Skinfaxi - 01.02.2018, Blaðsíða 27
SKINFAXI 27
Valdimar segir það hafa verið
eftir tektarvert að mótið fór fram
í fótbolta höll og þar var spilað
á gervigrasi og malarfótbolta
völlum.
„Eftir þessa ferð kviknaði sú
hugmynd að við myndum halda
svipað mót innan okkar raða,
setja upp blakvelli í Kórnum og
halda skólamót í blaki innan
UMSK,“ segir Valdimar og bend
ir á að fjölmargir hafi komið að
undirbúningi mótsins, skipu
lagningu þess og vinnu á móts
dag. Meðal ann ars var ráðinn
verkefnisstjóri sem hélt utan um
verkefnið. Hlutverk hans var
að heimsækja alla skóla á svæði
UMSK og kynna mótið fyrir
skóla stjórnendum og íþrótta
kennurum. „Við vorum með
kynn ingu á blaki í íþróttatím
um og kynntum greinina fyrir
öll um þar. Síðan gáfum við bækl
inga og plaköt. Þetta gekk upp
með stuðningi skólanna. Skóla
stjórnendur tóku ótrúlega vel í
hugmyndina.“
Valdimar bætir við að gríðar
legur styrkur hafi líka falist í
stuðningi Blaksambands Íslands
og Ólympíusam hjálparinnar (e.
Olympian Solidarity) þar sem um
útbreiðsluverkefni sé að ræða.
Það hafi gert UMSK kleift að
kaupa stangir, net og annan
búnað til að standa fyrir mótinu.
„Nú eigum við búnaðinn og
get um sett upp mót þegar við
viljum,“ segir Valdimar. Bún
aðurinn stendur öðrum til boða
sem vilja halda blakmót og kynna
íþróttina.
„Við vildum kynna íþróttina fyrir
krökkum og kanna hvort það yki
áhuga á blaki.“
Þátttakendur: 700 börn
Aldur: 9–13 ára
Hver leikur: 5 mínútur
Fjöldi valla: 64
Stuttir leikir og gott skipulag
Mótið var skipulagt með þeim
hætt að settir voru upp 32 heilir
blakvellir í Kórnum. Hverjum
velli var skipt í tvennt og urðu
þeir því 64 talsins. Þátttakendur
voru um 700 og spil uðu tveir á
móti tveimur. Hver leik ur var
fimm mínútur. Hvert lið var
með skorkort og þegar hverjum
leik lauk skrifuðu þátttakendur
skor sín á kortið og færðu sig
síðan til hliðar um einn völl eins
og í félagsvist.
„Allir voru kátir með þetta.
Krakk arnir og íþróttakennar
arnir þeirra voru himinlifandi
því að áhersla var lögð á leikinn
en ekki harða keppni. Þetta átti