Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.02.2018, Qupperneq 29

Skinfaxi - 01.02.2018, Qupperneq 29
 SKINFAXI 29 Svæði UMSK nær yfir Álftanes, Garðabæ, Kópavog, Mosfellsbæ og út á Seltjarnarnes. Aðildarfélög voru 48 árið 2017. Þar á meðal eru Afturelding, Hestamannafélagið Hörður og Golfklúbbur Mosfellsbæjar, Breiðablik, Gerpla og HK í Kópavogi, Stjarnan í Garðabæ, Grótta á Seltjarnarnesi, Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar, vélhjólaklúbbar, skautafélög og fleiri. Iðkendur eru 33.092. Félagsmenn eru 76.839. Valdimar Gunnarsson, framkvæmdastjóri UMSK, ræðir við keppendur á grunnskólamótinu. Skólamót í blaki getur orðið íþróttinni tilframdráttar. Hægt er að halda skólamót í öðrum íþróttagrein- um með sambærileg- um hætti til að vekja athygli á þeim. Blaksamband Íslands og Ólympíusamhjálpin styrktu skólamót UMSK. Það gerði sambandinu kleift að kaupa stangir, net og annan búnað í blaki til að standa fyrir mótinu. Búnaðurinn stendur öðrum til boða sem vilja halda blakmót og kynna íþróttina. að vera skemmtilegt og gaman og það tókst,“ segir Valdimar og bætir við að eftir að mótinu lauk hafi hann og aðstandendur þess heimsótt skóla allra þátttakenda og fært þeim viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna. Stigahæsta lið samkvæmt skorkorti fékk svo blakbolta að gjöf. Valdimar segir skólayfirvöld hafa ver ið hæstánægð með fram ­ takið og hvatt til þess að slíkt mót verði hald ið á hverju ári. Það er nú á teikniborðinu. Hvað geta aðrir gert? Valdimar segir skólamótið í blaki hafi hugsanlega verið íþróttinni til framdráttar og og fjölgað iðk­ endum. Hann telur hins vegar að tímasetn ingin hefði getað ver ­ ið betri, ákjós an legt sé að halda mótið á haustin, þegar skólaárið er að hefjast, í stað enda skóla­ ársins í sumarbyrjun. En fyrir­ komulagið sé gott. Hægt sé að halda skólamót í öðrum íþrótta­ greinum með sambærilegum hætti til að vekja athygli á þeim.

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.