Skinfaxi - 01.03.2020, Side 29
S K I N FA X I 29
Hvaða reglur gilda
um ljósmyndir af
iðkendum?
Myndir af iðkendum og félagsmönnum íþróttafélaga prýða
tímarit, skýrslur og miðla íþróttafélaga, veggi íþróttahúsa og
félagsaðstöðu. En hverjar eru reglurnar?
3. Má senda myndir
af iðkendum áfram
til fjölmiðla eða þriðja aðila?
Persónuvernd bendir á að sérstök sjónarmið gilda um myndbirt-
ingar fjölmiðla, þar sem ákvæði persónuverndarlaganna gilda
ekki nema að takmörkuðu leyti um þá vinnslu persónuupplýs-
inga sem fer fram í þágu fjölmiðlunar og fréttamennsku. Ekki er
því alltaf nauðsynlegt fyrir fjölmiðla að afla samþykkis fyrir mynd-
birtingum, hafi þær fréttagildi og eigi erindi við almenning.
Tekið skal fram að í svari við almennri fyrirspurn tekur Persónu-
vernd ekki bindandi afstöðu til þess hvort farið hafi verið að lög-
um í tilteknu tilviki.
2. Mega íþróttafélög birta
myndir af iðkendum á barnsaldri
í íþróttum?
Þá þurfa einstaklingar að fá fullnægjandi fræðslu um þá vinnslu
sem fer fram. Í tilviki leik- og grunnskólabarna hefur verið farin sú
leið að foreldrar undirriti samþykkiseyðublað, jafnvel flokkað
niður í samþykki fyrir mismunandi tegundum myndatöku, þ.e.
einstaklingsmyndatökur, hópmyndatökur, myndatökur þriðju
aðila o.s.frv. og eins eftir því hver tilgangur myndatökunnar er,
þ.e. birting á vefsíðu íþróttafélagsins, miðlun til fjölmiðla o.s.frv.
Loks skal þess getið að persónuupplýsingar barna njóta sér-
stakrar verndar, sem taka þarf mið af ef um er að ræða ólögráða
einstaklinga. Þá vekur Persónuvernd athygli á tilmælum stofnun-
arinnar varðandi notkun samfélagsmiðla hjá þeim sem starfa með
börnum en í þeim beinir Persónuvernd þeim tilmælum til m.a.
skóla og íþróttafélaga að nota ekki Facebook eða aðra sam-
félagsmiðla fyrir miðlun persónuupplýsinga um ólögráða börn,
hvort heldur sem um almennar eða viðkvæmar persónuupp-
lýsingar er að ræða.
1. Hvaða reglur gilda og hvernig
er best að snúa sér í þeim málum
vilji félagið birta myndir af börnum?
Öll vinnsla persónuupplýsinga þarf að byggjast á heimild í pers-
ónuverndarlögum og samrýmast meginreglum persónuverndar-
laga, en í því felst meðal annars að hún fari fram í skýrum og mál-
efnalegum tilgangi. Sérhvert íþróttafélag, sem vinnur persónu-
upplýsingar um börn í starfi sínu, ber ábyrgð á slíkri vinnslu. Það
er ávallt hlutverk þessara aðila, þ.e. ábyrgðaraðila, að gæta að
því að öll vinnsla persónuupplýsinga sé í samræmi við persónu-
verndarlög.
Almennt telst birting ljósmynda af persónugreinanlegum ein-
staklingum til vinnslu persónuupplýsinga, en fræðsluefni um
myndbirtingar má finna á vef Persónuverndar. Hér er mikilvæg-
ast að samþykki foreldra, og eftir atvikum barnanna sjálfra, liggi
fyrir. Á vef Persónuverndar má finna nánari upplýsingar um hvaða
kröfur eru gerðar til samþykkis í persónuverndarlögum, m.a.
um afturköllun þess.
Ítarlegri upplýsingar:
personuvernd.is
Við sendum þrjár spurningar til Persónuverndar um hvað megi og hvað megi ekki. Svörin eru eftirarandi: