Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2018, Blaðsíða 45

Skinfaxi - 01.02.2018, Blaðsíða 45
 SKINFAXI 45 54% Evrópubúa hreyfir sig reglulega Æ færri hreyfa sig nú en fyrir fjórum árum, samkvæmt nýleg- um niðurstöðum könnunar sem gerð var fyrir framkvæmda- stjórn Evrópusambandsins og nefnist Eurobarometer*. Í könnuninni kom fram að 54% þátttakenda innan aðild- arríkja Evrópusambandsins (ESB) stundi íþróttir af ein- hverju tagi. Þetta eru 4% færri en árið 2014 þegar sambæri- leg könnun var gerð síðast. Fram kemur í könnuninni að á þessum fjórum árum hafi staðan batnað í Belgíu, Lúxem- borg, Finnlandi, á Kýpur, í Búl- garíu og á Möltu. Tekið er sérstaklega fram að mikill kraftur hafi farið í að auka hreyfingu hjá ungu fólki. Lengri tíma, jafnvel nokkur ár til viðbótar, þurfi til að breyta lífsstíl eldra fólks og fá það til að hreyfa sig meira en áður. Vinnuveitendur eru hvattir til að gera allt hvað þeir geta til að fá starfsfólk sitt til að hreyfa sig meira, bæði í vinnu og eftir hana. Það sama má segja um yfirvöld í borgum og bæjum. * Könnunin var gerð dagana 2 –11. desember árið 2017, í 28 ríkjum ESB. Þátttakendur voru um 28.000 talsins. Þetta er sambærileg könnun og þær sem gerðar voru árin 2002, 2009 og árið 2013. Helstu niðurstöður Eurobarometer: • Fólk hreyfir sig mest utandyra utan skipulagðs frítíma (40%) og á heimilum sínum (32%). • 15% Evrópubúa ganga skemur en 10 mínútur í einu – alla vikuna. • 12% íbúa innan ESB sitja í meira en 8½ klukkustund á hverjum degi. • 40% þátttakenda í könnuninni segjast ekki hafa nægan tíma til að hreyfa sig. • 54% þátttakenda segjast hreyfa sig til að bæta heilsuna. • 47% stunda hreyfingu til að komast í betra form. Hve oft æfir þú eða iðkar íþróttir? Aldrei 46% Reglulega 7% Nokkuð reglulega 33% Sjaldan 17% Set ehf Eyravegi 41 800 Selfoss Sími: 480 2700 set@set.is set.is Forn menningarríki hófu gerð vatnsrenna og lagnastokka fyrir mörgum árþúsundum. Síðar voru þróaðar vatnsbrýr og málmpípur til að veita vatni til ræktunar, þvotta og drykkjar. Egyptar, Grikkir og Rómverjar áttu mikla verkmenningu á þessu sviði, en vatnsbrýr Rómverja eru enn í dag taldar meðal helstu verkfræðiafreka mannkyns. Lagnagerð er því með elstu iðngreinum sögunnar og hefur þróast með tímanum. Með nýjustu tækni og aðferðum hefur röraverksmiðjan Set skapað sér sérstöðu á heimsvísu með fjölbreytileika í framleiðslu, ásamt því að vera mikilvægur þátttakandi í uppbyggingu og nýsköpun í íslensku samfélagi. Set ehf röraverksmiðja Viðtæk þekking, reynsla og geta fyrirtækisins setur það í flokk á meðal helstu röraframleiðenda Evrópu.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.