Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.02.2018, Page 26

Skinfaxi - 01.02.2018, Page 26
26 SKINFAXI Valdimar Gunnarsson, fram­ kvæmda stjóri UMSK, er hæst­ ánægður með hvernig mótið tókst og bendir á að það megi þakka góðum undirbúningi í langan tíma. Stefnt er að því að halda mótið árlega. Hann segir fyrirkomulagið geta nýst öðrum íþróttagreinum. „Þetta fór fram úr björtustu von um okkar,“ segir Valdimar. „Hugmynd in að mótinu varð til innan blakfélaga UMSK, hjá Aftureldingu, HK og Stjörn­ unni, fyrir meira en ári. Við höfð­ um hist og rætt um það hvernig hægt væri að efla blakíþróttina og fjölga iðkend um. Þótt marg­ ir stundi blak er þetta ósýnileg LEIKUR Allir voru himinlifandi því að áhersla var lögð á leikinn en ekki harða keppni. íþrótt. Hún sést lítið í sjónvarpi og fær litla umfjöllun. Það eru fáar sýnilegar stjörn ur í blaki og því eru endurnýjun og nýliðun frekar lítil. Við vildum kynna íþróttina fyrir krökkum og kanna hvort það yki áhuga á blaki,“ segir Valdimar. Finnar til fyrirmyndar Finnar hafa staðið framarlega í blaki í gegnum tíðina. Þar í landi er á hverju ári haldið Power Cup, stærsta blakmót fyrir börn og ungmenni í heimi. Mót ið sækja 8.500 einstaklingar sem keppa á 238 blakvöllum. Valdi mar fór á mótið í fyrrasum ar til að kynna sér hvernig Finnarnir gera þetta. Gleðin var ráðandi á fyrsta grunnskólamóti Ungmennasambands Kjalarnesþings (UMSK) og Blaksambands Íslands (BLÍ) í blaki sem fór fram í Kórnum í Kópavogi 9. maí sl. Á mótinu spiluðu um sjö hundruð börn úr 4.–7. bekkjum fimmtán grunnskóla á svæði UMSK.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.