Skinfaxi - 01.02.2018, Side 41
SKINFAXI 41
Þórarinn Hannesson flutti til
Siglufjarðar árið 1994 og er
íþróttakennari við grunnskól
ann. Hann segir miklar breyt
ingar hafa orðið á samfélaginu
í gegnum tíðina.
„Við stofnuðum Ungmenna
félagið Glóa haustið eftir að ég
kom hingað til að auka fjöl
breytni í íþróttalífinu. Eftir sam
einingu við Ólafsfjörð í sveitar
félag Fjallabyggðar hefur verið
tvennt af öllu. Tvö skíðafélög,
tvö hestamannafélög og tveir
golfklúbbar ásamt fleiri félög
um. Það eina sem breyttist er
að Leiftri og Knattspyrnufélag
Siglufjarðar sameinuðust í
Knattspyrnufélagi Fjallabyggð
ar (KF). Ungmennafélagið Glói
er hins vegar eina félagið í sveit
arfélaginu sem er fjölgreina
félag,“ segir hann.
Þórarinn segir fólki hafa fækk
að nokkuð stöðugt í sveitarfélag
inu og setji það hömlur á þá fjöl
breytni sem hægt er að bjóða
upp á í skipulögðu íþrótta og
tómstundastarfi. Hann tekur
sem dæmi að árið 1994 voru 340
börn í grunnskóla Siglufjarðar.
Nú eru 200 nemendur á grunn
skólaaldri í sameinuðum skóla.
Þar af eru 120 á Siglufirði. „Það
er í raun ótrúlegt hvað við getum
boðið upp á fjölbreytt íþrótta
starf með ekki fleiri íbúa,“ segir
hann.
Fjölbreytni
í íþróttalífi
bæjarins jókst
Vægi ÁÐUR NÚNA
Fjöldi iðkenda: 25% 0%
Umfang félaga (Æfingatími, mótahald og fleira): 65% 90%
Grunnstyrkur: 10% 10%
„Þetta munaði um hundrað
þúsund krónum á milli ára. Við
erum með íþróttaskóla fyrir
yngstu krakkana, fimleikaæfing
ar og íþróttaskóla einu sinni í
viku sem er lítið miðað við aðra
sem eru með íþróttaskóla fjórum
sinnum í viku. Fólk sá auðvitað
að þótt ég bæri upp tillöguna
vorum við ekki að græða neitt
á breytingunni. Ég held reyndar
að það hafi skipt máli um það
hversu vel fólk tók í hana,” segir
Þórarinn og er þrátt fyrir þetta
enn sannfærður um að breyting
in á útdeilingu fjármunanna
hvetji til fjölbreytni í rekstri
aðildarfélaga UÍF. Breytingin
skipti nær engu máli fyrir flest
félög. Knattspyrnufélag Fjal
labyggðar og álíka umfangs
mikil félög fengu um 100
þúsund krónum meira en áður.
„Ég var búinn að gefa mér
fyrirfram að minni félögin
myndu græða meira á þessu.
Svo reyndist ekki vera. En ég er
samt sannfærður um að þessi
regla sýni betur umfang aðildar
félaganna og sé bæði sanngjarn
ari og réttlátari en áður var,“ seg
ir hann.