Skinfaxi - 01.02.2018, Blaðsíða 40
40 SKINFAXI
Ungmenna og íþróttasamband
Fjallabyggðar hefur tekið upp
breytt fyrirkomulag á útgreiðslu
styrkja sveitarfélagsins. Formað
urinn, Þórarinn Hannesson, tel
ur breytinguna geta hvatt minni
félög til að auka fjölbreytni í
starfi sínu.
Samþykkt var á ársþingi Ung
menna og íþróttasambands
Fjallabyggðar (UÍF) um miðjan
maí sl. að breyta aðferð þeirri
sem notuð hefur verið við skipt
ingu á styrk sveitarfélagsins til
aðildarfélaga UÍF. Styrkur sveit
arfélagsins nemur 6,5 milljón
um króna á ári til barna og
unglingastarfs, aldraðra og fatl
aðra og deilist hann niður á
þrettán aðildarfélög UÍF. Fram
til þessa hefur í skiptingu fjár
ins verið tekið mið af ákveðnu
hlutfalli iðkenda. Hún er síðan
margfölduð með æfingatímum
og fleiru tengdu umfangi við
komandi félags. Með breyting
unni er í meira mæli tekið mið af
starfsemi félagsins, fjölda nám
skeiða og öðru tengdu starf
seminni. Fjöldi iðkenda vegur
minna en áður. Greitt var út í
fyrsta sinn eftir samþykktinni í
kjölfar ársþingsins. Ágætis
mæting var á þingið eða rúm
lega 30 manns sem svarar til um
80% fulltrúa aðildarfélaga UÍF.
Þórarinn Hannesson, formað
ur UÍF og formaður Ungmenna
félagsins Glóa í Fjallabyggð, telur
þetta vera sanngjarnari leið þar
sem þau félög sem bjóði upp á
fleiri námskeið beri meira úr
býtum en þau sem haldi fá nám
skeið. Að sama skapi geti þetta
hvatt félög óháð iðkendafjölda
til að bjóða upp á fjölbreytta starf
semi. Það geti skilað sér til félag
anna í hærri fjárframlögum.
Fá meira fyrir fleiri
námskeið
„Gamla fyrirkomulagið var sett
á hjá Íþróttabandalagi Siglufjarð
ar áður en það sameinaðist Ung
menna og íþróttasambandi
Ólafsfjarðar árið 2009. Engin sér
stök reikniregla var fyrir á Ólafs
firði sem hægt væri að taka upp
og því notuðum við hina áfram.
Það var sátt um hana. En senni
lega var ástæðan fyrir því sú að
menn höfðu ekkert kafað ofan í
reikninginn og spáð í það hvernig
fénu var útdeilt. Það var engin
fyrirmynd að breytingunni. En
mér fannst útkoman ranglát og
ég var búinn að hugsa þetta í
talsverðan tíma fyrir ársþingið.
Það sem sannfærði mig um að
við þyrfum að breyta reglunni
var að við erum með félög sem
voru með æfingar einu sinni í
viku og önnur sem voru með
fjórar æfingar í viku. Þau fengu
hins vegar borgað jafnmikið fyr
ir iðkanda, hvort sem hann æfði
einu sinni eða oftar í viku,” seg
ir Þórarinn.
Stjórn UÍF skoðaði málið og
áttaði sig á að æfingatíminn væri
dýrasti og mikilvægasti liður í
rekstri hvers félags og hefði meiri
áhrif á reksturinn en annað þar
sem æfingatími og iðkendafjöldi
færi saman.
Hvatning til að gera
betur
Þórarinn viðurkennir að í fyrstu
hefði hann talið að minni félög
in myndu hagnast á breyting
unni þar sem vægi iðkenda væri
minna. Það varð hins vegar
ekki raunin. Umfang félaganna
varð hins vegar skýrara.
„Námskeið voru einfaldlega
ekki styrkhæf í fyrri reiknifor
múlunni sem við notuðum. Sú
regla gerði ráð fyrir því að
iðkandi hefði æft í þrjá mánuði,”
segir Þórarinn. Eftir breyting
una kveður reiknireglan á um,
sem dæmi, að sé hægt til dæmis
að halda 20 tíma námskeið með
tíu iðkendum. Út úr því fáist
200 klukkustundir af nám
skeiðahaldi.
Þórarinn bætir við að skoðan
ir hafi verið skiptar í þessu máli.
Það breyttist hins vegar þegar
hann sýndi fram á að félagið, sem
hann er í forsvari fyrir, Umf.
Glói, bæri minna úr býtum eftir
breytinguna en áður.
Skipta styrktarfé með nýjum hætti
Þórarinn Hannesson,
formaður Ungmenna-
og íþróttasambands
Fjallabyggðar.