Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.02.2018, Qupperneq 18

Skinfaxi - 01.02.2018, Qupperneq 18
18 SKINFAXI Landsmótið fer fram á Sauðár­ króki dagana 12.–15. júlí nk. Mótið verður skemmtileg sam­ verustund fyrir fjölskyldur og vini þar sem lögð er áhersla á hreyfingu og íþróttir. Boðið er upp á keppni í rúmlega 30 grein­ um, bæði þekktum og nýjum, auk skemmtiatriða og fróðleiks. Landsmótið er sannkölluð íþróttaveisla þar sem þátttak­ endur geta keppt í fjölda íþrótta­ greina auk þess sem ýmiss kon­ ar skemmtun og fróðleikur verð­ ur í boði fyrir keppendur og aðra fjölskyldumeðlimi. „Við kynn­ um nú í rauninni til sögunnar nýtt Landsmót með nýjum áherslum. Landsmótið uppfyll­ ir bæði þarfir þeirra sem vilja keppa og hinna sem vilja vera með og taka þátt. Helsta breyt­ ingin er sú að Landsmótið er opið öllum 18 ára og eldri og þátttakendur setja saman sitt eigið mót. Hægt er að keppa, láta vaða, leika sér og skemmta sér því að rúmlega 30 greinar eru í boði á mótinu og því ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.“ segir Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmda­ stjóri UMFÍ. Eitthvað fyrir alla Auður segir Landsmótið vera miklu meira en íþróttamót. „Þetta er íþróttaveisla þar sem íþróttir verða í aðalhlutverki á daginn og skemmtun í góðum félagsskap ráðandi á kvöldin.“ Önnur áhersla á mótinu er fólg­ in í því að einfalt er að setja saman lið í hverri grein. „Í flest­ um tilvikum eru aðeins 2–3 í hverju liði. Þá er leiktíminn í styttri kantinum og því má búast við stuttum og hröðum leikj­ um. Það getur svo myndað skemmtilegar aðstæður og mikla spennu. Þátttakendur greiða aðeins eitt þátttökugjald sem er stillt í hóf til þess að sem flestir geti verið með.“ Fjöldi nýrra greina Mikil áhersla er lögð á nýjar íþróttagreinar og um leið nýjar og spennandi útfærslur á öðr­ um greinum. „Í ár verður keppt í fyrsta skipti hér á landi í nokkr­ um greinum. Þar má t.d. nefna krolf, biathlon og fótboltapönnu auk fjölda annarra greina.“ Önn­ ur breyting. sem kynnt er á mót­ inu í ár, er að afþreying á mót­ inu er nú meira hreyfitengd en áður. „Til dæmis má nefna að á svæðinu verður 50 metra löng þrautabraut, fótboltapílukast, spikeball og alls konar þrautir og leikir fyrir alla fjölskylduna. Það er því upplagt að koma til Sauðárkróks í sannkallaða íþróttaútilegu.“ Auður segir Landsmótið sam­ eina andlega, félagslega og lík­ amlega heilsu fólks. „Það sama á við um Unglingalandsmót UMFÍ sem fram fer í Þorláks­ höfn um verslunarmannahelg­ ina. Báðir þessir viðburðir skapa aðstæður þar sem auð­ velt er að stunda heilbrigða lífs­ hætti og efla vitund og vitne­ skju fólks ásamt því að skapa félagslega samveru og eftir­ minnilega upplifun.“ Breytt viðhorf samfélagsins Samfélagið hefur verið að þró­ ast og þar eru íþróttir og hreyf­ ing ekki undanskildar að sögn Auðar. „Framtíðarsýn UMFÍ er að mæta þörfum og bæta sam­ félagið. Þar af leiðandi þarf að taka tillit til breyttra þarfa fólks. Landsmót UMFÍ var á sínum tíma einn af fáum íþróttavið­ burðum sem í boði voru á Íslandi. En í dag er til fullt af flottum innlendum og erlendum við­ burðum þar sem afreksfólk er í fararbroddi. Grasrótin í ung­ mennafélagshreyfingunni vildi færa nálgunina yfir á breiðara svið svo að fleiri gætu tekið þátt og haft gaman af því að hreyfa sig. Landsmótið er niðurstaðan af þeirri stefnumótun sem fram fór og á að stuðla að því að bæta samfélagið með þátttöku fleira fólks í íþróttum. Sjáumst hress og kát á Landsmótinu.“ Dagskrá eftir þínu höfði Þátttakendur á Landsmótinu búa til sína eigin dagskrá. Um 30 mismunandi íþróttagreinar auk skemmtunar og fróðleiks eru í boði og því ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Til aðgreiningar er dagskrá mótsins skipt niður í fjóra flokka sem hver hefur sinn lit: Gulir viðburðir eru keppnisgreinar. Til að taka þátt þarf þátttöku­ armband. Rauðir viðburðir eru kennsla og kynningar. Til að taka þátt þarf þátttökuarmband. Grænir viðburðir eru opn­ ir fyrir alla. Landsmótið – sannkölluð íþróttaveisla! Ómar Bragi Stefánsson, framkvæmdastjóri Landsmótsins og Unglingalandsmóts UMFÍ, ásamt verkefnastjórnunum Thelmu Knútsdóttur (t.h.) og Pálínu Ósk Hraundal.

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.