Skinfaxi - 01.03.2020, Síða 4
4 S K I N FA X I
Breytingar eru hluti af lífinu. Oftast nær
eru þær hluti af samfelldu ferli eða
þróun, sem gjarna er drifin áfram af
tæknilegum framförum, er hefur síðan áhrif
á umhverfi okkar og menningu. Yfirleitt ger-
ast breytingar hægt og þannig fléttast þær
saman við daglegt líf okkar án þess að við
tökum sérstaklega eftir því. Það er því
sjaldnast að við áttum okkur á breytingum
nema þegar við hugsum til baka og rifjum
upp gamla tíma.
Við, sem erum á miðjum aldri, munum þá
tíð að fara þurfti í banka til að greiða reikn-
inga. Þá var sjónvarpsdagskráin líka línuleg
og fyrirfram ákveðin. Ef einhver missti af
dagskrárlið varð við það að sitja enda var
útilokað að teygja sig í fjarstýringuna og
renna yfir liðið efni. Ungu fólki þykir núna
sjálfsagt að geta greitt reikninga eða milli-
fært peninga hvar og hvenær sem er. Það
eina sem þarf er netsamband. Sama má
segja um sjónvarp. Við höfum öll einhvern
tíma átt okkur uppáhaldsframhaldsþætti og
beðið misþolinmóð eftir að nýr þáttur birtist
í hverri viku. Nú getum við nýtt streymisveit-
ur og hámhorft á heilu þáttaraðirnar á ein-
um degi.
Öðru hverju gerast ófyrirsjáanlegir atburð-
ir sem hafa afgerandi áhrif á líf okkar. Slíkan
atburð hafa fræðimenn kallað „Svartan svan“
(Black Swan). Eins og nafnið gefur til kynna
er um afar sjaldgæfan atburð að ræða, jafn-
vel eitthvað sem sumir myndu telja útilokað
að gæti gerst. Viðburðir af þessu tagi hafa
mikil áhrif á daglegt líf okkar og geta haft
víðtæk efnahagsleg áhrif á samfélagið.
COVID-19 er Svartur svanur. Við þekkjum
öll hvaða áhrif faraldurinn hefur haft á dag-
legt líf okkar, afleiðingarnar geta komið mis-
jafnlega við okkur, bæði efnahagslega og
heilsufarslega en ekkert okkar hefur komist
ósnert frá faraldrinum.
Fyrir íþróttahreyfinguna hefur COVID-19
verið þungt högg. Áhrif á starfsemi félag-
anna hafa verið mikil. Æfingar hafa lagst af
og viðburðum verið frestað með tilheyrandi
missi fyrir iðkendur og tekjutapi félaga. Þá
hafa stuðningsaðilar orðið fyrir áföllum sem
hafa gert þeim ókleift að standa við samn-
inga.
Samt er mesti skellurinn sá sem
þjóðfélagið hefur orðið fyrir. Hann
verður ekki metinn til fjár. Börn og
unglingar hafa misst af æfingum
og því félagslega uppeldi sem
íþróttahreyfingin hefur veitt æsku
þjóðarinnar undanfarna áratugi.
Kannanir hafa margsinnis
sýnt fram á mikilvægi
iðkunar íþrótta sem
forvarna fyrir ungt
fólk og brottfall þeirra
er mikið áhyggjuefni
þar sem það skilar
sér að líkindum í auknum kostnaði sam-
félagsins í náinni framtíð.
Íþróttahreyfingin hefur engu að síður
sýnt mikla hugkvæmni og dirfsku í því að
bregðast við breyttum aðstæðum. Með
nær engum fyrirvara hafa verið skipulagðar
fjaræfingar og iðkendur hafa fengið til sín
einstaklingsæfingar með samfélagsmiðlum
og öðrum rafrænum hætti. Full ástæða er
til að þakka öllu því góða fólki sem lagt hef-
ur hönd á plóg til að gera þetta að veru-
leika. Það er alls ekki ósennilegt að til fram-
tíðar verði samfélagsmiðlar og rafræn
dreifing nýtt til að koma æfingum til skila
og gera iðkendum kleift að æfa meira og
verða betri íþrótta- og afreksmenn.
Að lokum má ekki gleyma ómetanleg-
um stuðningi ríkis og sveitarfélaga
við íþróttastarfið á erfiðum tímum.
Eflaust hafa margir í hreyfingunni
skoðun á umfangi stuðningsins
og dreifingu hans. Við erum hins
vegar öll þakklát fyrir aðstoðina
og munum leitast við að nýta hana
sem best til góðra verka.
Gleðilega hátíð.
Guðmundur G.
Sigurbergsson,
gjaldkeri UMFÍ
Efnisyfirlit
14 Halla Hrund: Býr enn að leikgleði
trúðanámskeiðsins á Grænlandi.
20 Bjarni Benediktsson:
Miklir hvatar fyrir íþróttafélög.
32 Takk, sjálfboðaliðar.
Leiðari Brugðist við af dirfsku gegn Svarta svaninum
18 Þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi
rokkar.
6 Stofnaði deild fyrir uppáhaldsíþróttina.
8 Saga Stjörnunnar.
10 Samdi lag um dvölina í lýðháskóla
á nokkrum tungumálum.
11 Sýnum karakter hefur jákvæð áhrif.
12 Sportabler og Nórakerfið sameinast.
22 Risaaðstoð samþykkt á Alþingi.
22 UMFÍ greiðir aukaúthlutun Lottó.
23 Góður hagur af starfi Getrauna.
24 Hvernig varð Umf. Þjótandi til?
26 Hvert stefnir félagið þitt?
29 Hvaða reglur gilda um ljósmyndir af
iðkendum?
30 Stjórnskipulag framtíðarinnar.
34 Eineltisstefna Æskulýðsvettvangsins.
36 Hreyfivika UMFÍ 2020.
38 Hvernig byrjar maður að hlaupa?
41 Fengu verðlaun fyrir litla matarsóun.
42 Sjálfboðaliðar endurnýja skíðasvæði
Mývetninga.