Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.02.2018, Page 30

Skinfaxi - 01.02.2018, Page 30
30 SKINFAXI Sigríður Bjarnadóttir, for mað ­ ur Íþróttafélagsins Glóðar, segir baráttu hafa þurft til að kynna nýja íþróttagrein til sögunnar fyrir meira en áratug. Nú er bæði æft og keppt í ringó víða um land. Ringó er ein af keppn­ isgreinunum á Landsmótinu á Sauðárkróki. Rétt rúmur áratugur er síðan íþróttagreinin ringó var kynnt til sögunnar hér á landi. Sigríður Bjarnadóttir, formaður Glóðar, kynntist greininni þegar hún fór á landsmót DGI á Jótlandi í Danmörku árið 2005. „Við fórum þrjár úr Glóð á landsmótið. Þar kynntumst við Dönum og ringói. Þau komu árið eftir hingað, gistu hjá mér og héldu námskeið í ringói í heila viku,“ segir Sigríður. Ári síðar sneru Danirnir aftur en þá með hóp af dönskum ringóspil­ urum. Þetta gaf tilefni til að halda ringómót árið 2007. En hvernig gekk að kynna greinina? „Það var töluverð barátta. Fólk fussaði og sveiaði í fyrstu. En þetta hefur gengið vonum fram­ ar, sérstaklega eftir að við hóf­ um samstarf við UMFÍ um að kynna greinina áfram. Nú er farið að spila ringó á Ísa­ firði, í Borgarnesi, á Suður­ landi og víðar, eins og á Ungl­ ingalandsmóti á Egilsstöðum. Það sem skiptir máli er að halda þessu við,“ segir Sigríður og bætir við að ástæðan fyrir því að ringó hefur notið vinsælda sé að greinin líkist mjög blaki. Af þeim sökum hafa blakarar, sem hættir eru að spila, drifið sig í ringó. Íþróttafélagið Glóð var stofnað upp úr því að hópur Kópavogs- búa yfir miðjum aldri keppti á Landsmóti UMFÍ á Sauðárkróki árið 2004. Markmið Íþróttafélagsins Glóðar hefur frá upphafi verið að efla hreyfingu og hafa áhrif á fæðuval og heilsu félagsmanna. Æfingar í ringó eru tvisvar í viku. Auk þess býður félagið upp á pútt og boccia, dans, zumba og línu- dans. Blakarar drífa sig í ringó Hvað er ringó? Í ringó eru notaðir hringir, í stað bolta í blaki. Þeim er kastað yfir net og þurfa mótherjarnir að grípa þá. Tveir hringir eru notaðir í hverjum leik og er oft mikill hasar á vellinum. Íþróttafélagið Glóð „Þetta hefur gengið vonum framar“.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.