Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.03.2020, Side 24

Skinfaxi - 01.03.2020, Side 24
24 S K I N FA X I Guðmunda Óladóttir var kjörin fyrsti formaður Ungmenna- félagsins Þjótanda í Flóahreppi á stofnfundi félagsins sem haldinn var í Félagslundi 16. nóvember 2015. Stofnfélagar voru 38 talsins og voru á mjög breiðu aldursbili. Félagið varð til á grunni þriggja ungmennafélaga sem höfðu starfað í áratugi í gömlu hreppunum þremur, þ.e. Umf. Samhygð í Gaulverjabæjarhreppi, Umf. Vaka í Villingaholtshreppi og Umf. Baldur í Hraungerðishreppi. Guð- munda var áður formaður Umf. Vöku og tók þátt í undirbúningi og stofnun Umf. Þjótanda. Skólastarfið kveikjan að sameiningunni Þegar Guðmunda er spurð hver hafi verið kveikjan að sameiningunni segir hún að upphaf sameiningarinnar megi rekja til stofnunar Flóa- skóla árið 2004 en þá sameinuðust hrepparnir þrír í Flóanum um að reka sameiginlegan skóla. Frekari sameining á svæðinu varð svo 2006 þegar hrepparnir þrír sameinuðust í Flóahrepp. „Eftir að allir krakkarnir í Flóanum fóru að vera saman í skóla breytt- ist líf þeirra mikið félagslega. Vinahópar urðu blanda úr öllum ung- mennafélögunum og hreppamörk urðu óskýrari. Krakkarnir áttu erfitt með að skilja af hverju þeir kepptu á móti hvert öðru á íþróttamótum og væru ekki að sækja sömu viðburði innan sveitar, t.d. páskabingó. Til þess að koma til móts við vilja krakkanna í hreppnum var ákveðið að hefja sameiginlegar íþróttaæfingar á vegum félaganna þriggja auk þess sem ákveðið var að senda sameiginlegt keppnislið á mót innan héraðs árið 2009. Sífellt fleira varð sameiginlegt hjá félögunum þremur sem kostaði mörg samtöl milli formanna félaganna og allar ákvarðana- tökur urðu erfiðari þar sem þær urðu að fara í gegnum þrjár stjórnir. Að lokum voru formennirnir farnir að ræða það sín á milli að líklega væri einfaldast að vera með eitt ungmennafélag í sveitinni.“ Eldri félagsmenn vandamál, krakkarnir aldrei „Hugmyndin var búin að vera á sveimi innan stjórna félaganna í dágóð- an tíma en lengi vel þorði enginn að viðra hana út á við. Búist var við að henni yrði illa tekið af stórum hópi félaga, einkum eldri félagsmönnum. Við vissum að krakkarnir yrðu aldrei vandamál,“ segir Guðmunda. Sameining þriggja ungmennafélaga í Flóanum: Hvernig varð Ungmennafélagið Þjótandi til? Hátíðahöld á 17. júní í Einbúa, svæði Ungmennafélagsins Þjótanda. Keppendur á Flóamótinu, frjálsíþróttamóti fyrir grunnskólakrakka. Ræst í Víðavangshlaupi Umf. Þjótanda.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.