara að
safna á fullu. Ég gerði það, vann
þrefalda vinnu, keyrði mig bók
staflega út og fór svo í skólann
í vor,“ segir Tómas Guðmunds
son. Hann er 23 ára, úr Ölfus
inu á Suðurlandi, og starfar sem
tónlistarmaður. Þetta var í sept
ember árið 2017. Tómas fór út í
janúar árið 2018 og var í skólan
um í hálft ár.
Skólinn, sem Tómas fór í, er
Den Rytmiske Højskole, lýðhá
skóli á Sjálandi, sem einbeitir
sér að kennslu í tónlist, hljóð
blöndun og ýmsu sem tengist
þessu sviði. Tómas segir námið
samt ekki hafa aðeins snúist um
tónlist.
„Þetta var ótrúlega gefandi.
Miklu meira en dorískir skalar,
fimmfjórðutaktar eða multiband
compression. Ég lærði rosalega
mikið af fólki í skólanum, bæði
nemendum og kennurum. Það
mesta sem ég lærði var um sjálf
an mig og á sjálfan mig,“ segir
hann og bætir við að nemend
ur skólans búi saman í nokkr
um húsum. Það hafi verið lær
dómsríkt.
„Það er heilmikið nám að læra
að búa með ellefu manns í einu
húsi. Þú færð engu ráðið og þarft
að aðlagast. En á sama tíma er
frábært að geta gert eitthvað
sem maður elskar. Það er upplif
unin sem er lærdómsrík,“ segir
hann.
Tómas bendir á að áður en
hann fór utan hafi hann velt aldri
nemendanna fyrir sér. „Ég vissi
ekki hvort ég væri of gamall eða
hver meðalaldurinn væri. Mikið
af krökkum fer í lýðháskóla eftir
grunnskóla eða framhaldsskóla.
En svo var aldursbilið mjög
breitt og fólk sagði það ekki
skipta neinu máli. Elsti nemandi
skólans hefur verið 64 ára. Sá er
farinn að vinna í skólanum. Fólk
var líka að leita eftir ýmsu þar.
Þarna var sem dæmi eðlisfræð
ingur sem vildi læra eitthvað
nýtt. Hugarfarið í skólanum
þarna þekkist ekki hér og þess
vegna er mikilvægt að fólk fari
í lýðháskóla til að upplifa það,“
segir Tómas.
Tómas segir reynslu
na hafa haft svo góð áhrif á
sig og hann hafi eignast svo
mikið af nýjum vinum að næst á
dagskrá er að flytja til Danmerk
ur. Hann ætlar utan í nóvember.
„Ég get með sanni sagt að sú
skyndilega ákvörðun sem ég tók,
að flýja land og fara í lýðháskóla
hafi verið besta ákvörðun mín,“
segir Tómas Guðmundsson.
UMFÍ veitir fólki styrki vegna
dvalar í lýðháskóla í Dan-
mörku. Markmiðið með styrkj-
unum er að gefa ungu fólki tæki-
færi til að víkka sjóndeildar-
hring sinn, tækifæri til að kynn-
ast nýju tungumáli og menn-
ingu, auka færni sína og þekk-
ingu á völdu sviði í gegnum
óformlegt nám og styrkja leið-
togatogahæfileika sína. UMFÍ
veitir ferðastyrki og dvalarstyrki.
Meira um styrki UMFÍ:
www.umfi.is