Skinfaxi - 01.02.2018, Side 47
SKINFAXI 47
Sabína Steinunn Halldórsdóttir hefur
verið verkefnastjóri hreyfiviku UMFÍ
frá upphafi. Hún segir nauðsynlegt
að hampa almenningsíþróttum því
afreksíþróttir fái allt kastljósið.
„Ég er alin upp við hreyfingu. Fyrstu minn
ingar mínar eru gönguferðir með móður
minni eldsnemma á morgnana á Laugar
vatni. Fólk var að hneykslast á mömmu
fyrir að fara í gönguferðir með stelpuna. En
mamma er helsta fyrirmynd mín hvað hreyf
ingu varðar enda finnst mér fátt skemmti
legra en að taka þátt í íþróttum og hreyf
ingu með vinum mínum,“ segir Sabína
Steinunn Halldórsdóttir, landsfulltrúi Ung
mennafélags Íslands (UMFÍ). Skemmtileg
hreyfing smitaði út frá sér á milli kynslóða
enda er Sabína íþrótta og heilsufræðingur
og verkefnastjóri hreyfiviku UMFÍ á Íslandi.
Hreyfivikan er samevrópskt verkefni sem
var ýtt úr vör árið 2012 til að hjálpa fólki,
sem hreyfir sig lítið, til að standa upp
úr stólnum og bæta lífið með hreyfingu.
UMFÍ hefur verið með frá upphafi og hefur
verkefnið notið mikilla vinsælda á hverju
ári. Vinsældirnar skýrast öðru fremur af því
að svokallaðir boðberar hreyfingar, ástríðu
fullir sjálfboðaliðar sem finnst gaman að
hreyfa sig og fá aðra með sér í hreyfinguna,
hafa verið ötulir málsvarar verkefnisins.
Mikilvægt að draga úr kyrrsetu
„Markmið hreyfiviku UMFÍ hefur frá upp
hafi verið að draga úr kyrrsetu og auka
ánægju fólks af því að hreyfa sig. Þetta er
ekki átak heldur viðhorf. Hreyfing eykst
ekki nema það sé gaman að hreyfa sig og
þegar fólk hreyfir sig meira dregur sjálf
krafa úr kyrrsetunni. Boðberar hreyfingar
um allt land hafa unun af því að hreyfa sig
og smita gleðinni út frá sér. Þeir eru drif
krafturinn og hafa jákvæð áhrif á aðra.
Þegar vel tekst til hjálpa boðberarnir fólki
til að finna uppáhaldshreyfingu sína sem
þeir fara að stunda og njóta þess um leið.
Það er svo mikilvægt að finna gleðina í
hreyfingunni. Þetta hefur tekist svo vel að
á mörgum stöðum bókstaflega iðar sam
félagið af lífi,“ segir Sabína.
Frá upphafi hreyfivikunnar hefur legið
fyrir að hún verði í gangi í átta ár. Þeim
tíma lýkur árið 2020 og aðeins tvö ár eru
eftir. Sabína segir mikið hafa áunnist á
þeim árum sem liðin eru. „Hreyfingarleysi
er vá og þess vegna fórum við af stað með
verkefnið á sínum tíma. Hreyfivika UMFÍ
sýnir að það er nauðsynlegt að hafa verk
efni sérstaklega fyrir almenningsíþróttir í
öllum löndum Evrópu. Við verðum að vera
vakandi fyrir því að kynna fólki hreyfingu
og gildi hreyfingar. Það er hægt að stunda
hreyfingu hvenær sem er og hvar sem er. Æ
fleiri eru að gera sér grein fyrir mikilvægi
þess að hreyfing sé hluti af daglegu lífi. Nú er
verið að auka hreyfingu sem hluta af skóla
lífinu, með sama hætti og endurvinnsla er
nú orðin hluti af daglegu lífi,“ segir Sabína
og leggur aftur áherslu á að hreyfing verði
að vera skemmtileg svo að fólk vilji stunda
hana. Fólk verði einfaldlega að leyfa sér að
finna barnið innra með sér og leyfa sér að
hafa aftur gaman af því að hreyfa sig.
Hreyfing er fjölskylduleikur
„Það sem mestu skiptir, til að gera hreyfingu
að skemmtilegum leik, er að gera hana að
áhugamáli fjölskyldunnar, einhverju sem
börnin bíða eftir að gera með foreldrum sín
um. Það geta verið gönguferðir, stuttir hjóla
túrar eða hvaðeina og jafnvel setja eitthvað
spennandi í bakpoka til að hafa með, s.s.
nesti, sjónauka eða bók. Foreldrar eru helstu
fyrirmyndir barnanna og þegar þeir gera
hreyfinguna skemmtilega smitar það út frá
sér,“ segir Sabína og bætir við að boðberar
hreyfingar í hreyfiviku UMFÍ séu eins og
skemmtilegir foreldrar.
„Boðberar hreyfingar eru hugmyndaríkir
og snillingar í því að gera hreyfingu að leik
og þeir gera hana skemmtilega enda standa
þeir fyrir fjölbreyttum viðburðum um allt
land alla hreyfivikuna,“ segir Sabína.
PANTAÐU
Á NETINU
blackbeachtours.is
info@blackbeachtours.is
Sími: 625 0500
RIB BÁTAFERÐIR, FJÓRHJÓLAFERÐIR, SJÓSTÖNG OG ÚTSÝNISFERÐIR
Mamma er fyrirmyndin mín í hreyfingu